Skessuhorn - 12.04.2022, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Ofgnótt umfjöllunarefnis
Núna dettur mér helst í hug orðin of eða van. Stundum á ég í vandræðum
með að finna mér eitthvað til að fjalla um þegar kemur að því að skrifa þenn-
an pistil, stundum er ofgnótt umfjöllunarefnis. Oftast er ég komin aftarlega
á gráu merina þegar ég kem því í verk, en ekki núna. Umræðuefnið skortir
alls ekki. Ég gæti mögulega skrifað um kvensniftirnar tvær sem tóku sig til og
stálu fallegri bronsstyttu af Guðríði heitinni Þorbjarnardóttur vestur á Helln-
um. Konur þessar kenna sig við list, lesist nýlist. Mér segja fróðir menn að þær
hafi áður við listsköpun sína meðal annars unnið sér til frægðar að hafa kúkað
á kjörseðla. Vafalaust til að koma einhverjum gagnmerkum skilaboðum á fram-
færi við frambjóðendur. Ekki veit ég það, en heldur vil ég koma skoðun minni
á framfæri með snyrtilegri hætti.
Þá datt mér vissulega til hugar að skrifa um þá miklu uppákomu sem varð
í teiti Framsóknar sem haldið var til heiðurs bændum í kaupstaðarferð. Í
þessu boði var sannarlega setið lengur við drykkju en bæði gestgjafar og gest-
ir gátu með góðu móti þolað. Ákveðið var síðla nætur að jafnhenda í mynda-
töku konunni sem starfar sem framkvæmdastjóri bænda. Ekki veit ég alveg í
hvaða tilgangi sú myndataka var og mér er til efs að nokkur viti það almenni-
lega. Heimildir hef ég þó fyrir því að þegar þarna var komið sögu í teitinu hafi
verið búið að fylla rækilega á vínlagerinn til að gleðskapurinn myndi örugg-
lega endast að minnsta kosti til morguns. Þannig voru jú almennilegar drykkju-
veislur forðum, allavega á tímum landsnámsmanna. Nú, þarna um miðja nótt
tókst ekki betur til en svo að rasísk ummæli voru látin falla um svipað leyti
og myndinni var smellt af. Sjaldan hefur náðst jafn góð rauntímamynd af jafn
umdeildu atriði Íslandssögunnar. Nú málið þótti slæmt og olli fjaðrafoki utan
þings sem innan, en leystist með sáttafundi þar sem formaðurinn baðst afsök-
unar á orðum sem hann sjálfur vildi ekki láta hafa eftir sér hver voru. Eina sem
ég velti fyrir mér í framhaldi þessa risastóra máls er hvort einhver á Alþingi
muni leggja það til að veiting áfengis og annarra vímuefna í boði þingflokka,
þings, ráðuneyta, forsetaembættis eða opinberra aðila verið bönnuð. Af hverju
eiga skattborgarar annars að borga fyrir búsið þegar menn kunna ekki betur en
þetta að höndla það?
Nei, ég ákvað að þetta efni væri ekki boðlegt í heilan leiðara. Þá fór ég að
velta því fyrir mér hvort ég ætti að skrifa um hraklega aðferð fjármálaráðherra
við að selja tæpan fjórðu ngs hlut í einum ríkisbankanum. Ekki seldi hann þetta
sjálfur, heldur fékk æskuvin og félaga kenndan við Blöndal til verksins í nafni
Bankasýslu ríkisins. Sú fjarlægð er kennd við armslengd og því taldi ráðherr-
ann sig stikkfrí í málinu. Til stóð að selja þennan hlut svokölluðum fagfjárfest-
um. Vissulega tókst það frábærlega, því meðal annars var leitað í smiðju þeirra
fagfjárfesta sem voru búnir að sýna og sanna að þeir eru raunverulegir fagmenn
í að setja heilt þjóðarbú á hausinn. Fjárglæframenn sem kunna að tapa svo mikl-
um peningum annarra hljóta hér eftir að verða kallaðir fagfjárfestar. Nei, ég
nenni heldur ekki að verja plássinu til að tala um þá sem bera ábyrgð á þessu
klúðri, borguðu auk þess einhverjum deleröntum 700 milljónir króna af skatt-
peningum okkar í höfundarlaun fyrir vitleysuna.
