Skessuhorn - 30.03.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20226
Laun hækka vegna
hagvaxtarauka
LANDIÐ: Forsendunefnd
Alþýðusambands Íslands og
Samtaka atvinnulífsins, sem
starfar samkvæmt kjarasamning
um, hefur hist og rætt hagvaxtar
auka kjarasamninga. Lands
framleiðsla jókst á mann um
2,53% á síðasta ári. Þetta hef
ur þá þýðingu að hagvaxtarauki
kjarasamninga hefur virkjast í
fjórða þrepi. Forsendunefndin
hefur ákveðið að hagvaxtarauk
inn komi til greiðslu 1. maí líkt
og kveðið er á um í samning
um og gildir því fyrir laun í apr
íl. Launataxtar munu hækka um
10.500 kr. og almenn laun um
7.875 kr. frá 1. apríl og koma til
greiðslu 1. maí. -mm
Kaup á húsi
við Aggapall
AKRANES: Síðasta fimmtu
dag á fundi bæjarráðs Akra
ness voru samþykkt kaup á hús
inu við Aggapall við Langasand,
að fjárhæð 3,5 milljónir króna,
og fól ráðið bæjarstjóra frek
ari úrvinnslu málsins. Mann
virkið í heild (Aggapallur) hef
ur verið nýtt í þágu margs kon
ar starfsemi Akraneskaupstað
ar, til menningartengdra við
burða og af KFÍA allt frá árinu
2011 þegar framkvæmdum lauk
og það tekið í notkun. Stefnt
er að áframhaldandi nýtingu
mannvirkisins í þágu starfsemi
Akraneskaupstaðar og íþrótta
hreyfingarinnar en húsið er
víkjandi á skipulagi vegna hug
mynda um frekari uppbyggingu
á Langasandsreitnum. -vaks
Ríkið hættir niður-
greiðslu sýna
LANDIÐ: Föstudaginn 1. apr
íl mun falla úr gildi reglu
gerð um endurgreiðslu kostn
aðar vegna sýnatöku til grein
ingar á Covid19. Reglugerðin
tók fyrst gildi 16. september sl.
og fól í sér að einkaaðilar sem
önnuðust hraðpróf til greiningar
á Covid19, t.d. vegna hrað
prófsviðburða eða útgáfu vott
orða fyrir ferðamenn, gátu boð
ið þá þjónustu endurgjaldslaust.
Frá og með 1. apríl verður ein
kennasýnatöku áfram sinnt hjá
heilsugæslu og heilbrigðisstofn
unum. Þar verður einnig í boði
sýnataka fyrir ferðamenn sem
þurfa vottorð vegna ferðalaga
gegn gjaldi. Það má gera ráð fyrir
því að einkaaðilar bjóði áfram upp
á sýnatöku en sem fyrr segir verð
ur niðurgreiðslum hins opinbera
vegna sýnatöku hjá einkaaðilum
hætt 1. apríl nk. -mm
Reykholtshátíð
hlýtur tilnefningu
BORGARFJ: Reykholtshátíð í
Borgarfirði hefur verið tilnefnd
til Íslensku tónlistarverðlaun
anna 2022 í flokki tónlistarhá
tíða. Hátíðin er þar í flokki með
landskunnum listamönnum og
menningarstofnunum á borð
við Björk Guðmundsdóttur
og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Listrænir framkvæmdastjór
ar árið 2021 voru Sigurður
Bjarki Gunnarsson sellóleikari
og Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari hjá Sinfoníuhljóm
sveit Íslands. Frá þessu segir á
vef Borgarbyggðar. vaks
Án réttinda á
fjórhjólum
HVALFJ.SV: Síðasta fimmtu
dag var tilkynnt um tvo
unga drengi á fjórhjólum í
Melahverfi. Drengirnir voru
án réttinda og fjórhjólin óskráð
og ótryggð. Drengirnir sem
eru fæddir árið 2006 voru með
hjálma og í brynju en ekki með
gildandi ökuskírteini. Haft var
samband við foreldra og atvikið
einnig tilkynnt til barnaverndar.
