Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20224 Um síðustu helgi fóru fram kosningar á tveimur stöðum á landinu þar sem íbúar voru spurðir hvort þeir vildu sameinast nágrönnum sínum við hliðina. Í öllum fjórum tilfellum vildu þeir það og því rennur Langanesbyggð og Sval­ barðshreppur saman og hins vegar Helgafellssveit og Stykkishólmsbær. Ég er ekki frá því að almennt sé vaxandi vilji í smærri sveitarfélögum til sameiningar. Skýringin mögulega sú að menn sjá að takmörkunum er sett hversu fámenn sveitarfélög geta verið til að geta talist sjálfbær og einfaldlega fær um að takast á við það lögbundna hlutverk sem löggjafinn hefur fyrirskipað. Þá eru einnig skýr merki um að minnkandi eftirspurn er eftir setu í sveitarstjórnum og að axla þá ábyrgð sem þeirri vegsemd fylgir. Nýjasta dæmið er úr Hvalfjarðarsveit þar sem allir þrír framboðslistarnir sem buðu fram í kosningunum fyrir fjórum árum hafa nú boðað að þeir ætli að leggja framboðin niður. Þar í sveit er ástæð­ an varla skortur á tekjum sveitarsjóðs. Ástæðan er einhver önnur. En hver? Á undanförnum árum hefur verkefnum sveitarfélaga verið fjölgað þegar rík­ ið hefur sent þau heim í hérað. Margir vildu meina að þessi verkefnaflutningur hafi verið af hinu góða þar sem völdin færðust nær fólkinu. Vel má vera að það sé rétt. Hins vegar er ég alveg viss um að tekjur hafa ekki fylgt í réttu hlutfalli við vaxandi verkefni. Flest sveitarfélög eru því með útsvarið sperrt í hæsta lög­ lega hlutfallið, fasteignaskattar eru sömuleiðis háir og álögur almennt mikl­ ar. Allt gert til að eiga fyrir hreppsútgjöldum. Sveitarstjórnarfólki eru svo skömmtuð of lág laun fyrir sína vinnu og hver skyldi ákveða þau kjör, jú ríkið. Í ljósi þessarar skrítnu þróunar finnst mér skjóta verulega skökku við að dómsmálaráðherra hafi nýverið leyft sér að slá fram þeirri hugmynd að leggja niður embætti sýslumanna á landsbyggðinni. Hann vill að einn sýslumaður taki við því embætti og að sjálfsögðu hafi hann aðsetur í Reykjavík. Að leggja niður átta sýslumenn er um leið ákvörðun um að leggja niður átta hálaunastörf á landsbyggðinni. Það hefur nefnilega ekkert breyst í að sýslumenn eru ágæt­ lega launaðir og þar sem þeir enn sitja munar um skatttekjur þeirra í samfé­ laginu. En það er víðar en á vettvangi sýslumannsembætta sem vel launuðum störf­ um er að fækka. Í Skessuhorni í dag er rætt við bankastarfsmann sem er að ljúka farsælu starfi eftir 45 ár. Í viðtalinu kemur m.a. fram að nú þegar hún lætur af störfum verða jafn margir starfsmenn í bankanum á öllu Vesturlandi og þegar hún byrjaði í sparisjóðnum í Borgarnesi fyrir 45 árum. Í millitíðinni voru þessir starfsmenn þrefalt eða fjórfalt fleiri en þeir eru nú. Allskyns tækni­ framfarir hafa valdið þeirri fækkun. Tækniframfarir sem í dag eru kenndar við fjórðu iðnbyltinguna. Það þarf ekki lengur starfsfólk í bankana af því fólk­ ið er með bankann í vasanum. Bankarnir græða hins vegar meira en þeir hafa nokkru sinni gert en sá gróði situr ekki eftir á landsbyggðinni og enn síður ef bankastarfsmenn eru þar ekki lengur. Vegna allra þessara breytinga af manna­ og tæknivöldum á landsbyggðin enn eina ferðina í varnarbaráttu. Kerfið „fyrir sunnan“ á einhvern veginn auð­ velt með að verja sinn hlut, en „okkar“ kerfi ber skarðan hlut frá borði. Til­ flutningur starfa er nefnilega einkum á annan veginn. Svokölluð öfug byggða­ stefna. Það hlýtur að vera skoðunar virði að kanna ástæður þess að fólk sem setið hefur eitt kjörtímabil í sveitarstjórn ákveður að hætta og gefa boltann frá sér ef svo má segja. Það er af sem áður var að menn lögðu mikið á sig til að halda völdum, sitja sem lengst, jafnvel í áratugi. Vera kann að ástæðan sé að ein­ hverju leyti sú að laun fyrir setu í sveitarstjórnum og nefndum eru ekki í takti