Skessuhorn


Skessuhorn - 01.12.2021, Page 18

Skessuhorn - 01.12.2021, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 202118 Það var sannkölluð aðventustemn- ing í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit um helgina. Þar var við hátíðlega athöfn á laugar- daginn afhjúpað annað af tíu sögu- skiltum sem sett verða upp í verk- efninu Merking sögu og merkis- staða í Hvalfjarðarsveit. Það fyrsta var afhjúpað við Saurbæ í haust. Söguskiltin eru framlag Hval- fjarðarsveitar í samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hvalfjörð; Kjós- arhrepps, Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar og gengur út á þróun ferðaleiðar um Hvalfjörð, en það verkefni er leitt af Markaðs- stofu Vesturlands. Athöfnin hófst með ávarpi Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra sem sagði frá söguskiltinu; tilurð þess og efnistökum. Á skiltinu er farið yfir sögu Jóns Hreggviðsson- ar, Péturs Ottesen, Ytra-Hólms og Innri-Hólms ásamt kirkjunn- ar á Innri-Hólmi. Það var síðan Halldór Blöndal fyrrverandi al- þingismaður og ráðherra sem fékk heiðurinn af afhjúpun skiltisins, en flutti auk þess ávarp. Þar fór hann m.a. yfir fyrstu kynni sín af svæð- inu, en hann var ungur að árum starfsmaður í Hvalstöðinni hvar hann starfaði í alls tuttugu sumur við hvalskurð. Þá ræddi hann um Pétur Ottesen þingmann Borg- firðinga sem hann telur ótvírætt vera einn merkasta alþingismann í sögu lýðveldisins. Að lokinni af- hjúpun var farið inn en þar minnt- ist Haraldur Benediktsson á Vestra- -Reyni Jóns Hreggviðssonar og fór yfir viðburðaríka sögu þessa um- deilda manns. Að lokinni dagskrá sveitarstjórn- ar hófst dagskrá í félagsheimil- inu þar sem Kirkjukór Saurbæj- arprestakalls söng nokkur jólalög undir stjórn og undirleik Zsuzsanne Budai. Því næst hófst jólamark- aður þar sem selt var gegn vægu gjaldi ýmiskonar handverk, sultur, bakkelsi, broddur og fleira. Auk þess var kaffisala. Markaðurinn var opinn bæði laugardag og sunnu- dag. Allur ágóði af sölunni fer til fjármögnunar viðgerða á Innra- -Hólmskirkju en 130 ára afmælis hennar verður minnst á næsta ári. Viðgerðum á kirkjunni hefur mið- að vel á þessu ári. mm Prjónless í miklu magni beið eigendaskipta á jólamarkaðinum. Söguskilti afhjúpað og jólabasar í Miðgarði Eftir afhjúpun söguskiltisins. F.v. Brynja Þorbjörnsdóttir formaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar, Halldór Blöndal fyrrverandi ráðherra, Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri og Haraldur Benediktsson bóndi á Vestra Reyni sem flutti fræðsluerindi um Jón Hreggviðsson. Kórinn syngur undir stjórn Zsuzsanne Budai. Ragnheiður Guðmundsdóttir formaður sóknarnefndar Innra Hólmskirkju hefur verið í hópi velunnara kirkjunnar til fjölda ára. Hópurinn hefur með ýmsu móti safnað fyrir viðgerðum á kirkjunni, en þær viðgerðir fóru að mestu fram á þessu ári. Ragnheiður lagði til jólamarkaðarins mikinn fjölda af litríkum krukkum með sultum og öðru góðgæti. Þetta fallega líkan af Innra Hólmskirkju tók á móti gestum í Miðgarði. Það smíðaði Arnþór Ingibergsson. Borð hlaðið bakkelsi. Kleinur, flatkökur, ostahorn, broddur. Allt sem þarf. Allskyns handverk var boðið til sölu.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.