Skessuhorn - 12.04.2022, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 20226
Kosið verður
óhlutbundnum
kosningum
HVALFJ.SV: Enginn fram-
boðslisti barst kjörstjórn
Hvalfjarðarsveitar fyrir
lokafrest á hádegi síðastliðinn
föstudag. Guðmundur Ólafs-
son formaður kjörstjórnar
staðfesti þetta í samtali við
Skessuhorn. Því verður kosið
persónukjöri 14. maí í vor.
Fyrir fjórum árum voru þrír
listar í boði en þeir höfðu allir
kynnt það áður að þeir verði
lagðir niður. Fimm af núver-
andi sveitarstjórnarmönnum
biðjast undan kjöri í persónu-
kosningum, aðrir kjörgengir
verða í kjöri, eða um 500
manns. Þeir sem biðjast undan
endurkjöri sitja allir í núver-
andi sveitarstjórn. Það eru:
Björgvin Helgason, Daníel
Ottesen, Guðjón Jónasson,
Brynja Þorbjörnsdóttir og
Ragna Ívarsdóttir. - mm
Persónukjör
verður í Dölum
DALABYGGÐ: Enginn
framboðslisti var lagður fram
til kjörstjórnar Dalabyggðar
þegar framboðsfrestur rann út
á hádegi á föstudag. Einn listi,
Framsóknir og frjálsir, hafði
verið kynntur til leiks fyrr í
vikunni, en hann var ekki lagð-
ur fram þegar á reyndi í ljósi
þess að aðrir listar voru ekki
væntanlegir. Valdís Einars-
dóttir, sem sæti á í kjörstjórn,
staðfestir því að kosið verður
óhlutbundnum kosningum í
Dalabyggð 14. maí í vor. -mm
Ný brunavarna
áætlun undirrituð
SNÆFELLSBÆR: Föstu-
daginn 1. apríl var ný bruna-
varnaáætlun fyrir starfssvæði
Slökkviliðs Snæfellsbæjar
samþykkt og undirrituð af
forstjóra Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar. Á vef Snæfells-
bæjar kemur fram að á síðustu
mánuðum hafi HMS unnið
markvisst að því að styðja
slökkviliðin í landinu við gerð
brunavarnaáætlana og er nú
tæpur helmingur slökkviliða í
landinu með gilda áætlun, eða
15 af 32 slökkviliðum landsins.
Markmið brunavarnaáætlun-
ar er að tryggja að slökkvilið
sé þannig mannað, skipulagt,
útbúið tækjum, menntað og
þjálfað að það ráði við þau
verkefni sem því eru falin
samkvæmt lögum. Bruna-
varnaáætlun leggur grunninn
að gæðastjórnun og úttekt
á starfsemi slökkviliða fyrir
þá aðila sem bera ábyrgð á
brunavörnum í hverju sveitar-
félagi. Áætlunin auðveldar
einnig íbúum sveitarfélagsins
að fá upplýsingar um veitta
þjónustu, skipulag slökkviliðs
og markmið með rekstri þess
í sveitarfélaginu. -vaks
Símasamband
áfram í Hítardal
MÝRAR: Síðastliðinn mánu-
dag stóð til að símafyrirtækið
Vodafone aftengdi bæinn Hítar-
dal í Hraunhreppi í Mýrasýslu
frá fastlínu símakerfisins. Við
þá aðgerð hefði símasamband
við bæinn rofnað nær alfarið
því GSM samband næst ekki
á svæðinu, internetsamband
getur dottið út og ljósleiðari
er ekki kominn á bæinn. Finn-
bogi Leifsson bóndi í Hítardal
upplýsti byggðaráð Borgar-
byggðar um þetta fyrir stuttu
og óskaði eftir að sveitarfélagið
setti sig í samband við Vodafo-
ne vegna málsins. Var það gert
og í fundargerð byggðarráðs
frá því sl. fimmtudag kemur
fram að fengist hafi í gegn að fá
því frestað að taka heimasíma-
tenginguna úr sambandi. Hlýt-
ur tryggt símasamband að vera
gríðarlegt öryggismál á þess-
um slóðum, en skemmst er að
minnast stórrar skriðu sem féll
þar sumarið 2018. Til stendur
að leggja ljósleiðara að Hítardal
og er talið brýnt að gott síma-
samband haldist með öðrum
hætti fram að því. -gj
Tveir fánar
blöktu eftir
sólsetur
AKRANES: Tilkynnt var um
tvo fána um helgina sem blöktu
við hún eftir sólsetur sem er
brot á fánalögunum. Annar var
við sundlaugina á Jaðarsbökk-
um og var starfsmaður kallaður
út til að taka fánann niður. Hinn
blakti við bensínstöð við Esju-
braut og var hann tekinn niður
af lögreglu. Sá fáni er geymdur
á lögreglustöðinni og bíður þess
að verða sóttur. -vaks
Nú liggur fyrir að ný kosningalög,
sem meðal annars kveða á um hæfi
kjörstjórnarmanna, munu setja
kosningaundirbúning í mörgum
sveitarfélögum í uppnám. Nýju
lögin tóku gildi um áramótin og
mun í sveitarstjórnarkosningunum
14. maí í fyrsta skipti reyna á þau.
