Skessuhorn - 12.04.2022, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2022 9
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Gleðilega páska
Opið um páskana eins og venjulega.
Sama góða þjónustan eins og alla hina dagana.
Skírdagur, 12-14.
Föstudagurinn langi, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Laugardagur 16. apríl, 10-14.
Páskadagur, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Annar í páskum, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Íslandsmeistaramótið í sundi í 50
metra laug fór fram um helgina í
innilauginni í Laugardalslaug þar
sem flestir af bestu sundmönnum
landsins tóku þátt og sendi Sund-
félag Akraness alls sjö keppendur á
mótið í ár. Á föstudaginn uppskáru
keppendur ÍA ein bronsverðlaun,
Akranesmet og þrjú landsliðslág-
mörk. Kristján Magnússon vann til
bronsverðlauna í 50 metra skrið-
sundi á tímanum 24,71 sek. sem
er nýtt Akranesmet í piltaflokki
(15-17 ára). Með þessu sundi synti
Kristján sig inn í unglingalands-
liðið.
Á laugardaginn bættu þau í safnið
einu silfri, tveimur Akranesmetum
og lágmörkum á Evrópumeistara-
mót unglinga. Einar Margeir vann
silfur í 50m bringusundi á tíman-
um 29,17 sek. sem er bæði Akra-
nesmet og undir lágmarki á EM
unglinga sem fer fram í Rúmeníu í
sumar. Þessi tími er næst besti tími
sem hefur verið syntur á Íslandi í
piltaflokki. Einungis sigurvegari
greinarinnar, Snorri frá SH, hefur
synt þessa grein hraðar en Snorri
synti á 29,08 sek.
Á sunnudaginn bættust við
tvö silfur og eitt brons. Krist-
ján Magnús son vann silfur í 200m
skriðsundi á tímanum 2.02.79.
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdótt-
ir vann brons í 100m skriðsundi á
tímanum 59.55 og Einar Marge-
ir fékk silfur í 200m bringusundi á
tímanum 2.26.21 sem er nýtt Akra-
nesmet, gamla metið var 2.28.33
sem Hrafn Traustason átti frá árinu
2008. vaks
Kátir keppendur ÍA á mótinu um helgina. Ljósm. Sundfélag Akraness
Góður árangur hjá Sund
félagi Akraness um helgina