Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 11 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk. Umsókn og kynningarbréf, með upplýsingum um menntun og starfs- reynslu, skal berast rafrænt í gegnum vef EFLU, efla.is/laus-storf, fyrir 10. apríl 2022. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Ágúst Ingason sviðsstjóri byggingasviðs, olafur.agust.ingason@efla.is. EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum starfsmanni, með sérþekkingu í lagna- og loftræsihönnun. Um er að ræða starf í fagteymi lagna- og loftræsikerfa. Starfið er óháð staðsetningu sem þýðir að búseta starfsmanns skiptir ekki máli til að geta sinnt starfinu. efla.is412 6000 Sérfræðingur í lagna- og loftræsihönnun Starfssvið l Hönnun frárennslis-, neysluvatns-, hita- og kælilagna l Hönnun á vatnsúðakerfi l Hönnun loftræsilagna l Gerð útboðsgagna, orkuútreikninga og kostnaðaráætlana Menntunar- og hæfniskröfur l Háskólamenntun í vél- og orkutæknifræði eða sambærileg menntun l Reynsla af lagna og/eða loftræsihönnun er kostur l Reynsla í notkun AutoCad og Revit l Framúrskarandi hæfni í samskiptum l Metnaður til starfsþróunar l Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð l Góð færni í íslensku og ensku MÓTTAKA FRAMBOÐSLISTA VEGNA SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 14. MAÍ 2022 Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga rennur úr kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 8. apríl nk. Framboðslistar skulu hafa borist undirrituðum formanni yfirkjörstjórnar fyrir ofangreindan tíma. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands, www.kosning.is, er þar að finna greinargóðar leiðbeiningar til þeirra sem hyggjast bjóða fram lista. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða hjá formanni yfirkjörstjórnar, yfirkjorstjorn@borgarbyggd.is. Yfirkjörstjórn verður í Ráðhúsi Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð, Borgarnesi föstudaginn 8. apríl frá kl. 10:00 - 12:00 og veitir þar framboðslistum viðtöku. F.h. yfirkjörstjórnar Sveinbjörn Eyjólfsson BORGARBYGGI> Í vatnsveðrinu sem gekk yfir síðasta laugardag var asahláka enda mikið af snjó sem bráðnaði hratt og hita­ stig hærra en undanfarnar vikur. Þá hrundi úr vegkantinum á gamla veginum um Búlandshöfða og flæddi aur og drulla yfir þjóðveginn milli Grundarfjarðar og Ólafsvík­ ur. Verktakar brugðust skjótt við og hreinsuðu drulluna af veginum en gamli vegkanturinn þar sem vind­ mælirinn er staðsettur lætur örlítið á sjá eftir hamaganginn. tfk Vorið 2019 fagnaði Björgunar­ sveitin Brák í Borgarnesi 70 ára afmæli björgunar­ og slysavarna­ starfs í bænum með því að taka skóflustungu að nýrri björgunar­ miðstöð. Nú er þessi stórhuga hóp­ ur búinn að reisa húsið og er það fullklárað að utan. Nýja byggingin stendur á svokölluðum Fitjum við útjaðar bæjarins, en björg­ unarsveitin fékk lóðina gefins frá Borgar byggð á 150 ára afmæli Borgarness árið 2017. Húsið er hannað af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun og er byggt úr límtré og yleiningum frá Límtré Vírneti. Það er 760 fermetrar að stærð sem er mikil aukning frá núverandi aðstöðu sveitarinnar sem er í Brák­ arey. Í nýja húsinu er m.a. tækja­ salur fyrir sjóbúnað og bíla, bún­ ingaaðstaða og búnaðargeymsla auk aðstöðu fyrir aðgerðastjórn í stærri björgunaraðgerðum. Síðastliðin ár hafa félagar í Brák unnið ötullega að söfnun vegna byggingarinnar. Í því ferli hef­ ur velvilji samfélagsins berlega komið í ljós og margir lagt hönd á plóg. Stuðningurinn hefur verið með ýmsum hætti og komið bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á um 120 milljónir króna og er far­ ið að sjá í land í því efni. Núverandi aðstaða sveitarinnar í Brákarey hef­ ur verið seld og verður afhent nýj­ um eigendum 1. júní n.k. Þessi nýja staðsetning við þjóð­ veg nr. 1 og Snæfellsnesveg er mun betri með tilliti til viðbragðsflýtis í björgunaraðgerðum. Fyrra aðset­ ur sveitarinnar er staðsett neðst í Borgarnesi og því hefur þurft að aka gegnum allan bæinn í útkalli, um tveggja kílómetra leið. Framkvæmdir við nýbygginguna eru nú á lokastigi og undirbún­ ingur að flutningi er hafinn. Mið­ að er við að flutt verði í nýja hús­ ið 14. maí en ekki er búist við að það verði alveg fullklárað þá. Þess má geta að Björgunarsveitin Brák er með Facebooksíðu þar sem er hægt að fylgjast með verkefninu, en söfnunarreikningur sveitarinn­ ar er 0326­22­2220. kt. 570177­ 0369 fyrir þá sem vilja leggja sitt af mörkum. gj Skipverjar á dragnótarbátnum Patreki BA frá Patreksfirði voru heldur kuldalegir að sjá þegar þeir komu til hafnar í Ólafsvík á mánu­ dagskvöldið, enda hafði verið norð­ austan kaldaskítur og kalt í veðri. „Við tókum aðeins eitt hal,“ sögðu skipsverjar í stuttu bryggjuspjalli. „Það var norðaustan stormur við Öndverðarnesið og ekki hægt að athafna sig með góðu móti,“ sögðu þeir og bættu við að um þrjú tonn af slægðri ýsu og þorski hafi komið úr þessu eina hali. Nú spáir vel næstu daga og því ættu bátar að komast á sjó. af Húsið er allt hið glæsilegasta og staðsetningin er mikill kostur. Ljósmynd: obh. Ný björgunarmiðstöð risin og brátt innflutningsklár Áttu viðkomu í Ólafsvík Jarðsig úr gamla veginum á Búlandshöfða

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.