Nei, loks ákvað ég hvað ég ætlaði að skrifa um, að sjálfsögðu nýjustu lögin
á markaðinum. Ekki lögin á Spotify, heldur lög frá Alþingi. Í einhverju bráð-
ræði voru fyrr í vetur samþykkt lög sem meðal annars fjalla um hæfi fólks til
setu í kjörstjórnum. Við erum nefnilega að fara í hreppsnefndarkosningar eftir
mánuð. Eitthvað virðist hafa gleymst að lesa faglega yfir þessi lög áður en
Alþingi samþykkti þau í blindni. Það nefnilega hefur komið í ljós að það verð-
ur alls ekki framkvæmanlegt að fara eftir þeim. Áður gat fólk ekki tekið sæti í
kjörstjórn ef foreldrar, börn, systkini eða maki voru í framboði. Nú á það hins
vegar einnig um afa, ömmur, systkini foreldra og maka þeirra. Einnig tengda-
börn, barnabörn og nánast öll önnur fjölskyldutengsl. Góð kona benti á að nú
væri lán í miklu óláni að von væri á nokkur hundruð flóttamönnum til landsins.
Þeir fá vafalítið störf í kjörstjórnum, enda þeir einu sem gætu með DNA rann-
sókn sýnt fram á að þeir hafa ekki þau tengsl við frambjóðendur sem forboðið
er í nýju lögunum. Allt þetta klúður fær mig til að efast um að markmiðið um
vímuefnalaust Alþingi árið 2020 hafi tekist.
Magnús Magnússon
Um helgina luku 19 nýliðar sex
mánaða æfingaferli Slökkviliðs
Borgar byggðar. Þá lauk stór hluti
hópsins einnig grunnmenntun
slökkviliðsmanna hjá Húsnæðis-
og mannvirkjastofnun sem sér um
löggildingar slökkviliðsmanna. Fram
kemur á vefsíðu Borgarbyggðar að
þessi hópur sem útskrifaðist um
helgina er nú kominn á útkallaskrá
slökkviliðsins.
vaks
Línubáturinn Sverrir SH frá
Ólafsvík hefur farið nokkra róðra
á steinbítsmiðin út af Látrabjargi
að undanförnu og fengið góðan
afla, eða allt að ellefu tonn í róðri.
Á föstudag kom báturinn að landi
með tíu tonn sem fengust á 34 bala.
Örvar Marteinsson skipstjóri segir
að þeir hafi verið með 24 bala í sjó
og látið þá liggja í sólarhring, en þá
safnast steinbíturinn á línuna sem
gefur bestan árangur.
„Við tókum svo tólf bala með
okkur þegar við fórum út um
nóttina og lögðum þá áður en við
byrjuðum að draga þá bala sem
voru þegar fyrir í sjónum. Við dróg-
um þessa tólf bala í restina svo þeir
fengju lengri legu. Það er langt að
fara eftir steinbítnum, en það spáði
að venju brælu um helgina svo við
vorum bara í landi á meðan brælan
gekk yfir,“ sagði Örvar í samtali við
Skessuhorn.
Steinbíturinn fer mest til Frakk-
lands þar sem hann þykir lostæti.
Um leið og vel fiskast af steinbít
lækkar verðið á honum hratt og var
113 krónur á mörkuðum á föstu-
daginn.
af
Varnaræfingin Norður-Víkingur
2022 stendur nú yfir vestan við
landið og inni á Hvalfirði. Fyrir-
fram var búið að dagsetja æfinguna
dagana 2.-14. apríl. Í gær fór fram
lendingaræfing bandarískra land-
gönguliða á Miðsandi í Hvalfirði
og fylgdi henni talsverð umferð
skipa, báta og kafbáta.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011
sem æfingin Norður – Víkingur
er haldin. Um er að ræða tvíhliða
varnaræfingu Íslands og Banda-
ríkjanna en einn helsti hápunkt-
ur æfingarinnar var æfing land-
töku landgönguliða bandaríska
sjóhersins af sjó. Þótti besti stað-
urinn fyrir þann hluta æfingarinn-
ar vera Miðsandur í Hvalfirði, fjar-
an sem liggur á milli Hvalstöðvar-
innar og gömlu olíubryggjunnar.
Landgönguæfingin fór þannig
fram að móðurskip sjóhersins lá
við stjóra utarlega í firðinum og
frá því sigldu landtökupramm-
ar og svifnökkvar með liðsaflann
sem taldi nokkur hundruð dáta.
mm
Nýútskrifaðir slökkviliðsmenn í Borgarbyggð. Ljósm. Rolando Diaz
Slökkvilið Borgarbyggðar
útskrifar 19 nýliða
Steinbítsvertíðin er að glæðast
Benedikt Sveinbjörnsson og Örvar Marteinsson um borð í Sverri SH áður en
löndun hófst, en um eitt tonn af þorski var sem meðafli.
Sverrir SH var vel siginn þegar hann kom að landi með tíu tonn og 34 bala um borð.
Móðurskip sjóhersins lá við stjóra utarlega í Hvalfirði og frá því sigldu land-
tökuprammar og svifnökkvar með liðsaflann í land. Myndin er tekin á afar
friðsömum laugardegi fyrr í vetur. Ljósm. mm.
Talsvert hernaðarbrölt í gangi