Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20222
Samþykkja kaup
á dælubíl
AKRANES: Á fundi bæjar
ráðs Akraneskaupstaðar síð
asta fimmtudag voru samþykkt
kaup á dælubíl fyrir Slökkvilið
Akraness og Hvalfjarðarsveit
ar samkvæmt fyrir liggjandi
tilboði frá Ólafi Gíslasyni
& Co hf. að fjárhæð um 92
milljónir króna. Sveitar stjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti
sömuleiðis fyrir sitt leyti á
fundi sínum í liðinni viku að
tilboðinu verði tekið. Til
boðið var það eina sem barst
en kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 70 milljónir króna. Bæj
arráð Akraness leggur áherslu
á að bíllinn komist sem fyrst
í rekstur sem gæti orðið á
árinu 2023 en takist það ekki
er kostur á að afhending
og greiðsla verði í janúar
2024. Málið komi að nýju til
ákvörðunar þegar endan leg
útfærsla þess liggur fyrir. Gert
er ráð fyrir að kostnaðarskipt
ing á milli Akraneskaupstað
ar og Hvalfjarðarsveitar verði
samkvæmt gildandi samstarfs
samningi sveitarfélaganna.
-vaks
Páskaúthlutun
Mæðrastyrks-
nefndar
AKRANES: Páskaúthlutun
Mæðrastyrksnefndar Akra
ness fer fram föstudaginn 8.
apríl í húsnæði Samfylkingar
innar við Stillholt 1618 frá kl.
12:3016:30. Hægt er að sækja
um í síma 8593000 og í síma
8593200 dagana 31. mars, 1.
apríl og mánudaginn 4. apríl,
frá kl 1113. Einnig má sækja
um á netfanginu maedra
styrkurakranes@gmail.com.
Einungis nýir umsækjend
ur þurfa að skila inn gögnum
núna en það er staðgreiðslu
skrá sem má nálgast á mín
um síðum hjá RSK og á skrif
stofunni hjá þeim, einnig þarf
að skila inn búsetuvottorði en
það er hægt að nálgast á skrif
stofu Akraneskaupstaðar,“
segir í tilkynningu frá mæðra
styrksnefnd og Rauða krossin
um á Akranesi. Þeir sem vilja
leggja mæðrastyksnefnd lið
þá er reikningsnúmerið: 552
14402048 kt: 4112760829.
-mm
Dönsuðu
úti á götu
AKRANES: Hringt var í
Neyðarlínuna seinni part síð
asta miðvikudags og tilkynnt
um að krakkar væru að hlaupa
í veg fyrir bíla á Faxabraut.
Lögregla fór á staðinn og kom
í ljós að um var að ræða þrjár
stúlkur á aldrinum átta til tíu
ára. Að þeirra sögn voru þær
bara að dansa úti á götu en
fengu fræðslu frá lögreglunni
hve hættulegt þetta væri og
lofuðu þær að dansa eftirleiðis
á gangstéttinni. Haft var sam
band við foreldra stúlknanna
til að fara yfir málin og þeim
bent á að brýna fyrir stúlkun
um að leika sér ekki á götunni.
-vaks
Lítið hefur verið rætt um annað síð-
ustu daga en kjaftshöggið sem Will
Smith gaf Chris Rock á Óskarnum.
Smith hló dátt þegar Rock gerði grín
að konu hans en sá svo viðbrögð
hennar og brást við með þessum
hætti. Ekki var að sjá allt kvöldið að
Smith skammaðist sín nokkuð þó að
hann hefði átt ansi leikræna tilburði
þegar hann tók síðan sjálfur á móti
Óskarnum. Gamla góða meðvirknin
var svo við lýði á meðan á athöfninni
stóð enda kannski erfitt fyrir gesti
að bregðast við með Smith í seil-
ingarfjarlægð. Smith hefur síðan þá
beðist afsökunar á framkomu sinni
en gæti misst styttuna vegna þessa.
Ofbeldi á aldrei að líða, sama í hvaða
formi það er en þessi atburður sýn-
ir kannski hvað við erum komin lítið
áleiðis í þessum efnum.
Vorið nálgast með stilltara veðri. Á
fimmtudag er gert ráð fyrir hægri
suðlægri eða breytilegri átt, skýj-
að og sums staðar smá skúrir eða
él. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að degin-
um. Á föstudag má búast við hægri
suðaustlægri átt og dálítilli rigningu
eða slyddu með köflum, en þurrt að
mestu A-lands. Hiti 0 til 8 stig, mild-
ast syðst. Á laugardag er útlit fyrir
norðaustlægri eða breytilegri átt og
dálitlum éljum fyrir norðan, en rign-
ingu með köflum syðra. Hiti víða 1 til
6 stig. Á sunnudag gengur í sunnan-
átt með rigningu og hlýnandi veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvert er leiðinlegasta hús-
verkið?“ 31% sagði „Ryksuga og
skúra,“ 21% sagði „Þrífa klósettið,“
14% sögðu „Þvo og ganga frá
þvotti,“ 13% sögðu „Gluggaþrif,“
12% sögðu „Annað“ og 8% sögðu
„Ganga frá í eldhúsinu.“
Í næstu viku er spurt:
Finnst þér að leggja eigi niður
píptestið í grunnskólum landsins?
