Skessuhorn - 12.04.2022, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2022 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
RAFRÆN UMSÓKNARGÁTT
Á vef SSV er rafræn umsóknargátt
Kynnið ykkur vel reglur og viðmið
varðandi styrkveitingar
Allar nánari upplýsingar á
www.ssv.is
OPIÐ ER FYRIR UMSÓKNIR Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ
10. MAÍ 2022
2
0
2
2
ÚTHLUTUN JÚNÍ 2022
STYRKIR TIL ATVINNUÞRÓUNAR & NÝSKÖPUNAR
AÐSTOÐ VIÐ UMSÓKNIR
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707
EKKI ER VERIÐ AÐ VEITA STYRKI TIL MENNINGARVERKEFNA Í ÞESSARI ÚTHLUTUN
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Breyting á deiliskipulagi fyrir
Ólafsdal við Gilsfjörð
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sín-
um 5. apríl 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á
deiliskipulagi fyrir Ólafsdal við Gilsfjörð í samræmi
við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin fellst í stækkun skipulags-
svæðisins til að koma fyrir merktum gönguleiðum um
dalinn, áningarstöðum með upplýsingaskiltum, prílum
yfir girðingu og skógrækt. Þá eru nokkrir byggingar-
reitir stækkaðir og byggingarreit fyrir salernisaðstöðu
við bílastæði og tjaldsvæði við tóvinnuhús bætt inn á
uppdrátt. Einnig er legu aðkomuvegar breytt lítillega.
Tillagan er sett fram á deiliskipulagsuppdrætti í
mælikvarðanum 1:1000 og skýringaruppdrætti í
mælikvarðanum 1:7500 auk greinargerðar dags.
18.03.2022.
Gögnin munu vera til sýnis frá 8. apríl 2022 á skrifstofu
Dalabyggðar, Miðrbraut 11, 370 Búðardal
Umsögnum, ábendingum og athugasemdum skal
vinsamlegast skila til skrifstofu Dalabyggðar í stjórn-
sýsluhúsinu að Miðbraut 11 Búðardal, eða á netfang
embættis skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins:
skipulag@dalir.is fyrir 20. maí 2022.
Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi.
Þriðjudaginn 29. mars síðast-
liðinn komu saman um 300
unglingar í Hjálmakletti í Borgar-
nesi til að skemmta sér saman og
hlusta á hæfileikaríka söngvara
keppa um tvö sæti í Söngkeppni
Samfés. Æskulýðsballi Óðals og
undankeppni SamVest var að þessu
sinni slegið saman í einn stóran
viðburð en ekki hefur verið hægt
að halda Æskulýðsballið síðustu
tvö ár vegna samkomutakmarkana
vegna heimsfaraldursins.
Ballið sóttu gestir á vegum
félagsmiðstöðva um allt Vestur-
land en viðburðurinn hófst að
venju með söngkeppninni þar sem
níu keppendura af öllu Vestur-
landi stigu á svið og kepptu fyrir
hönd sinna félagsmiðstöðva. Það
var Helga Sóley Ásgeirsdóttir frá
X-inu í Stykkishólmi sem bar sigur
úr býtum eftir glæsilegan flutning
á laginu „It‘s All Coming Back To
Me Now“. Í öðru sæti var Embla
Rós Elvarsdóttir, einnig frá X-inu
og í þriðja sæti Julia Caril frá Óðali
í Borgarnesi.
Vegna reglna um að einungis
megi einn söngvari keppa frá hverri
félagsmiðstöð þá munu þær Helga
Sóley frá X-inu og Julia Caril frá
Óðali keppa fyrir hönd félagsmið-
stöðva á Vesturlandi í úrslitum
Söngkeppni Samfés sem fram fer
30. apríl næstkomandi. vaks
Vorveiðin á sjóbirting hófst 1. apríl.
Fyrstu dagana var mjög kalt í veðri.
Veiðimenn hafa því þurft að klæða
sig vel ætli þeir að halda til veiða.
Þeir sem hafa reynt fyrir sér hafa
margir verið að fiska vel þrátt fyrir
kuldann.
„Já, það var kalt í fyrradag við
Leirá, en við fengum fiska. Það
eru fiskar víða í ánni,“ sagði Stef-
án Sigurðsson, en áin var opnuð
með 26 fiska veiði á fyrsta degi sem
verður að teljast býsna gott. Þessi
byrjun lofaði því góðu og strax um
helgina á eftir voru komnir á land
um 40 fiskar. „Það styttir biðina
eftir að laxveiðitíminn hefjist fyrir
alvöru að renna fyrir sjóbirting,“
sagði Stefán enn fremur.
,,Við fengum nokkra fiska og
konan þann fyrsta á þessu vori,
þetta var fín útivera,“ sagði Þórður
Ingi Júlíusson er við hittum hann
við Grímsá í Borgarfirði á fyrsta
degi veiða. Það voru komnir 14
fiskar á land þegar tíðindamaður
Skessuhorns var á svæðinu.
gb
Helga Sóley sigraði í undankeppni
Sam Vest. Ljósm. Bragi Þór Jósefsson
Helga Sóley sigurvegari
undankeppni SamVest
Bára Einarsdóttir og Harpa Hlín Þórðardóttir við veiðistað 14 í Leirá fyrir nokkrum
dögum.
Leirá að gefa þrátt fyrir kuldatíð