við þá vinnu sem fólk þarf að leggja fram. Þá verður einfaldlega að leiðrétta það. Allavega má vel ímynda sér að það leiði til það sem kallað hefur ver­ ið spekileki, þegar allir í sveitarstjórn hætta á sama tímapunkti. Getur ástæð­ an verið sú að búið sé að skipta verkefnum ójafnt innan opinbera geirans, allt á kostnað sveitarfélaganna? Það er allavega ástæða til að færa þessa umræðu upp á yfirborðið. Að öðrum kosti gætu öll sveitarfélög utan höfuðborgarinnar orðið þátttakendur í því sem ráðamenn kjósa að nefna „Brothættar byggðir,“ eins óspennandi heiti og það nú annars er. Magnús Magnússon Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Spekileki í uppsiglingu Á þriðjudaginn í liðinni viku var fundur hjá skóla­ og frístundaráði Akraneskaupstaðar. Í fundargerð kemur fram að undanfarin fjög­ ur ár hafi ráðið lagt áherslu á að bæta aðstæður barna og fjölskyldna þeirra með tilliti til daggæslu­ mála. Ráðist hafi verið í byggingu nýs glæsilegs sex deilda leikskóla við Asparskóga sem verður tekinn í notkun í haust þegar leikskólinn Garðasel flytur starfsemi sína. Með innkomu nýs leikskóla skapast tækifæri til þess að stór­ bæta vinnuaðstæður bæði barna og starfsmanna á leikskólum bæjarins. Nú í haust býðst börnum sem fædd eru frá áramótum og út júlímánuð 2021 leikskólapláss. „Yngstu börn­ in sem byrja á leikskólum Akra­ neskaupstaðar í haust verða því 13 mánaða. Ef frekari tafir verða á byggingu leikskólans við Aspar­ skóga er búið að tryggja leikskóla­ starfinu annað hentugt húsnæði þar til leikskólinn verður tekinn í notk­ un,“ segir í fundargerð ráðsins. vaks Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveit­ ar samþykkti á fundi þriðjudaginn 22. mars að ráða Jökul Helgason í 60% stöðu skipulagsfulltrúa hjá sveitarfélaginu og Arnheiði Hjör­ leifsdóttur í 50% stöðu umhverfis­ fulltrúa. Taka þau við störfun­ um af Boga Kristinssyni fyrrum skipulags­ og umhverfisfulltrúa sem sagði upp störfum í lok síð­ asta árs. arg Klukkan þrjú aðfaranótt síðasta miðvikudags kom Svanur RE inn til hafnar á Akranesi með loðnu. Skipið hélt frá Reykjavík fimm dögum áður eftir þriggja daga brælustopp. Leitað var fanga ansi víða í þessari ferð, eða norður und­ ir Skor í Breiðafirði og austur undir Þorlákshöfn. Talsvert lokahljóð var komið í mannskapinn með þessa vertíð, en menn binda þó enn von­ ir við að vesturgangan láti sjá sig. mm/ Ljósm. gsv Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2022 var 376.248 og hafði íbú­ um fjölgað um 7.456 frá 1. janú­ ar 2021, eða um 2,0%. Alls voru 193.095 karlar og 183.153 konur búsettar á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 2,1% árið 2021 en konum um 1,9%. Íbúum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi, eða um 3,3% á árinu en fjölgunin var 3,2% á Reykjanesi. Á Vesturlandi, höfuð­ borgarsvæðinu og Norðurlandi eystra var fjölgun um 1,8%, á Austur landi 1,7% á Vestfjörð­ um 1,4% og minnst fjölgun var á Norðurlandi vestra einungis 0,07%. Íbúum á Vesturlandi fjölgaði í sex sveitarfélögum af tíu á árinu. Langmest fjölgun og raunar á landsvísu einnig var í Helgafells­ sveit á Snæfellsnesi, eða um 19,7%. Einnig fjölgaði íbúum í Dala­ byggð, Hvalfjarðarsveit, Borgar­ byggð, Akranesi og Stykkishólms­ bæ. Í Snæfellsbæ, Grundarfirði, Skorradal og Eyja­ og Miklaholts­ hreppi fækkaði íbúum milli ára, langmest í Eyja­ og Miklaholts­ hreppi um 14,3%. mm Nýi leikskólinn sem er í byggingu við Asparskóga. Ljósm. vaks Börn niður í 13 mánaða aldur fá leikskólapláss í haust Nýir skipulags- og umhverfisfulltrúar Dalamenn geta glaðst því þar fjölgaði íbúum um 7,3% á síðasta ári. Ljósm. úr safni/ Steina Matt. Vesturland undir mannfjölda- aukningu á landsvísu Svanur landaði loðnu eftir skraptúr

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.