Skessuhorn - 12.04.2022, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 20222
Skrifstofan
lokuð um
páskana
SKESSUHORN: Næsta
blað af Skessuhorni kemur
út miðvikudaginn 20. apríl,
síðasta vetrardag. Það verð-
ur með sumarþema, að hluta
forskrifað blað með efni sem
tengist árstímanum. Skrifstofa
Skessuhorns verður lokuð
alla páskahelgina, frá skírdegi
14. apríl til og með 18. apríl.
Greinar til birtingar í blaðinu
eftir páska sendist á netfang-
ið skessuhorn@skessuhorn.
is og auglýsingar til birtingar
á auglysingar@skessuhorn.is
í síðasta lagi mánudaginn 18.
apríl. Minnum jafnframt á að
hámarkslengd aðsendra greina
fram yfir kosningar miðast við
eina síðu í Word, 12 punkta
letur. Gleðilega páska! -mm
Tveir listar
bjóða fram
SNÆFELLSBÆR: Líkt
og fyrir fjórum árum verða
tveir framboðslistar í kjöri
í Snæfellsbæ. Það er D-listi
Sjálfstæðisflokks og J-listi
Bæjarmálasamtaka Snæfells-
bæjar. Kristinn Jónasson
bæjarstjóri staðfestir þetta í
samtali við Skessuhorn. -mm
Tvö framboð í
nýju sveitarfélagi
SNÆF: Síðastliðinn föstudag
kom í ljós að tveir listar verða
í kjöri í sameinuðu sveitar-
félagi Stykkishólmsbæjar og
Helgafellssveitar. Það eru
annars vegar framboð H-lista
og hins vegar Í lista. -gj
Fjórir listar
í boði
BORGARBYGGÐ: Á hádegi
á föstudaginn rann út frestur
til að skila inn framboðum til
sveitarstjórna. Í Borgarbyggð
verða fjórir listar í kjöri. Það
staðfesti Sveinbjörn Eyjólfs-
son formaður yfirkjörstjórn-
ar í samtali við Skessuhorn.
Þetta eru: A-listi Samfylkingar
og Viðreisnar, B-listi Fram-
sóknarflokks, D-listi Sjálf-
stæðisflokks og V-listi Vinstri
hreyfingarinnar græns fram-
boðs. -mm
Kosið verður
milli þriggja lista
AKRANES: Þrír framboðs-
listar voru lagðir fram á Akra-
nesi fyrir lokafrest síðastliðinn
föstudag. það eru: B-listi
Framsóknar með frjálsum,
D-listi Sjálfstæðisflokks og
S-listi Samfylkingar. -mm
Ók á ljósastaur
BORGARNES: Síðasta
fimmtudagsmorgun ók
ökumaður bifreiðar á ljósa-
staur við hringtorgið við
Húsasmiðjuna í Borgarnesi.
Áður hafði verið ekið á staur-
inn og lá hann utan vegar.
Tjón varð á hægra framhorni
bifreiðarinnar en annars var
hún ökuhæf. -vaks
Framundan er dymbilvika og
langt páskaleyfi. Við hvetjum
fólk til að njóta frídaga, þeim
sem þá eiga, njóta náttúr-
unnar og vera gott við hvert
annað.
Á miðvikudag er útlit fyrir
austlæga átt 5-13 m/s, en
allhvasst eða hvasst allra
syðst. Víða bjartviðri, en skýj-
að og lítilsháttar væta með
suður- og austurströndinni.
Hiti 1 til 10 stig, hlýjast
suðvestan til. Á fimmtudag
og föstudag má búast við
sunnan- og suðaustan 10-18
m/s með rigningu eða súld,
en úrkomulítið norðaust-
anlands. Hiti 5 til 12 stig.
