Skessuhorn - 30.03.2022, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2022 21
Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar
fyrir árið 2021 var tekinn til síð
ari umræðu á fundi sveitarstjórn
ar í síðustu viku. Þar kemur fram
að eigið fé í árslok 2021 nam 3.571
milljónum króna. Rekstarniður
staða A og B hluta var jákvæð um
216,1 milljón króna. Rekstrartekjur
sveitarfélagsins námu rúmum 1.121
m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi
A og B hluta. Rekstrargjöld sveitar
félagsins fyrir A og B hluta voru
978,5 m.kr.
arg
Á fundi sveitarstjórnar Hval
fjarðarsveitar í síðustu viku var
samþykkt með fimm atkvæðum til
laga þess efnis að gerður verði verk
samningur við Hagvarma ehf. um
að meta hagkvæmni þess að setja
upp varmadælukerfi til hitunar á
rafkyntu húsnæði í Hvalfjarðar
sveit. Verkið felur í sér að kanna
aðstæður í þeim íbúðarhúsum og/
eða lögheimilum þar sem vilji er til
uppsetningar varmadælu og velja
hagkvæmasta varmadælukerfið.
Hvað varmadælur snertir getur val
ið staðið á milli þess að nota vatn í
vatn, loft í vatn eða loft í loft eft
ir aðstæðum á hverjum stað. Veitt
verður ráðgjöf varðandi mögulegar
endurbætur á hitakerfi húsa til að
hámarka orkunýtingu á hverjum
stað.
Sveitarstjórn samþykkti jafn
framt að fela mannvirkja og fram
kvæmdanefnd að gera drög að regl
um um stuðning vegna uppsetn
inga varmadæla í Hvalfjarðarsveit.
mm
Lélegur afli hefur verið síðustu vik
ur hjá þeim línubátum sem hafa
róið á Breiðafirði. Aflinn hjá bát
um sem hafa róið í Faxaflóa hef
ur hins vegar verið ágætur, að sögn
Andra Steins Benediktssonar fram
kvæmdastjóra Fiskmarkaðar Snæ
fellsbæjar. „Það liggur loðna yfir
allt svo fiskurinn vill alls ekki taka á
krókana á meðan. En þetta er vissu
lega árvisst hér,“ segir Andri. Það
er því trekt á línuna á meðan svona
er ástatt, en hins vegar er mjög
góður afli á handfæri þegar gefur
á sjó og hafa handfærabátar komið
með yfir þrjú tonn af boltaþorski að
landi yfir daginn, en einnig er góð
ur afli hjá dragnótabátum og sama
á við um netabáta.
Nokkrir línubátar hafa reynt fyr
ir sér á steinbít en hann finnst ekki
og er aflinn mjög lélegur þrátt fyrir
að bátar hafi lagt línuna út af Látra
bjargi þar sem á sama tíma á síð
asta ári var mjög góð veiði. Núna er
þar ekkert að hafa. Andri segir enn
fremur að tveir bátar hafi lagt fyrir
steinbít skammt frá landi á þekkt
um steinbítssvæðum en þar var lítið
að hafa.
Andri segir að ágætt verð fáist
fyrir steinbítinn, eða 190 krónur
fyrir kílóið, en þegar mikið magn
berst að landi lækkar verðið tals
vert enda steinbítsmarkaður mjög
viðkvæmur. Þá lækkaði þorskverð í
síðustu viku en meðalverð var 413
krónur, en vikuna á undan var það
491 króna.
af
Aðalfundur Kúabændafélags
ins Baulu, sem nær frá sunnan
verðu Snæfellsnesi, um Mýrar og
Borgarfjörð norðan Skarðsheið
ar, var haldinn 24. mars síðast
liðinn í Food Station í Borgarnesi.
Á dagsskrá voru hefðbundin aðal
fundarstörf, en að auki fékk félag
ið þá Guðmund Jóhannesson og
Runólf Sigursveinsson frá RML
með fyrirlestra um erfðamengisúr
val og niðurstöðu rekstrar kúabúa.
Félögum voru veittar viðurkenn
ingar fyrir afurðahæstu kýr, afurða
hæstu bú og hæst dæmdu kýr fyrir
árið 2021.
Afurðahæstu kúabúin árið 2021
voru:
Nr. 1. Stakkhamar með 8.065 kg/
árskú
Nr. 2. Snorrastaðir með 8.020 kg/
árskú
Nr. 3. Hvanneyri með 7.638 kg/
árskú.