vaks
Bjarnheiður
endurkjörin for-
maður SAF
LANDIÐ: Aðalfundur Sam
taka ferðaþjónustunnar árið
2022 fór fram síðastliðinn mið
vikudag. Í aðdraganda aðal
fundar fór fram rafræn kosn
ing meðal félagsmanna um þrjá
meðstjórnendur í stjórn SAF
til næstu tveggja ára ásamt því
að kjörinn var formaður. Ragn
hildur Ágústsdóttir, stofnandi
og eigandi Lava Show, Sævar
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við
Eskifjörð og Björn Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Kynnis ferða
Reykjavik Excursions hlutu kjör
í stjórn SAF til næstu tveggja
ára. Bjarnheiður Hallsdóttir,
framkvæmdastjóri KötluDMI
og núverandi formaður SAF var
endurkjörin formaður samtak
anna til næstu tveggja ára. -vaks
Sjávarútvegsráðherra
hyggst auka þorskkvóta
strandveiðibáta um 1500
tonn. Þessi veiðiheim
ild fékkst í skiptum fyr
ir 5,3% af deilistofnum
sem Íslendingar hafa rétt
til að veiða. Fyrr í vet
ur hafði Svandís Svavars
dóttir ákveðið að skerða
strandveiðar um sömu
1500 tonn. Svandís skrif
ar sjálf á vef Strandveiði
félags Íslands síðastliðinn
fimmtudag: „Ég á enn
eftir að taka ákvörðun
um hvernig þetta verður
útfært, en ljóst er að það er svigrúm
til að bæta inn í strandveiðipottinn
líkt og ég hafði vonast til að geta
gert. Strandveiðar skipta miklu
máli fyrir byggðir landsins og það
stendur mér nærri að standa vörð
um það kerfi samhliða því að hvika
hvergi frá því grund
vallarsjónarmiði að
fylgja vísindalegri
ráðgjöf.“
Trillukarlar sem
hyggjast fara á strand
veiðar í vor eru nú
byrjaðir að undirbúa
báta sína fyrir kom
andi vertíð, en þeir
mega byrja veiðar
2. maí. Strandveiði
báturinn Jaroslav er
einn þeirra báta sem
fer á strandveiðar í
sumar og var eig
andinn að taka bátinn
í land til þess að skvera hann af fyrir
sumarið undir lok vikunnar.
af
Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit sendi
á mánudaginn frá sér tilkynningu
þess efnis að listinn mun ekki bjóða
fram fyrir sveitarstjórnarkosn
ingarnar í vor. Þar með hafa allir
núverandi listar sem átt hafa full
trúa í sveitarstjórn sagt sig frá fram
boði, en áður höfðu Á listi og H
listi gert slíkt hið sama. Íbúalistinn
hefur setið í minnihluta í sveitar
stjórn á yfirstandandi kjörtímabili
með tvo fulltrúa af sjö.
Ragna Ívarsdóttir og Elín Ósk
Gunnarsdóttir fulltrúar Íbúalistans
í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
segja í tilkynningu sinni:
„Það að sitja í sveitarstjórn
er fjölbreytt starf, krefjandi og
spennandi enda hlutverkið marg
þætt og byggist á samvinnu. Í allri
einlægni hefur það kjörtímabil
sem nú er að ljúka verið lærdóms
ríkt fyrir undirritaðar en í leiðinni
hefur það bæði verið krefjandi og
erfitt. Undirritaðar hafa þurft að
takast á við flókna stöðu þar sem
fulltrúar meirihluta sveitarstjórn
ar hafa unnið að því leynt og ljóst
að halda okkur sem lengst frá öllu
sem við kemur störfum sveitar
stjórnar. Starfsskilyrði okkar hafa á
engan hátt verið góð síðustu fjögur
ár og meirihlutanum ekki til fram
dráttar. Neikvætt umtal og áreiti
sem því fylgir að gefa kost á sér til
starf í sveitarstjórn er ekki aðlað
andi starfsumhverfi, þessu þarf að
breyta,“ segja þær Ragna og Elín
Ósk.
mm/ Ljósm. arg.
Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit
mun ekki bjóða fram í vor
Jaroslav hífður á land í Ólafsvíkurhöfn.
Sjávarútvegsráðherra ætlar að bæta
strandveiðimönnum upp skerðinguna