Skessuhorn - 30.03.2022, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 202228
Pennagrein
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Úrval af jeppafelgum til sölu.
Upplýsingar á jeppafelgur.is,
í netfanginu jeppafelgur@jeppafelgur.is
eða í síma 866-6443
Pennagrein
Covid 19 má finna flest til foráttu
en fátt er svo með öllu illt... Covid
kenndi líka; það hægði á tímanum
og bjó til rými fyrir fólk til að heyra
í eigin hugsunum, gefa sér tíma til
að hlusta, sinna börnum og hugð
arefnum. Covid gerði fjarvinnu líka
að raunverulegum valkosti því ann
að var ekki í boði. Því hafði ver
ið spáð að á næstu 10 árum gæti
fjarvinna orðið mun algengari en
plágan neyddi okkur til að flýta
þeim áformum úr 10 árum í 10
mánuði. Í dag þekkja nær allir
teams og zoom fundi hvort sem
fólki líkar það betur eða verr. Covid
neyddi okkur til að breyta lífsvenj
um okkar hratt og í þeirri stöðu eru
mennirnir góðir sé þörfin augljós.
Fjarvinna og svokölluð gigg
vinna, þar sem starfsmaður ræður
sig tímabundið til starfa, er orðið
samþykkt form á vinnumarkaði og
getur verið afar gagnlegt fyrir bæði
starfsmann og fyrirtæki sem dreg
ur þannig úr kostnaði. Færa má rök
fyrir því að fjarvinna sé eitt stærsta
atvinnutækifæri sem landsbyggðin
hefur séð lengi. Ljósleiðaravæðing
hefur gengið vel og ber að þakka
þeim er stóðu í stafni þeirrar vinnu.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
er í hæstu hæðum og bendir fátt til
þess að breyting verði þar á. Fólk
stendur því í auknum mæli frammi
fyrir þeirri spurningu hvort líf
ið væri einfaldara, rólegra, tíminn
rýmri og afborganir af húsnæðis
lánum lægri ef flutt væri úr borg
í sveit. Næstu 510 ár verða afar
áhugaverð. Verður þróunin þessi
eins og ýmsar spár benda til, eða
heldur samþjöppun á höfuðborgar
svæðinu og í fáum bæjarkjörnum
áfram.
Það má því færa rök fyrir því að
samfélagið standi nú á krossgötum
og því er mikilvægt að ígrunda stór
ar ákvarðanir vel með þetta í huga,
horfa 5, 10, 20 og 70 ár fram í tím
ann. Rekstur skóla hefur mikið ver
ið ræddur, hvort fækka eigi skólum
og stækka einingar til að gera þær
hagkvæmari í rekstri og einingarn
ar öflugri fyrir félagsmótun barna.
Þau rök eru góð og gild en þetta
sjónarmið hefur mér þótt vanta í
umræðuna; hvar verðum við stödd
með mannfjölda og dreifingu hans
eftir 1020 ár? Verður fjarvinnu og
giggmenningin allsráðandi? Mun
það sem dró fólk í borgir hér áður,
trygg atvinna, hafa misst mark sitt?
Munu fyrirtæki hreinlega hvetja
til þess að fólk vinni meira heima
og hvar sem er til að spara fjár
magn sem fer í rekstur og kaup
á dýru skrifstofuhúsnæði? Verð
ur Meta heimurinn, hinn svokall
aði sýndarveruleikaheimur, hluti af
hversdagsleikanum? Öllum þess
um spurningum er ósvarað en svör
in við þeim gætu orðið á þá leið að
það skipti minna og minna máli
hvar fólk býr. Fólki gæti fjölgað úti
á landi og þá gæti orðið dýrkeypt
fyrir sveitarfélag að hafa fækk
að möguleikum á skólahúsnæði.
Stuttar vegalengdir í skóla trekkja
að fjölskyldufólk og Borgarbyggð
er landstórt sveitarfélag. Hugsum
hlutina í víðu samhengi og langt
fram í tímann eins og kostur er á
þegar við tökum stórar ákvarðanir.
Helgi Eyleifur Þorvaldsson
Höfundur er frambjóðandi VG í
Borgarbyggð
Samfélag á krossgötum
- úr borg í sveit?
Síðastliðið fimmtudagskvöld ókum
ég og frúin vestur í Lyngbrekku.
Tilefnið var að sjá sýningu Leik
deildar UMF Skallagríms á leik
ritinu Slá í gegn, sem byggir á lög
um Stuðmanna. Þessari kvöldstund
var svo sannarlega vel varið og
gaman til þess að vita að enn finn
ist áhugasamur hópur sem leggur á
sig ómældar stundir við æfingar og
sýningar í heimahéraði.
Leikritið er sem áður hefur kom
ið fram byggt í kringum lög Stuð
manna sem öll eru grípandi og voru
og eru mikið spiluð. Létt og með
góðum textum sem flestir kunna af
plötum og úr kvikmyndum. Ekki
ætla ég mér að skrifa ritdóm um
frammistöðu leikenda, en segja má
að áhugi og gleði hafið einkennt
alla þá sem á sviðinu voru. Allir
lögðu sig fram og segja verður að
hér sannist að í okkur öllum leynist
þrá til þess að stíga á svið. Á sviðinu
voru reyndir jaxlar og svo aðrir að
stíga sín fyrstu spor. Þessi hópur
dansaði og söng af mikilli innlif
un, já svo að einnig við áhorfendur
sungum með í hljóði .
Leikdeild Umf. Skallagríms hef
ur undanfarin ár sett upp metnað
arfullar sýningar og vonandi verð
ur svo áfram. Við, fólkið í héraði,
eigum að vera dugleg að sækja
viðburði sem þennan og sýna
þeim sem vinnuna á sig leggja þá
virðingu að mæta, fylgjast með og
gleðjast.
Takk áhugafólk um leiklist fyr
ir gott framlag ykkar til þess að
skemmta okkur hinum.
Haldið áfram – þið auðgið
mannlífið.
Flemming Jessen
Þakka ber það
sem vel er gert
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög