Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202230
Hver er uppáhaldsfuglinn
þinn og hver ekki?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ásta Benediktsdóttir
„Tjaldurinn og sílamávurinn.“
Anna Lárusdóttir
„Lóan og mávurinn.“
Ingunn Sveinsdóttir
„Æðarfuglinn og kjóinn.“
Guðrún Sigvaldadóttir
„Lóan og hænsn.“
Gréta Sif Sverrisdóttir
„Tjaldurinn og mávurinn.“
Skallagrímur og Sindri mættust í
síðustu umferðinni í 1. deild karla í
körfuknattleik á föstudaginn og fór
leikurinn fram á Höfn í Hornafirði.
Jafnt var á flestum tölum í fyrsta
leikhluta mestan hlutann en heima
menn skoruðu síðustu sjö stigin og
staðan 27:20 fyrir Sindra. Í öðrum
leikhluta náðu Skallagrímsmenn
að skora átta stig í röð og minnka
muninn í eitt stig á fyrstu mínút
unni. Síðan tóku heimamenn aft
ur við sér og náðu þrettán stiga for
ystu eftir tæplega fimm mínútna
leik, 46:33. Hægt og rólega náðu
Skallarnir að koma sér inn í leikinn
og minnka muninn, staðan í hálf
leik, 58:54 fyrir Sindra.
Í þriðja leikhluta voru heima
menn með yfirhöndina, náðu mest
16 stiga forystu og leiddu með átta
stigum fyrir síðasta fjórðunginn,
84:72. Þar náðu gestirnir lítið að
ógna og heimamenn sigldu þessu
örugglega í höfn á Höfn, lokatöl
ur 106:93.
Stigahæstir hjá Skallagrími voru
þeir Bryan Battle með 16 stig,
Davíð Guðmundsson með 15 stig
og Marinó Þór Pálmason með 14
stig. Hjá Sindra voru þeir Detrek
Browning og Jordan Connors með
22 stig hvor og Patrick Simon með
19 stig. vaks
Norðurlandamótið í grjótglímu
var haldið í Gautaborg 19. mars og
var metþátttaka á mótinu, eða 226
klifrarar frá öllum Norðurlöndun
um. Ísland sendi 20 klifrara til leiks
og af þeim voru þrír frá Klifurfé
lagi ÍA, þau Sylvía Þórðardóttir
(Youth A), og Sverrir Elí Guðna
son og Þórkatla Þyrí Sturludóttir
(Youth B).
Youthflokkar kepptu með
svokölluðu „flass“ formi, klifr
uðu átta leiðir og höfðu til þess
90 mínútur eða fimm tilraunir.
Undankeppni mótsins fór fram á
laugardagsmorgni og hóf Bflokk
ur leika. Mótið var firnasterkt
og allar átta leiðir þess í erfiðari
kantinum, reyndu meira á líkam
legan styrk fremur en tæknilega
kunnáttu. Sverrir Elí náði tveim
ur „zone“ gripum og var ekki langt
frá að toppa tvær leiðir, en náði
ekki endagripinu. Þórkatla Þyrí,
sem er á yngra ári í Bflokk, náði
einu „zone“ gripi en aðrar leið
ir reyndust henni ofviða að þessu
sinni. Sverrir Elí og Þórkatla Þyrí
luku því keppni og geta verið stolt
af sinni frammistöðu.
Í Aflokki klifraði Sylvía og átti
nokkrar góðar tilraunir í leið
ir mótsins. Hún náði örugglega
tveimur „zone“ gripum og toppaði
eina leið í þremur tilraunum, sem
þó dugði ekki áfram í úrslit.
Íslenski hópurinn, sem er til
tölulega ungur og óreyndur, kom
tveimur klifrurum áfram í úrslit, en
þau Óðinn Arnar Freysson (Juni
or) og Agnes Matthildur Helga
dóttir Folkmann (Youth B) enduðu
í tíunda sæti í sínum flokki. Mótið
fer í reynslubankann hjá íslenska
hópnum sem nú undirbúa sig flest
ir undir Íslandsmeistaramótið sem
fer fram í Reykjavík.
þs
Fjölnir og ÍA léku á föstudaginn
lokaleik sinn þennan veturinn í
1. deild karla í körfuknattleik og
fór leikurinn fram í Dalhúsum í
Grafarvogi. Heimamenn voru ívið
sterkari í fyrsta leikhluta og voru
með sjö stiga forystu þegar flaut
an gall, 31:24. Fjölnir hélt áfram
að auka við forskotið í öðrum leik
hluta og var munurinn kominn í 20
stig þegar flautað var til hálfleiks,
60:40 fyrir Fjölni.
Í þriðja leikhluta var þetta á
sömu nótum, Fjölnir hélt áfram
að raða niður körfum og allt útlit
fyrir að gestirnir yrðu rassskelltir
þetta kvöldið, 31 stigs munur fyr
ir fjórða og síðasta leikhluta, 89:58.
En þá hrökk ÍA loksins í gang þó
seint væri og náði að minnka mun
inn í 17 stig fyrir leikslok, lokatöl
ur 107:90.
Stigahæstir hjá ÍA í leiknum voru
þeir Cristopher Clover með 36 stig
og 10 fráköst og Lucien Christofis
og Hendry Engelbrecht voru með
14 stig hvor. Hjá Fjölni var Dwayne
Foreman Jr. með 34 stig og 10 frá
köst, Fannar Elí Hafþórsson með
19 stig og Daníel Ágúst Halldórs
son með 16 stig.
vaks ÍA endaði í neðsta sæti í deildinni með tvö stig í 27 leikjum og leikur í 2. deild á næsta tímabili. Ljósm. vaks
ÍA með fimmtán ósigra í röð eftir tap gegn Fjölni
Skallagrímur hefur lokið leik á þessu tímabili og endaði í sjöunda sæti deildarinnar með 22 stig. Ljósm. vaks
Skallagrímur tapaði fyrir Sindra
Sverrir Elí í brautinni.
Tóku þátt í Norðurlandamótinu í grjótglímu