Skessuhorn


Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 01.12.2021, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Skallagrímur tók á móti liði Álftaness í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn og varð að sætta sig við tap, lokatölur 79:91. Skallagrímur hafði unnið þrjá leiki í röð í deildinni fyrir leik kvölds- ins og hefði með sigri getað nálg- ast liðin í efri hlutanum. Gestirn- ir voru þó alls ekki á því og byrjuðu leikinn af krafti, komust í 7:16 eft- ir miðjan fyrsta leikhluta og leiddu með tíu stigum, 15:25, þegar hon- um lauk. Heimamenn náðu góðum kafla í öðrum leikhluta og minnk- uðu muninn í fimm stig, 28:33 en þá bættu gestirnir aftur í og staðan í hálfleik, 38:47. Í byrjun þriðja leikhluta náðu Álft- nesingar góðu áhlaupi, skoruðu tíu stig í röð á meðan hittni Skallagríms var ekki beint til fyrirmyndar. Þessi munur hélst til loka þriðjungsins þar sem Skallagrímsmenn voru alltaf að elta og gekk misvel, staðan 54:66 við flautuna. Liðin skoruðu síðan sitthvor 25 stigin í lokahlutanum og ljóst að sigurgöngu Skallagríms er lokið í bili, lokatölur í Fjósinu í Borgarnesi, 79:91. Stigahæstir hjá Skallagrími voru þeir Bryan Battle með 26 stig og 12 fráköst, Davíð Guð- mundsson var með 16 stig og þeir Arnar Smári Bjarnason og Simun Kovac með 13 stig hvor og þá var Simun með 18 fráköst. Hjá Álftanesi var Cedrick Bowen með 23 stig, Friðrik Anton Jóns- son með 21 stig og 10 fráköst og Ragnar Jósef Ragnarsson með 17 stig. Skallagrímur er nú í sjötta sæti deildarinnar með átta stig eft- ir tíu leiki en næsti leikur liðsins er gegn Fjölni föstudaginn 3. des- ember í Dalhúsum í Grafarvogi og hefst klukkan 18. vaks Skagamenn sóttu Hauka heim í Hafnarfjörðinn í fyrstu deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og urðu að sætta sig við stórtap, 108:66. Haukar byrjuðu af krafti og eftir aðeins tvær mínútur var stað- an orðin 15:2 fyrir Hauka. Skaga- menn náðu þó að bíta frá sér í kjöl- farið og staðan eftir fyrsta leikhluta 30:19. Skagamenn náðu síðan með mikilli baráttu að minnka muninn í fjögur stig um rúmlega miðjan ann- an leikhluta en þá tóku heimamenn smá kipp og staðan í hálfleik 46:36. En í þriðja leikhluta kaffærðu Haukar gestina algjörlega, skor- uðu 38 stig gegn aðeins tíu stig- um ÍA sem skoruðu ekki neitt stig síðustu sex mínútur leikhlutans og staðan við lok þriðja leikhluta 84:46. Í fjórða leikhlutanum slök- uðu Haukar á klónni, stigaskorið var svipað á liðunum og lokatölur leiksins eins og áður sagði, stórsig- ur Hauka 108:66. Stigahæstir hjá ÍA voru þeir Ne- stor Saa með 16 stig, Hendry Eng- elbrecht með 15 stig og Cristopher Clover með 14 stig. Hjá Haukum var Shemar Bute með 21 stig og 10 fráköst, Jose Aldana með 17 stig og Orri Gunnarsson með 12 stig. ÍA hefur tapað fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni og vermir botn- sætið. Næsti leikur ÍA er á heima- velli gegn Hrunamönnum þriðju- daginn 7. desember og hefst klukk- an 19:15. vaks Skallagrímur átti ekki mikla möguleika þegar þær sóttu Íslands- meistara Vals heim í Subway deild kvenna á miðvikudagskvöldið. Skallagrímur byrjaði þó af krafti, skoraði sex stig í röð og komst í 6:2. En síðan skoruðu þær ekki stig í tæpar sex mínútur og staðan 13:8 eftir fyrsta leikhluta. Annar leik- hluti var á sömu nótum eins og sá fyrsti endaði, Valskonur unnu hann 25:10 og ljóst að Skallagrímur var í veseni. Varnarleikur Vals var ákaf- ur og alls töpuðu Skallagrímskonur boltanum 16 sinnum í hálfleiknum en staðan í hálfleik 38:18. Eftir leikhléið héldu Valskonur áfram að bæta forskotið, pressuðu á gestina og neyddu þær í erfið skot. Valur skoraði 34 stig á móti 17 stigum Skallagríms og staðan eftir þriðja leikhluta 72:35. Fjórði leik- hluti var því aðeins formsatriði fyrir Val og þær sigldu sigrinum örugg- lega í hús, lokastaða leiksins 92:47. Þetta var níunda tap Skallagríms í röð í deildinni en í viðtali við visir. is eftir leik sagði Nebojsa Knezevic, þjálfari Skallagríms, að hann hefði verið ánægður með byrjunina í leiknum og framlag ungu leik- mannanna. Þá sagði hann einnig að nú verði þær bara að æfa og æfa og þannig ná sér í sjálfstraust og verða keppnishæfari það sem eftir er tímabilsins. Þess má einnig geta að liðið saknaði mjög Emblu Krist- ínardóttur en hún mun ekki leika meira með liðinu í vetur þar sem hún á von á barni. Stigahæstar í leiknum í gærkvöldi voru þær Nikola Nederosíková sem var með 18 stig, Leonie Edringer var með 10 stig og Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir með 8 stig. Hjá Val var Ameryst Alston með 22 stig og 11 stoðsendingar, Dagbjört Dögg Karlsdóttir með 14 stig og Eydís Eva Þórisdóttir með 11 stig. Skallagrímskonur eru neðstar í Subway deildinni með ekkert stig en fyrir ofan þær eru Breiðablik með tvö stig og Grindavík með sex stig. Næsti leikur Skallagríms er gegn Breiðablik sunnudaginn 5. desember í Smáranum í Kópavogi og hefst klukkan 19:15. vaks Bryan Battle var atkvæðamestur hjá Skallagrími. Hér í leik gegn ÍA. Ljósm. jho Álftanes stöðvaði sigurgöngu Skallagríms ÍA tapaði stórt gegn toppliði Hauka Nestor Saa skoraði 16 stig gegn Haukum. Ljósm. jho. Taphrina Skallagrímskvenna heldur áfram NÝJIR LITIR HANDKLÆÐI MEÐ NAFNI 3.790,- Smáprent STÆRÐ: 70 X 140 CM Gjafahugmynd OPNUNARTÍMI ALLA VIRKA DAGA 13-18 HELGAR 11-15 SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS NÝJAR VÖRUR

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.