Afurðahæstu kýr 2021 voru:
Nr. 1. Frostrós frá Snorrastöðum
12.887 kg mjólk
Nr. 2. Bat frá Þverholtum 12.652
kg mjólk
Nr. 3. Mús 4 frá Þverholtum 12.559
kg mjólk.
Hæst dæmdu kýr 2021 voru:
Nr. 1. Svört frá Glitsstöðum með
291,4 stig
Nr. 2. Ríkey frá Dalsmynni með
289 stig
Nr. 3. 1184 frá Ölkeldu með 284,8
stig.
Úrvalsmjólk verðlaunuð
Deildarfundur Snæfellsness og
Mýrasýsludeildar, Borgarfjarðar
deildar og Hvalfjarðardeildar hjá
Auðhumlu sf. var haldinn 22.
mars síðastliðinn að Hótel Hamri.
Rædd voru málefni Auðhumlu sf
og MS ehf og farið yfir ársreikn
inga félagsins. Að venju voru veitt
ar viðurkenningar til bænda sem
höfðu framleitt úrvalsmjólk á
árinu 2019. Þeir voru: Hvanneyri
í Borgarfjarðardeild. Gunnlaugs
staðir, Stakkhamar, NýjaBúð og
Hrauntún í Snæfellsness og Mýra
sýsludeild. Miðdalur og Bakki í
Hvalfjarðardeild.
Blikur á lofti
Fyrir fundinum lá tillaga um sam
einingu allra framangreindra
deilda, sem var samþykkt og mun
ný deild bera nafnið Vesturlands
deild og frá og með næsta deildar
fundi að ári tekur ný deild við
þeim gömlu. Fram kom á fundin
um að stríðið í Úkraínu hefur veru
leg áhrif á hækkun allra aðfanga til
bæði iðnaðarins og bænda. Þá eru
blikur á lofti með innanlandsfram
leiðslu á mjólk, það er að hún nái
að uppfylla þarfir innanlandsmark
aðar. Þar liggja margar breytur að
baki, hey síðasta sumars voru víða
slök á landinu, bæði vegna mikilla
þurrka þar sem tún brunnu og svo
mikillar vætutíðar þar sem hey eru
blaut og úr sér sprottin, kjarnfóð
ur hefur hækkað í verði og hækk
anir eiga eftir að koma fram, ásamt
hækkun á olíu, áburði, plasti svo
það helsta sé nefnt.
Aðalfundur Auðhumlu verður
haldinn 29. apríl, ekki er búið að
staðsetja fundinn. lb/mm
Sitthvað af málefnum kúabænda
Afurðahæstu búin og kýrnar – auk verðlauna fyrir úrvalsmjólk
Bændur sem tóku við viðurkenningum fyrir úrvalsmjólk á starfssvæði Auðhumlu.
Á myndinni eru: Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri Auðhumlu, Karl Vernharð
Þorleifsson Hvanneyri, Egill Gunnarsson Hvanneyri, Ásthildur Skjaldardóttir
Bakka, Birgir Aðalsteinsson Bakka, Ólöf Ósk Guðmundsdóttir Miðdal, Hafþór
Finnbogason Miðdal, Laufey Bjarnadóttir Stakkhamri, Þröstur Aðalbjarnarson
Stakkhamri, Ingiríður Hauksdóttir Hrauntúni og Ágúst Guðjónsson Læk, stjórnar-
formaður Auðhumlu. Ljósm. Garðar Eiríksson.
Þau tóku við viðurkenningum hjá Baulu. F.v. Helgi Már Ólafsson Þverholtum,
Magnús Kristjánsson Snorrastöðum, Egill Gunnarsson Hvanneyri og Laufey
Bjarnadóttir Stakkhamri. Ljósm. þa
Lélegt hjá línubátum
á Breiðafirði
Örvar Marteinsson skipstjóri á Sverri SH segir að það þýði ekkert annað en að
vera með jafnaðargeðið í lagi þegar lítið fæst af steinbíti. „Menn verða bara
að vera þolinmóðir. Þetta kemur allt,“ sagði Örvar og kyssti steinbít fyrir ljós-
myndara.
Hvalfjarðarsveit gerð upp með
216 milljóna króna afgangi
Kanna hagkvæmni varmadæla
þar sem hitaveita er ekki í boði