Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202220
Síðasta fimmtudag, þann 24. mars,
voru liðin tíu ár frá því Akranes
viti var opnaður almenningi til
skoðunar en að þeim tíma voru
það einungis vitaverðir sem höfðu
aðgang að vitanum. Hugsjónamað
urinn Hilmar Sigvaldason átti upp
haflega þá hugmynd að opna vitann
fyrir ferðafólki og hefur hann stað
ið þá vakt allar götur síðan. Breiðin
og Akranesviti eru nú orðnir þekkt
ir staðir til að skoða á Akranesi og
vitinn orðinn eitt mesta aðdrátt
arafl í komu ferðamanna á Akra
nes. Vitinn hefur skapað sér sess í
menningarlífi Skagans, hann hef
ur verið vinsæll staður fyrir tón
leika, listsýningar og ýmsa við
burði. Akranesviti var teiknaður af
Axel Sveinssyni verkfræðingi og var
tekinn í notkun árið 1947. Hann
er 22,7 metrar á hæð með sívölu
kónísku turnformi þar sem er 3,5
metra hátt sænskt ljóshús á stein
steyptri undirstöðu. Gamli vitinn
sem stendur neðar yst á Suðurflös
var byggður árið 1918 og er stein
steyptur tíu metra ferstrendur viti.
Hann var byggður eftir teikningum
Thorvalds Krabbe verkfræðings og
var starfræktur til ársins 1947.
Hugmynd úr
ljósmyndafélagi
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í
heimsókn til Hilmars á fimmtu
daginn og settist niður með hon
um í aðstöðunni við Akranesvitann.
Hann segir að sumarið 2012, sem
vitinn var fyrst opnaður, hafi Ljós
myndafélagið Vitinn verið með
gæslu á svæðinu. „Þetta varð eigin
lega til út frá því að einn úr félaginu,
Finnur Andrésson, kom með þá
hugmynd að fara upp á topp á vit
anum og taka myndir yfir bæinn og
þannig byrjaði þetta. Ég var alltaf
með þá hugmynd að reyna að gera
eitthvað meira ferðamannatengt
hér í bænum og þetta var ein af
þeim hugmyndum. Félagar í Ljós
myndafélaginu Vitanum höfðu ver
ið að taka mikið af myndum hérna
í fjörunni af vitunum og svo nefndi
Finnur þetta einhvern tímann og
við sögðum: „Alveg frábært en við
þurfum að fá lykla“.“
Í framhaldinu fékk svo Hilmar
lyklavöld og byrjaði að vinna í vit
anum meðfram vinnu upp í álveri
í sínum frítíma í sjálfboðavinnu til
að fikra sig áfram með þetta. Í nóv
ember 2014 fór hann í fullt starf hjá
bænum sem vitavörður og starfs
maður í íþróttamiðstöðinni. Fram
að faraldrinum var þetta fullt starf
hjá Hilmari að vera vitavörður en
er þar núna eins og sakir standa í
fullu starfi yfir sumarið. Í nóvem
ber 2011 vakti Hilmar athygli á því
hvað gamli vitinn á Suðurflös væri
orðinn illa farinn. Akraneskaup
staður á gamla vitann og var hann
tekinn í gegn árið 2013. Árið 1992
tóku Kiwanismenn sig reyndar til, í
tilefni 50 ára afmælis Akraneskaup
staðar, og löppuðu aðeins upp á
hann, settu í hann hringstiga og
var hann hafður opinn í einhvern
tíma en síðan var skellt í lás vegna
slæmrar umgengni. Hilmar segir að
það sé í skoðun að hafa hann opinn
af og til en þá aðallega fyrir sérstök
tilefni.
