Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 13
Eins og greint var frá í Skessuhorni
í síðustu viku ætlar Háskólinn á Bif
röst að leggja til húsnæði til mót
töku flóttafólks frá Úkraínu. Mót
taka fólksins er unnin í samstarfi
skólans, Borgarbyggðar, ríkisins og
Rauða kross Íslands og er nú unnið
hörðum höndum að undirbúningi
fyrir komu flóttafólksins. „Við ger
um ráð fyrir að fyrstu gestir komi á
Bifröst í næstu viku. Við vitum ekki
nákvæmlega hvenær fólkið kemur
eða hversu margir en við stefnum
á að hluti húsnæðisins verði tilbú
ið í lok þessarar viku. Háskólanum
á Bifröst hafa borist margar gjaf
ir til að hægt sé að standsetja hús
næðið og eru á fullu í undirbúningi
húsnæðisins,“ segir Þórdís Sif Sig
urðardóttir sveitarstjóri í Borgar
byggð í samtali við Skessuhorn.
Skjól á Bifröst
Húsnæðið á Bifröst er hugsað sem
skammtímaúrræði þar sem flótta
fólkið getur dvalið í 312 vikur á
meðan varanlegra húsnæði finnst.
„Þetta er það sem við köllum skjól
en fólkið verður að fara úr úrræðum
á vegum Útlendingastofnunar inn
an tveggja vikna frá dvalarleyfi og á
svo skömmum tíma verður ekki til
búið varanlegt húsnæði fyrir þann
fjölda sem er að koma til okkar.
Þetta úrræði er því svona milliplan
þar sem gestirnir okkar geta upplif
að öryggi og fá aðstoð þar til þeir
komast í varanlegt úrræði,“ útskýr
ir Þórdís og bætir við að Fjölmenn
ingarsetrið komi svo til með að
vinna með fólkinu til að finna fram
tíðarhúsnæði.
En hvernig verður tekið á móti
þessu fólki? „Við lítum á flótta
fólkið sem gesti okkar og mun
um að sjálfsögðu sýna þeim gest
risni. Við erum komin með verk
efnastjóra til að halda utan um
þetta verkefni. Svo erum við með
félagsráðgjafa, sálfræðing og hjúkr
unarfræðing að vinna með okkur.
Við ætlum að bjóða upp á kennslu
fyrir börn á grunnskólaaldri á
Bifröst og hafa margir kennar
ar í Borgarbyggð sýnt áhuga á að
koma að þeirri vinnu. En við eig
um eftir að sjá hvernig hópurinn
er samsettur sem kemur til okkar.
Kannski eru kennarar eða einhverj
ir með reynslu af kennslu í hópn
um sem hafa áhuga á að hjálpa með
kennslu. Við vitum að það er mik
ill mannauður í þessum gestum og
það eru örugglega einhverjir sem
vilja leggja hönd á plóg og því um
að gera að virkja þau,“ segir Þórdís
og bætir við að verið sé að skoða
hvort börn á leikskólaaldri geti ekki
fengið að vera eitthvað á leikskóla
Hjallastefnunnar á Bifröst.
Góð aðstaða á Bifröst
Aðspurð segir Þórdís aðstæðurnar á
Bifröst henta mjög vel til að taka á
móti flóttafólki í skammtímaúrræði.
„Við erum með stýrihóp sem held
ur utan um þetta verkefni og þar er
fólk með gríðarlega þekkingu á mót
töku flóttafólks og hvernig sé best að
bjóða gestina okkar velkomna og að
aðstoða það við að öðlast eins eðlilegt
líf og hægt er. Það verður boðið upp
á akstur daglega í Borgarnes sem þau
geta nýtt sér og svo er verið að skoða
hvort hægt sé að setja upp verslun
á staðnum með helstu nauðsynjum.
Bifröst býður upp á ýmislegt, þar eru
heitir pottar, líkamsrækt, leikskóli,
leikvöllur, gönguleiðir og mikil ró
og fegurð. Það er líka lítil verslun í
Hreðavatnsskála og svo eru veitinga
staðir á svæðinu. Það er tíu mínútna
akstur í næstu sundlaug og íþrótta
hús og rúmlega tuttugu mínútur í
Borgarnes í alla þjónustu. Við erum
að leita leiða til að tryggja að þau eigi
sem auðveldast með að sækja þjón
ustuna,“ svarar Þórdís.
