Skessuhorn - 01.12.2021, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 19
Slökkvilið Borgarbyggðar rekur
slökkvitækjaþjónustu í slökkvistöð-
inni við Sólbakka í Borgarnesi. Að
sögn Bjarna Kristins Þorsteins-
sonar slökkviliðsstjóra er starf-
semin með öllu aðskilin rekstri
sjálfs slökkviliðsins, en er í boði í
ljósi þess að einkaaðilar eru ekki
að sinna þessari þjónustu í heima-
byggð. Töluvert mismunandi er
milli sveitarfélaga hvernig þessari
þjónustu er háttað. Í slökkvistöð-
inni í Borgarnesi er tekið á móti
slökkvitækjum allt árið, þau tæmd,
yfirfarin, hlaðin og umhlaðin eftir
atvikum. Loks er þrýstingi komið á
tækin með því að dæla í þau hæfi-
legu magni af köfnunarefni.
Ómissandi
öryggisþáttur
Eins og allir vita eru slökkvi-
tæki ómissandi öryggisatriði á öll-
um stöðum, hvort sem um er að
ræða heimili, hús eða fyrirtæki.
Oft má með þeim, við afmarkað-
an eld, slökkva áður en eldurinn
nær að breiða úr sér og slökkvilið
mætir á vettvang. Þá er mikilvægt
að velja slökkvitæki sem henta að-
stæðum á hverjum stað og nokkuð
algengt að nauðsynlegt sé að vera
með fleiri en eina tegund slökkvi-
tækja og taka þau þá mið af aðstæð-
um. Bjarni segir að jafnaði yfirfari
þeir um þrjú hundruð slökkvitæki
á ári. Sá fjöldi mætti vera meiri í
ljósi fjölda heimila og fyrirtækja á
svæðinu. Hann segir að æskilegt sé
að yfirfara slökkvitæki að lágmarki
þriðja hvert ár ef aldrei hafi verið
átt við þau á þeim tíma. Ef eitthvað
hefur verið átt við tækin þarf að láta
yfirfara þau strax. Þrýstingur í tækj-
unum gefur þó vísbendingu um
ástandið. Þegar blaðamann bar að
garði var Bjarni að ljúka við að yf-
irfara á þriðja tug slökkvitækja frá
Grunnskóla Borgarfjarðar annars
vegar og hins vegar frá ferðaþjón-
ustunni á Gauksmýri í Húnaþingi.
Aðspurður segir Bjarni að
slökkviliðið sjálft selji ekki tæki eða
búnað. Hins vegar hafi verið gert
munnlegt samkomulag við Kaupfé-
lag Borgfirðinga um að hafa til sölu
viðurkennd slökkvitæki, eldvarnar-
teppi, reykskynjara og annan bún-
að til að hægt sé að vísa fólki þang-
að þurfi það að endurnýja búnað á
heimilunum eða bæta við.
Ekki lögbundin skylda
eftir lokaúttekt
Það vekur athygli að skylda fólks
til að hafa slökkvitæki og annan
nauðsynlegan eldvarnabúnað í hús-
um er einungis til staðar þegar gerð
er lokaúttekt á nýjum húsum. Eftir
það er lagt í hendur fólks að halda
þessum búnaði við og endurnýja
eftir þörfum þannig að í öllum hí-
býlum séu slökkvitæki, eldvarnar-
teppi og reykskynjarar. Bjarni seg-
ir að þetta sé kerfisgalli og í raun
ótrúlegt að eftirlit sé ekki lögbund-
ið í ljósi þess að búnaður þessi
snertir öryggi fólks. Slökkviliðs-
og eldvarnaeftirlitsmenn hafa ekki
lagaheimild til að fara inn á heim-
ili fólks til að taka út hvort slíkur
búnaður sé til eða virki. Því þarf
að höfða til samvisku hvers og
eins með það. Víða erlendis seg-
ir Bjarni að eldvörnum og eftirliti
sé betur fyrir komið og nefnir m.a.
að í Svíþjóð séu það tryggingafé-
lög sem komi að slíku og jafnvel
reki einnig slökkviliðin til helm-
ings á móti viðkomandi kommúnu
eða sveitarfélagi. Hér á landi vanti
einhvers konar hvata eða áminn-
ingu til að fólk hafi eldvarnarbún-
að í lagi. Landssamband slökkvi-
liðs og sjúkraflutningamanna er á
hverju ári með átak. Nemendur í
þriðja bekk grunnskóla eru heim-
sóttir, þeir fræddir um mikilvægi
eldvarna á heimilum og oft koma
börnin þessu svo á framfæri þegar
heim er komið.
Bjarni Kristinn hvetur allan al-
menning til að yfirfara öryggisbún-
að á heimilum og í fyrirtækjum, því
enginn viti hvenær næst þurfi að
grípa til hans. Mest sé hættan einatt
í kringum hátíðir eins og þær sem
nú fara í hönd. mm
Víða er hægt að kaupa eldvarnarbún-
að; slökkvitæki, eldvarnarteppi og
reykskynjara í verslunum. Þessi mynd
var tekin í Kaupfélagi Borgfirðinga í
síðustu viku.
Best að yfirfara slökkvitækin að lágmarki þriðja hvert ár
Þegar búið er að yfirfara tækið, setja duftið í að nýju er þrýstingi komið á.
Bjarni geymir tækið að lágmarki í einn sólarhring eftir hleðslu til að tryggja að
þrýstingurinn haldist í því áður en það fer á sinn stað.
Endurhlaðin og yfirfarin slökkvitæki.
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Bráðum koma blessuð jólin...
Mikið úrval af allskyns gjafavöru
Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt
úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin.
Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa
annarra góðra kosta.
Komdu og kannaðu úrvalið.
Afgreiðslutími:
Virka daga 9–18
Laugardaga 10–14
Sunnudaga 12–14