Á laugardag má búast við
minnkandi suðlægri átt og
vætu með köflum, en þurrt
fyrir norðan. Hiti 3 til 13 stig,
hlýjast norðaustanlands.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað á að gera
af sér í sumar?“ 31% sagði að
margt væri á döginni, 29%
sögðu „Skoða landið mitt,“
10% sögðu „Finna sjálfan
mig,“ 10% sögðu „Ferðast til
útlanda,“ 9% sögðu „Sleikja
sólina,“ 5% sögðu „Horfa á
Netflix“ og 5% sögðu „Mála
pallinn.“
Í næstu viku er spurt:
Hvað er uppáhalds
nammið þitt?
Tónlistarmaðurinn Svavar
Viðarsson varð fimmtugur
síðasta föstudag og ákvað í
tilefni þess að gefa út lagið
Stjörnur á Spotify. Rætt er við
Svavar í Skessuhorni í dag og
vegna tímamótanna er Svav-
ar Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Nú í aðdraganda sveitarstjórna-
kosninga 14. maí eru Öryrkja-
bandalag Íslands og Þroskahjálp
að ferðast um landið og funda
með frambjóðendum og kjósend-
um. Slíkir fundir hafa m.a. verið
haldnir á Akranesi, í Borgarnesi
og í Stykkishólmi. Fundarefnið er
staða fatlaðs fólks í sveitarfélögum.
Málaflokkur fatlaðs fólks var fluttur
frá ríki til sveitarfélaga árið 2011
og hefur verið fjárhagslegt bitbein
æ síðan. Það er mat Sambands
íslenskra sveitarfélaga að það vanti
um 8 til 12 milljarða frá ríkinu til
sveitarfélaga til að þau nái að sinna
málaflokknum nægjanlega vel.
Ljóst er á könnun sem Öryrkja-
bandalagið lét Gallup vinna
snemma í vor að kjósendum er
langt frá því að vera sama um
hvernig haldið er á málum. Ríflega
80% aðspurðra segja það hafa áhrif
á hvaða framboð þeir velja, hversu
mikla áherslu framboðið leggur á
málefni fatlaðs fólks. Væntanlega
þekkja langflestir til fatlaðs einstak-
lings, annað hvort í stórfjölskyldu
sinni, eða vinafjölskyldu, sem hefur
áhrif á afstöðu þeirra.
Þuríður Harpa Sigurðardótt-
ir, formaður Öryrkjabandalags-
ins, segir að samtal og samráð við
sveitarfélögin sé sérstaklega mikil-
vægt, og því ómetanlegt að hitta
frambjóðendur og ræða málin.
„Það er ljóst nú þegar, að þekking
innan sveitarfélaganna á samningi
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks, er ekki nógu mikil,
og þetta er því kærkomið tæki-
færi að blása verðandi bæjarfull-
trúum metnað fyrir málaflokkn-
um í brjóst,“ segir Þuríður Harpa.
Hún segir að það sé almenn skoðun
þeirra frambjóðenda sem sótt hafa
þá fundi sem haldnir hafa verið, að
þeir hafi verið upplýsandi, og þarft
innlegg í kosningabaráttuna. mm
Síðastliðinn fimmtudag uppgötv-
aðist að búið var að stela af stalli
sínum bronsstyttunni af Guðríði
Þorbjarnardóttur sem stóð á
Laugarbrekku á Hellnum. Stytta
þessi var afhjúpuð aldamótaárið
2000 en það gerði Ólafur Ragn-
ar Grímsson þáverandi forseti
Íslands. Guðríður Þorbjarnardóttir
var uppi um árið 1000 og talin ein
víðförlasta kona heims sem uppi
var á þeim tíma. Hún var talin
fyrsta konan af evrópskum uppruna
sem fæddi barn í Ameríku og var
hún því nefnd Móðir Ameríku.
„Þetta er ómerkilegur þjófnaður,“
sagði Kristinn Jónasson bæjarstjóri
í Snæfellsbæ í samtali við Skessu-
horn, sem sagðist sleginn yfir þess-
um stuldi. Þjófnaðurinn var kærður
til Lögreglunnar á Vesturlandi.