Hvernig er hægt
að hjálpa?
Rauði krossinn kemur að verkefn
inu og mun til að mynda aðstoða
við móttöku fólksins og öflun fatn
aðar. Áhugasamir eru hvattir til að
bjóða sig fram sem sjálfboðaliðar hjá
Rauða krossinum þar sem hægt verð
ur að hjálpa með mismunandi verk
efni sem tengjast móttöku gestanna.
Háskólinn á Bifröst mun sjá um allt
sem tengist húsnæðinu og ef fólk
hefur húsgögn eða annan húsbúnað
til að gefa er hægt að hafa samband
við þau í netfangið ukraina@bifrost.
is. Þá er einnig hægt að hafa sam
band við verkefnastjóra á netfangið
ukraina@borgarbyggd.is til að bjóða
fram aðstoð. „Ég er mjög bjartsýn á
að þetta muni ganga vel,“ segir Þór
dís að lokum. arg
Háskólinn á Bifröst býður nú öllum
nemendum upp á sálfræðiþjónustu
þeim að kostnaðarlausu og hefur
Ástdís Pálsdóttir Bang verið ráðin
í 50% stöðu sálfræðings við skól
ann. „Þjónustan er miðuð að þörf
um hvers einstaklings og er fullum
trúnaði heitið,“ segir í frétt á síðu
skólans.
Ástdís lauk Bac gráðu í sálfræði
frá Háskólanum á Akureyri og MSc
gráðu í klínískri sálfræði frá Háskól
anum í Reykjavík. „Ástdís öðlað
ist fjölbreytta reynslu undir hand
leiðslu reyndra sálfræðinga á þrem
ur stöðum í meistaranámi sínu:
Grensásdeild Landspítalans, þjón
ustumiðstöð Vesturbæjar, Mið
borgar og Hlíða og á Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Í meistara
rannsókn sinni rannsakaði Ástdís
tíðni þunglyndiseinkenna aldraðra
á Íslandi.“
arg
Gert er ráð fyrir að sömu regl
ur muni í meginatriðum gilda
um nikótínvörur og nú gilda um
rafrettur, samkvæmt frumvarpi
heilbrigðisráðherra sem hann
mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku.
Meginmarkmiðið er að tryggja
gæði og öryggi þessa varnings og
tryggja með tiltækum ráðstöfun
um að börn kaupi hvorki né noti
nikótínvörur og rafrettur og áfyll
ingar fyrir rafrettur.
Frumvarpið felur í sér breytingu
á gildandi lögum um rafrettur og
áfyllingar fyrir rafrettur og mun
heiti laganna breytast til samræm
is við efnið og verður „lög um
nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar
fyrir rafrettur“. Nikótínvara telst sú
vara sem ekki er til innöndunar og
inniheldur nikótín, hvort sem nikó
tínið er unnið úr tóbaki eða ekki og
varan inniheldur að öðru leyti ekki
önnur efni sem unnin eru úr tóbaki,
til dæmis nikótínpúða.
Innleitt verður 18 ára aldurstak
mark við kaup og sölu á nikótín
vörum líkt og gildir um rafrettur
og áfyllingar á þær. Óheimilt verð
ur að auglýsa nikótínvörur, á sölu
stöðum mega þær ekki vera sýni
legar og óheimilt verður að merkja
umbúðir með texta eða myndmáli
sem höfðar til barna og ungmenna.
Óheimilt verður að selja nikótín
vörur í grunn og framhaldsskól
um og á öðrum stöðum sem ætlað
ir eru til félags, íþrótta og tóm
stundastarfs barna og ungmenna.
Þá verður einnig óheimilt að flytja
inn, framleiða og selja nikótínvör
ur og rafrettur og áfyllingar fyrir
rafrettur sem innihalda bragðefni
sem kunna að höfða til barna, svo
sem nammi og ávaxtabragð. mm
Flóttafólk væntanlegt á Bifröst í næstu viku
Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri.
Horft yfir háskólaþorpið á Bifröst. Ljós. James Einar Becker.
Ástdís Pálsdóttir Bang hefur verið ráðin í starf sálfræðings við Háskólann á
Bifröst. Ljósm. Háskólinn á Bifröst.
Nemendur fá
sálfræðiþjónustu
Nikótínvörur felldar undir
lög um rafrettur