Skessuhorn


Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 15

Skessuhorn - 30.03.2022, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 15 Föstudaginn 11. mars hófst sólar­ hrings dansmaraþon fermingar­ barna í Borgarbyggð og fór það fram í Reykholtskirkju. Með dans­ maraþoninu vildu krakkarnir safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu en vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkj­ unnar. Söfnuðu krakkarnir áheitum hjá vinum og vandamönnum og söfnuðu alls 612.600 krónum. arg Í síðustu viku tók Grunnskóli Borgar fjarðar á móti þátttakendum frá fimm skólum í Evrópu, en um er að ræða Erasmus+ verkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu. Skólarnir eru í Lettlandi, Rúm­ eníu, Spáni, Tékklandi og Portúgal. Grunnskóli Borgarfjarðar er síðan sjötti skólinn í samstarfinu. Verk­ efninu er stjórnað frá Lettlandi. Verkefnið hófst núna í ársbyrjun 2022 og stendur fram á vor 2023. Það samanstendur af samvinnu og heimsóknum á milli skólastofnana í löndunum sex. Meginmarkmið ver­ kefnisins er að dýpka skilning nem­ enda og kennara á því verkefni sem fyrir höndum er og mikilvægi sam­ vinnu þegar kemur að því að hjálp­ ast að við að hugsa um okkar einu jörð til framtíðar, eins og segir í frétt á vef Borgarbyggðar. Í hverri heimsókn koma eða fara fimm nemendur frá hverju landi ásamt kennurum og vinna að þeim verkefnum sem lögð eru fyr­ ir á hverjum stað. Áherslur eru mis­ munandi á milli landanna, allt frá því að fjalla um hvernig nýta megi efni og verðmæti betur, læra að gera lífrænan áburð yfir í að skilja hvern­ ig hægt er að læra af mistökum fyrri kynslóða í náttúruvernd. Þessi heimsókn í Grunnskóla Borgarfjarðar var sú fyrsta í verk­ efninu og var lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum hvern­ ig þeir geta nýtt jarðvarma ásamt því að læra um og skilja jarðfræði landsins og hvernig þeir geta lært með því að þekkja það sem náttúran hefur upp á að bjóða. Þátttakendum var skipt upp í námshópa þar sem þeir fengu kynningu á jarðfræði, náttúrufari og lífríki Íslands. Þeir fóru í leikjatengt nám þar sem tek­ ist var á við verk efni sem byggja á samskiptum og samvinnu ásamt því að kynnast því hvernig Íslendingar hafa nýtt hveri til að baka brauð. Þeir fengu meðal annars að baka alíslenskt hverabrauð að ógleymdri reynslunni að fara í heita sundlaug í vetrarhríðinni. Áhersla var lögð á þátttöku, leikjatengt útinám, tækni­ lausnir og reynslu nemenda í verk­ efninu, ásamt sköpun . vaks/ Ljósm. GBF. Fimmtudaginn18. mars stóð Nem­ endafélag Fjölbrautaskóla Vestur­ lands fyrir forkeppni vegna Söng­ keppni framhaldsskólanna. Fór keppnin fram í Tónbergi og var hin glæsilegasta. Fimm söngvarar stigu á svið og fluttu sitt atriði og á með­ an dómnefnd réði ráðum sínum fengu áhorfendur að sjá atriði úr söngleiknum Útfjör sem leiklistar­ klúbburinn frumsýndi í síðustu viku. Einnig stóð góðgerðarfélagið Eynir fyrir köku­ og sælgætissölu til styrktar flóttafólki frá Úkraínu. Svo fór að Hanna Bergrós Gunnarsdóttir sigraði með flutn­ ingi sínum á laginu Killing Me Softly. Mun hún því keppa fyrir hönd FVA í Söngkeppni framhalds­ skólanna sem fram fer á Húsavík sunnudaginn 3. apríl. Keppnin verður send út í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. vaks Árshátíð Nemendafélags Mennta­ skóla Borgarfjarðar var haldin í síðustu viku undir veislustjórn Audda og Steinda. Góð stemn­ ing var á hátíðinni en nemend­ ur höfðu gert skemmtilegt mynd­ band sem var sýnt á hátíðinni auk þess sem starfsfólk sýndi mynd­ band þar sem létt grín var gert að skólalífinu. Signý María Völundardótt­ ir flutti lagið Heyr mína bæn sem hún ætlar að flytja fyrir hönd NMB í söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður á Húsavík næst­ komandi sunnudag, 3. apríl. arg Gítarleikararnir Björn Thoroddsen, Gunnar Ring­ sted og Reynir Hauksson halda gítarveislu í Landnámssetrinu í Borgarnesi föstudaginn 1. apríl kl. 20. Þeir félagarnir hafa verið framarlega í gítarsenu Íslands um árabil en halda núna tón­ leika saman í fyrsta skiptið. Á efnisskránni eru lög eftir ýmsa þekkta tónlistarmenn, t.d. Bítl­ ana, Django Reinhardt, Jazz standardar, íslensk lög og eig­ in tónsmíðar. Aðgangseyrir er 3000 krónur og athygli vakin á að ekki verður posi á svæðinu. mm Gamla myndin Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn blaðsins aðeins verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem geyma myndir fyrir og í kringum síðustu aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu 2000 og sýnir knattspyrnulið HSH í nýjum búningum á Búnaðarbankamótinu í Borgarnesi. Fermingarbörn söfnuðu fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu Fimm skólar í Evrópu heimsóttu Grunnskóla Borgarfjarðar Þrír gítarsnillingar leiða saman hesta sína í Landnámssetrinu Hanna Bergrós vann forkeppni FVA Signý María mun flytja lagið Heyr mína bæn á Söngkeppni Framhaldsskólanna um næstu helgi. Ljósm. aðsend Signý María verður fulltrúi MB Erasmus+ project No. 2021-1-LV- 01-KA220-SCH-000024421 “Living and learning in natural and green environment”

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.