Áhrifavaldar mikilvægir
Mikill fjöldi ferðamanna hefur
heimsótt vitann á þessum tíu árum
og giskar Hilmar á að þeir séu að
nálgast eitt hundrað þúsund. Þegar
mest var komu eitt árið 14 þúsund
gestir í heimsókn. Hilmar segir að
hann reyni að grípa alla umfjöll
un um vitann eins og hægt er og
koma henni sem víðast. Sem dæmi
um slíka umfjöllun nefnir hann að í
nýjustu seríu af The Bachelor, sem
að hluta var tekin upp á Íslandi, var
drónamyndband tekið og sýnt af
Akranesvita. „Áhorfið á þættina er
í kringum 200 milljónir manns og
ef við fengjum eitt prósent af því í
heimsókn væru það tvær milljón
ir ferðamanna.“ Varðandi framtíð
ferðaþjónustunnar á Akranesi segir
Hilmar að það þurfi að halda áfram
þessari vegferð og kannski nýta
betur alla þessa ferðamenn sem
eru vel tengdir og eru áhrifavald
ar. „Stundum gerum við okkur ekki
grein fyrir því hverjir þetta eru sem
eru að kíkja í heimsókn til okkar og
get ég nefnt dæmi að í sumar er ég
að fá listakonuna Roisin O´Shea í
heimsókn frá Írlandi. Hún ætlar að
halda málverkasýningu í vitanum á
Írskum dögum og mögulega leng
ur en það, en hún kom hingað fyrir
þremur árum sem ferðamaður. Þá
nefndi ég við hana að við værum að
nýta vitann undir sýningar og tón
listarviðburði og hún spurði hvort
hún gæti haldið sýningu árið eftir
og ég sagði bara já. Ég vissi ekkert
hvaða manneskja þetta var og hvað
hún væri að mála. Svo komst ég að
því að hún væri mjög stórt nafn og
meðal annars eiga tveir fyrrverandi
forsetar Bandaríkjanna verk eft
ir hana og einnig sendiráð víða um
heim. Roisin O´Shea hefur gefið út
dagatöl með sinni list í nokkur ár
og hafa þau ávallt selst upp.“
Einstakur hljómburður
Tónlistarviðburðir hafa verið tíð
ir frá opnun vitans enda hljóm
burður í vitanum einstakur. Tölu
vert af fólki hefur hljóðritað í vit
anum og gefið efnið út. Berglind
Tómasdóttir flautuleikari, sem er
í flautukór Bjarkar Guðmunds
dóttur, gaf út disk fyrir skemmstu
sem var eingöngu tekinn þar upp.
Spurður um eftirminnilegustu
tónleikana í vitanum segir Hilm
ar að það séu tónleikar með Fjalla
bræðrum sem voru sumarið 2014.
„Þá kom helmingurinn af kórnum
hingað, um 30 manns, og veðrið var
ekkert sérstakt, hálfgerður suddi og
á sama tíma var knattspyrnuleik
ur hjá meistaraflokki ÍA á Akranes
velli. Sá leikur hefði átt að draga úr
aðsókn á tónleikana en svo fór að
streyma að fólk og endaði í um 220
áhorfendum inni í vitanum og 150
fyrir utan. Eina sem var neikvætt
við þá tónleika var að þegar þú ert
með svona margt fólk inni í vitan
um þá getur það skemmt hljóm
burðinn, en þeir tóku einnig nokk
ur lög utan dyra. Þetta var allt tek
ið tekið upp á myndband af Hlédísi
Sveinsdóttur og er góð heimild um
þennan frábæra dag.“
Nokkrir frægir tónlistarmenn
hafa komið og heimsótt vitann.
Þar nefnir Hilmar sænsku tónlist
arkonuna Zöru Larsson sem kom
árið 2019, en hún hitaði upp fyr
ir Ed Sheeran á tvennum tónleik
um á Laugardalsvelli. Þá hafa inn
lendir tónlistarmenn eins og Bríet,
Elín Hall og Árný Margrét tekið
upp myndbönd og spilað í vitan
um. En hvernig sér Hilmar fyrir
sér næstu ár á þessum stað? „Ef að
allt fer á réttan veg og við náum til
að mynda svipuðum fjölda ferða
manna og 2019 þá lítur þetta vel
út. En við þurfum hérna á Akranesi
að vera duglegri að tala bæinn okk
ar upp og nýta þessa fjölmörgu fleti
sem við erum með eins og vitann,
Langasand, Guðlaugu, tjaldsvæð
ið, skógræktina, Akrafjallið og golf
völlinn.“
Blaðamaður og Hilmar horfa
yfir svæðið á Breiðinni og ég spyr
Hilmar hvort ekki megi nýta þetta
svæði enn betur fyrir tónleika og
stóra viðburði því það sé langt frá
öllu og lítið ónæði sem skapist af
þannig samkomum. Til dæmis væri
á fimmtudagskvöldum yfir sumar
ið tilvalið að halda slíka viðburði á
Akranesi og hægt að nefna einnig
staði eins og skógræktina, við
Guðlaugu og Akratorg. „Það væri
örugglega ekki mikið vandamál og
yrði örugglega mjög skemmtilegt
upp á það að ná stemningu í bæn
um og ekkert endilega bara fyrir
ferðamenn heldur einnig fyrir okk
ur öll sem búum hérna á svæðinu.
Við þurfum ekki alltaf að sækja allt
annars staðar frá, við þurfum að
vera duglegri að búa til okkar eig
ið því tækifærin eru alls staðar og
það er ekki nóg að tala um hlutina
heldur þarf að koma þeim í fram
kvæmd,“ segir Hilmar sem nú fer á
sinn annan áratug í starfi vitavarð
ar. vaks
Mynd Roisin O´Shea af Akranesvita.
Tíu ár frá opnun Akranesvita
Sest niður með Hilmari Sigvaldasyni í tilefni tímamótanna
Hilmar fékk blómvönd, köku og góðar kveðjur.
Akranesvitinn er tignarlegur að sjá. Gamli vitinn á Suðurflös.
Félagarnir Sigvaldi og Óskar kíktu í heimsókn á tíu ára afmælinu.