Skagamaðurinn Hilmar Sigvalda-
son hefur verið vitavörður í Akranes-
vita undanfarin tíu ár og fagnaði því
í síðustu viku. Viðtal er við Hilmar í
Skessuhorni í dag í tilefni tímamót-
anna og er Hilmar Vestlendingur vik-
unnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Vegfarendur sem leið hafa átt um
vesturbæ Reykjavíkur hafa tek
ið eftir því að hið sjötíu ára gamla
hvalveiðiskip Hvalur 9 hefur ver
ið tekið upp í slipp. Þar mun skip
ið verða í um þrjár vikur meðan
það verður málað, gert við botn
loka og tanka, könnuð gæði stálsins
og almennt ástand skipsins. Stefnt
er á að Hvalur 8 fái sambærilega
meðferð í kjölfarið. Kristján Lofts
son forstjóra Hvals segist í samtali
við Skessuhorn stefna ótrauður á
hvalveiðar í sumar, en þær voru síð
ast stundaðar sumarið 2018. Reikn
ar hann með að veiðar hefjist í júní
og að þær standi fram í septem
ber, líkt og verið hefur undanfarn
ar vertíðar. Veður ráði þó mestu um
hvort veiðist upp í kvótann sem er
161 langreyður.
Kristján kveðst reikna með að
um 150 manns verði ráðnir til að
sinna störfum við veiðar, hvalskurð
Magnús Þór Ásmundsson, sem
gegnt hefur starfi forstjóra Faxa
flóahafna frá árinu 2020, hefur
óskað eftir að láta af störfum hjá
fyrir tækinu. Tilkynnt hefur ver
ið að Magnús muni taka við starfi
forstjóra Rarik ohf. frá 1. maí nk.
Í tilkynningu óska Faxaflóahafn
ir Magnúsi Þór velfarnaðar á þeim
vettvangi á sama tíma og hon
um eru þökkuð vel unnin störf hjá
Faxaflóahöfnum. Gunnar Tryggva
son, sviðsstjóri viðskiptasviðs Faxa
flóahafna, er staðgengill forstjóra
og mun hann tímabundið taka við
starfinu frá 14. apríl og gegna því
þar til það verður auglýst að nýju
í vor.
mm
Nýsköpunar og frumkvöðlaset
ur Dalabyggðar við Miðbraut 11
í Búðardal verður formlega opn
að í dag, miðvikudaginn 30. mars
kl. 16:00. Byrjað var að leggja
drög að stofnun setursins árið
2020 og er það ætlað frumkvöðl
um, námsmönnum eða öðru hug
myndaríku fólki sem gæti notað
aðstöðuna. „Markmið setursins er
að efla atvinnulíf í Dalabyggð með
sérstaka áherslu á nýsköpun og
frumkvöðlastarf ásamt því að skapa
samfélag fyrir fyrirtæki og einstak
linga sem eru að vinna að hug
myndum sínum og vilja fullmóta
þær, sem og fyrir þá sem vilja skapa
sér sín eigin atvinnutækifæri,“ segir
á vef Dalabyggðar.
Uppbygging setursins var styrkt
af Uppbyggingarsjóði SSV og
Nýsköpunarneti Vesturlands og er
það samstarfsverkefni Dalabyggð
ar og nokkurra leiðandi fyrir
tækja, stofnana og samtaka. „Þar
má nefna EFLU, Kaupfélag Borg
firðinga, Bændasamtök Íslands,
Arion banka, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Háskólann á Bifröst og
Símenntun.“
Í setrinu er samvinnurými þar
sem einstaklingar geta leigt borð í
þann tíma sem þeir vilja, frá ein
um degi upp í mánuð. Fyrir frek
ari spurningar um setrið er hægt að
hafa samband við Jóhönnu Maríu
Sigmundsdóttur, verkefnastjóra hjá
Dalabyggð, á netfangið johanna@
dalir.is.
Lesa má einnig aðsenda grein
Eyjólfs Ingva Bjarnasonar oddvita
um nýsköpunarsetrið hér aftar í
blaðinu.
arg/ Ljósm. sm.
Kristján stefnir ótrauður á hvalveiðar í sumar
og vinnslu afurða í Hafnarfirði.
Auk þess bætast við störf við flutn
inga og ýmsa þjónustu. Að stofni
til reiknar hann með hópi vanra
starfsmanna en auk þess nýliðum.
„Ég hef allavega ekki fyrirfram
áhyggjur af mönnun í þau störf
sem verða til á hvalvertíð, en það
mun verða komið í ljós um pásk
ana,“ segir hann. Hvalirnir verða
veiddir á bátunum Hval 8 og Hval
9, og reynt að færa tvö dýr til lands
í hverjum túr. Hvalirnir verða sem
fyrr flensaðir og skornir í Hval
stöðinni í Hvalfirði þar sem öllum
tækjum og mannvirkjum hefur ver
ið vel við haldið alla tíð. Vinnslan
sjálf fer svo fram í Hafnarfirði.
Aðspurður um söluhorfur segir
Kristján í samtali við Skessuhorn að
þær séu heldur betri en undanfarin
ár. Minna sé lagt upp úr hvalveið
um í Japan svo verð hafi skánað. Að
því gefnu að gengi krónunnar fari
ekki niður úr öllu valdi kveðst hann
bjartsýnn á sölu afurða.
mm
Mannvirkjum Hvalstöðvarinnar
er vel við haldið eins og sjá má á
þessari mynd sem tekin var fyrr
í vetur.
Hvalur var síðast skorinn í stöðinni sumarið 2018.
Magnúsi Þór
Ásmundsson.
Ljósm. Hreinn
Magnússon.
Magnús Þór á förum frá Faxaflóa-
höfnum og í forstjórastól Rarik
Nýsköpunar- og frumkvöðla-
setur opnað í Búðardal í dag