Sérstakar breytingar voru gerðar
á reglum um hæfi kjörstjórnar-
manna. Áður gat fólk ekki tekið
sæti í kjörstjórn ef foreldrar, börn,
systkini eða maki voru í framboði.
Nú á það einnig við um afa, ömmur,
systkini foreldra og maka þeirra.
Einnig tengdabörn, barnabörn og
nánast öll önnur fjölskyldutengsl.
Nokkurn veginn er samdóma
álit allra kjörstjórnarmanna sem
Skessuhorn hefur rætt við að þess-
ar nýju reglur eru til trafala. Svo
tekið sé dæmi á Akranesi, þá hefur
öll yfirkjörstjórnin þurft að víkja
og sumir varamenn sömuleiðis
reynst vanhæfir. Sveitarfélög reyna
að mætti að bregðast við. Þannig
auglýsti Borgarbyggð í gær eftir
fólki í kjörstjórn, en þar vantar fólk
í allar kjördeildir.
Loks hefur vakið athygli að svo
virðist sem að þar sem kosið verð-
ur óbundnum kosningum, það er
að segja þar sem persónukjör fer
fram, að ekki er tekið fram að full-
trúar í kjörstjórn séu undanþegn-
ir hæfisskilyrðum umfram þau
sveitarfélög þar sem kosið verð-
ur listakosningum. Lögin gera
vissulega ráð fyrir að þar séu allir
í kjöri og þar með einnig fulltrú-
ar í kjörstjórn, sem þá er ræki-
lega vanhæf. Þar af leiðandi verð-
ur að teljast óvíst hvort kjörstjórnir
t.d. í Hvalfjarðarsveit, Skorradals-
hreppi, Eyja- og Miklaholtshreppi
og Dalabyggð séu hæfar. Vafalítið
mun Alþingi verða að bregðast við
þessari stöðu.
mm
Veiðifélög Norðurár og Gljúfurár
í Borgarfirði héldu nýverið félags-
fundi. Á báðum þessum fundum var
samþykkt samhljóða áskorun sem
snýr að sjókvíaeldi á laxi við landið.
Þar segir að: „…skorað er á
stjórnvöld, stjórnmálamenn, stofn-
anir og félög sem um málið ættu að
fjalla, svo sem MAST og Borgar-
byggð og marga fleiri, að beita sér
fyrir því að stöðva eða að minnsta
kosti draga úr þeim náttúruspjöll-
um, dýraníði, umhverfisspjöllum
og sóðaskap sem nú á sér stað í
miklum mæli við eldi á frjóum laxi í
sjókvíum. Krafan er að vegna dýra-
verndunar, náttúru og umhverfis-
sjónarmiða verði sjókvíaeldi flutt
upp á land og verði í lokuðum
hringrásarkerfum.“
Að sögn forsvarsmanna félag-
anna verður ályktunum þessum
komið á framfæri við þar til bær
stjórnvöld; alþingismenn og fleiri
sem hafa með lagasetningu og
regluverk í landinu að gera.
mm
Atkvæði greitt á Akranesi í kosningum til Alþingis 2013.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Ný kosningalög meingölluð
Veiðifélög álykta um sjókvíaeldi á laxi