Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 17
Síðastliðin vika var stór í bólusetn-
ingum vegna Covid-19 hér í lands-
hlutanum og margir sem voru t.d.
að fá svokallaðan örvunarskammt.
Á miðvikudeginum var bólusett á
Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns
fékk að fylgjast með frá því snemma
morguns, allt frá því að bóluefnið
var blandað og þar til það var kom-
ið í axlir bólusettra. Þá fékk blaða-
maðurinn einnig að fylgja Herði
Jónssyni, bílstjóra á HVE, í bílferð
um umdæmi HVE þar sem með-
al annars bóluefni var komið á út-
stöðvar HVE, eins og sjá má á síð-
unni hér til hliðar. Voru um 200
skammtar af bóluefni með í för.
Vinnudagurinn hófst snemma
hjá starfsfólki HVE á Akranesi eða
um klukkan 7. Þura Björk Hreins-
dóttir framkvæmdastjóri hjúkrun-
ar hjá HVE, Jóhannes Bergsveins-
son yfirlæknir heilsugæslustöðvar-
innar á Akranesi og Þór Oddsson,
lyfjafræðingur hjá HVE, stýrðu
blönduninni styrkri hendir. Sex
starfsmenn auk þeirra sátu inni í
fundaherbergi og blönduðu bólu-
efnið í gríð og erg og þegar klukkan
var farin að ganga tíu voru tæplega
þúsund skammtar komnir í kæli-
kassa. Það var greinilegt að hópur-
inn var ekki að framkvæma þessa
blöndun í fyrsta skipti og voru
handtökin því örugg og fumlaus og
glatt á hjalla í hópnum.
Bólusetningin sjálf byrjaði klukk-
an tíu í íþróttahúsinu á Jaðarsbökk-
um. Þegar tæplega eitt þúsund
skammtar af bóluefni höfðu ver-
ið blandaðir tók blöndunarfólkið
saman sitt hafurtask og hið bland-
aða bóluefni var borið út í bíl. Jó-
hannes yfirlæknir bar bóluefnið
og áhöld til bólusetningar út í bíl
og ók sem leið lá að íþróttahús-
inu, eftir krókaleiðum að vísu því
eins og kunnugt er er gatnakerfi
Akurnesinga í ákveðnu uppnámi
vegna framkvæmda við Faxatorg.
Á leiðarenda komst hann þó á end-
anum.
Alls voru rúmlega ellefu
hundruð bólusettir
Við íþróttahúsið var fólk þegar far-
ið að safnast í raðir, spennt að fá í
sig örvunarsprautu. Einnig voru
þeir boðaðir sem ekki höfðu feng-
ið aðra eða jafnvel fyrstu sprautu.
Nokkur fjöldi starfsmanna HVE
var einnig mættur til að raða upp
í salnum. Greinilegt var að fólkið
var ekki að gera þetta í fyrsta sinn
og vinnubrögðin fumlaus. Meðal
þess sem setja þurfti upp var tölvu-
búnaður sem beintengdur er tölvu-
kerfi landlæknis. Fannar Sólbjarts-
son, sjúkraflutningamaður og yf-
irmaður tölvumála hjá HVE, var
ekki lengi að koma því öllu í gang.
Sigurður Már Sigmarsson frændi
hans og samstarfsmaður sýndi
stjörnutakta við uppröðun stóla í
íþróttasalnum.
Þegar allt var tilbúið streymdi
fólk inn í salinn og bólusetningin
gekk afar hratt fyrir sig. Þegar
fólk hafði verið bólusett var því
uppálagt að bíða í salnum í 10-
15 mínútur. Sjúkrabíll stóð fyrir
utan íþróttahúsið á meðan bólu-
setningunni stóð ef eitthvað skyldi
koma upp á. Að sögn Jóhannesar
er afar fátítt að einhver vandamál
komi upp. Ein staka sinnum líður
yfir fólk en þegar það gerist þá er
það oftast yngra fólk. Ástæða þess
að það líður yfir fólk getur verið
blóðþrýstingsfall en yngra fólk er
jafnan með lægri blóðþrýsting en
það eldra. Þegar yfir lauk, laust eft-
ir hádegi höfðu alls rúmlega 1.100
verið bólusettir á Akranesi.
frg/ Ljósm. frg og aðsendar.
Allt komið í fullan gang í bólusetningunni.
Mikið umleikis þegar stór
bólusetningarvika var á Vesturlandi
HVE á Akranesi.
Allt á fullu við bólusetningu skömmu fyrir hádegi.
Mikið gengur á þegar bóluefnið er blandað.
Hluti af blöndunargenginu. Þór Oddsson, Ragnheiður
Björnsdóttir, Jóhannes Bergsveinsson, Ólöf Lilja Lárusdóttir,
Aníta Eir Einarsdóttir, Maren Ösp Hauksdóttir og Þóra Björg
Elídóttir.
Jóhannes Bergsveinsson ber bóluefnið og búnað út í bíl.
Sigurður Már Sigmarsson, sjúkraflutningamaður, mættur með
sjúkrabílinn.
Sigurður Már Sigmarsson raðar upp stólum í salinn.
Undirbúningur fyrir bólusetninguna á lokasprettinum.
Fannar Sólbjartsson, yfirmaður tölvumála hjá HVE, Jóhannes Bergsveinsson,
yfirlæknir heilsugæslunnar á Akranesi og Sigurður Már Sigmarsson sjúkraflutn-
ingamaður.