Nýja Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellis-
sandi er nú búin að taka á sig mynd.
Byggingin mun hýsa þjónustumið-
stöð þjóðgarðsins með sýningar-
og kennsluaðstöðu, auk rýma fyrir
starfsmenn þjóðgarðsins, svo sem
skrifstofur, geymslur og aðstöðu
fyrir þjóðgarðsverði. Samtals er
byggingin um 710 fermetrar.
Byggingin samanstendur af tveim-
ur meginbyggingum sem tengj-
ast saman með miðrými. Önnur
byggingin hýsir umsýslu fyrir
daglegan rekstur þjóðgarðsins en
hin starfsemi sem snýr að kennslu,
fræðslu og upplýsingastarfi á hans
vegum.
Verktakafyrirtækið Húsheild
bauð lægst í byggingu Þjóð-
garðsmiðstöðvarinnar í útboði
sumarið 2020. Tilboð þess var um
420 milljónir króna, en kostnaðar-
áætlun Framkvæmdasýslu ríkisins
hljóðaði upp á 475 milljónir króna.
Húsheild reiknar með að skila
húsinu í júní 2022. af
Styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur
stolið af stalli
Styttan meðan allt lék í lyndi
Ljósm. úr safni.
Síðastliðinn laugardag birt-
ist síðan styttan óvænt í Reykja-
vík. Búið var að koma henni fyrir
inni í einhvers konar eldflaug sem
komið var fyrir á bílastæði framan
við Nýlistasafnið í Reykjavík, ásamt
skilaboðum. Samkvæmt heimildum
Skessuhorns voru þjófarnir tve ir
nýlistamenn sem þekktir eru fyrir
að hafa framkvæmt ýmsa gjörn-
inga áður. Sunna Ástþórsdóttir,
safnstjóri í Nýlistasafninu, staðfesti
jafnframt við fréttastofu Vísis að
styttan hafi birst fyrir utan safnið á
laugardag. Einnig að stuldur stytt-
unnar hafi ekki verið í samráði við
Nýlistasafnið.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri í
Snæfellsbæ er einn þriggja núlif-
andi fulltrúa í undirbúningsnefnd
sem beittu sér fyrir því um alda-
mótaárið að afsteypu af listaverkinu
yrði komið fyrir á Hellnum. Krist-
inn sagðist í samtali við Skessu-
horn á sunnudaginn ætla að hitta
að máli fulltrúa Nýlistasafnsins
eftir helgina og þá sem stóðu að
þeim „gjörningi“ að nema stytt-
una á brott. Vonaðist hann til að fá
botn í málið og að því verði lokið
með farsælum hætti þannig að
bronsstyttan komist á stall sinn við
Laugarbrekku sem fyrst. „Það er
aðalatriði í mínum huga að stytt-
an sé komin í leitirnar. Það verð-
ur farið yfir málið,“ segir Kristinn
og bætir við að hlutaðeigandi hafi
skilið nokkuð skýr skilaboð eftir við
styttuna.
Bronsstyttan er afsteypa af styttu
Ásmundar Sveinssonar af Guðríði
og syni hennar, Snorra Þorfinns-
syni. Upphaflega var styttan gerð
fyrir Heimssýninguna í New York
árið 1940. Afsteypu var svo komið
fyrir við Laugarbrekku árið 2000,
en auk þess í New York, Glaumbæ í
Skagafirði og í Páfagarði. mm
Styttulaus stallur síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. af.
Fundaferð Öryrkjabandalagsins
og Þroskahjálpar um landið
Árni Múli Jónasson og Þuríður Harpa
Sigurðardóttir í upphafi eins fundar-
ins. Ljósm. ÖBÍ.
Vel gengur með byggingu þjóð
garðsmiðstöðvar á Hellissandi