Skessuhorn - 12.04.2022, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2022 19
Krossgáta Skessuhorns
Auðvelt
Ýkjur
Leir
Eyrar
Dæld
Hlífa
Reyrir
Reifi
Röst
Rot
Gripur
Innyfli
Bið
Óhress
Sérstök
Elskar
Hóg-
værð
Varma
Blíða
Óhóf
Ókunn
Athugul
Afkom-
anda
Fræg
Korn
Braut
Fjöldi
Skel
Hús-
feyja
Storð
Hrun
Gat
9
Tvíhlj.
Málmur
Fórn
Ras
Kopar
1
Ungfrú
Erta
Sk.st.
Hvorki
Næði
Spurn
Kot-
roskinn
Skylda
Skoðun
Æfur
Spakur
4 Hætta
Þjálf-
aður
Lít
50
Storð
Sæll
5 Vangur
Titill
Ögn
Lögg
Planta
Krókur
Rugga
Geta
Eink.st.
Vík
Maður
Neyttum
3
Átt
Fen
Dyl
Kirtil
Kylfa
6
Hönd
Vafi
Kleif
Nóran
Skortur
Hvarm-
ur
Eldstó
Hlíð
Grund
Skamm-
ir
8
Skipar
10
Ólatir
Nef
Leit
Á fæti
Elds-
neyti
Bogi
Sk.st.
Flýtir
Bardagi
Önugur
Hneisa
2
Hópur
Röð
Sannur
Vottar
Blunda
Sverta
Hrönn Leyfist
Brotleg
Finna
leið
Lend
Aurar
Áhald
1000
Á flík
Far
Duft
7
Afa
Stýra
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Krossgáta er birt
í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausn-
arorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á
mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og
heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Garðabraut 2A, 300
Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni
eftir að hún birtist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær
vinningshafinn bók að launum.
Í síðustu krossgátu var rétt lausn „Fjölkynngi“. Heppinn þátttakandi
var Sigurður Örn Búason, Dalsflöt 9, 300 Akranesi.
V Á A D A M Æ T A K U
B O R G U N R Á S Í T U R
Á G A N G N O S T U R T
B U K K A O F F R A Ó K U
I N N I R F Ö G U R S M Á N
L J Á R A H A M S T U R D
J Á R N N U T U P Ö R I N
U X I A R Ð A S M E K K Ó
R U D L A G T I L R A U N
D Á A F R E K Ó N A
S K A R E R O K U R F R
V Æ R K R A M K R A R O
A R A R L A M P I F R Ó Ð
L Á J A S K E L M Á
I L L Á Á V A L I Ó L A R
R A U L B R Æ Ð I G N Ó T T
E R M A L L M A Ð U R A A
Y L A R Á A D Á R Á T A L
F J Ö L K Y N N G I
Dagur í lífi...
Nafn: Sölvi G. Gylfason
Fjölskylduhagir/búseta: Giftur
Guðríði Hlíf Sigfúsdóttur og við
eigum tvö börn, Kristmar Val 4 ára
og Þórdísi Hrefnu 7 mánaða. Við
fjölskyldan búum í rólegri götu í
Borgarnesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Fram-
haldsskólakennari í Menntaskóla
Borgarfjarðar og spilandi þjálf-
ari meistaraflokks Skallagríms í
fótbolta.
Áhugamál: Íþróttir og hreyfing,
aðallega fótbolti og svo er golfið
að koma sterkt inn. Ég les mikið
og finnst gaman að bæta við mig
þekkingu með því að lesa, hlusta
á hlaðvörp, horfa á kvikmyndir og
heimildamyndir og fylgjast með
málefnum líðandi stundar. Ég hef
líka gaman af því að ferðast og njóta
tímans með fjölskyldunni.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 7.
apríl
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð
ir? Ég vaknaði klukkan 7 með
fjölskyldunni og það fyrsta sem
ég gerði var að taka vítamínin og
bursta tennurnar.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég fékk mér lýsi og svo All-bran
með hleðslu en ég er mikið að vinna
með hleðslu á morgnana.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Við Kristmar Valur
lögðum saman af stað hjólandi um
klukkan 8, hjóluðum í leikskólann
og ég hjólaði svo áfram í vinnuna.
Fyrstu verk í vinnunni? Fyrsta
verk í vinnunni var að sjálfsögðu
að fá mér kaffi og fara yfir málefni
líðandi stundar með samstarfsfólki
mínu. Fljótlega eftir það fór ég að
undirbúa kennslu dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Þá fékk ég mér annan kaffi og tók
aðra umferð í málefnum líðandi
stundar með samstarfsfélögum.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Í
hádeginu borðaði ég hádegismat í
mötuneyti MB hjá henni Sólrúnu
og í þetta skiptið var um að ræða
snitzel og kartöflugratín. Sólrún
er sennilega einn besti matráður á
landinu. Það kemur fyrir að maður
sér nemendur oftar í mat hjá henni
en í tímum.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Klukkan 14 kláraði ég síðustu
kennslustund dagsins, fékk mér
kombuchadrykk og fór svo yfir
nokkur verkefni.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Ég hætti um
klukkan 15:45 og það síðasta sem
ég gerði í vinnunni var að undirbúa
næsta kennsludag.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Eftir
vinnu hjólaði ég að sækja strákinn
minn í leikskólann og við hjóluðum
svo heim. Þegar við komum heim
vorum við fjölskyldan bara í róleg-
heitum, við Kristmar vorum að
teikna og leika og svo var ég líka að
leika við dóttur mína hana Þórdísi
Hrefnu.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var lasagna og það var
Kristmar Valur sem sá um elda-
mennskuna ásamt mömmu sinni
sem hafði umsjón með eldamennsk-
unni. Ég gekk hins vegar frá!
Hvernig var kvöldið? Ég kom
Kristmari Val í háttinn. Svo las
ég aðeins. Tók smá hjólaæfingu á
trainer og endaði svo kvöldið á því
að horfa á Unsolved mysteries á
Netflix.
Hvenær fórstu að sofa? Ég sofn-
aði næstum yfir Netflix þættinum
í stofunni og áttaði mig á því að
sennilega væri bara best að koma
sér upp í rúm. Held ég hafi sofnað
um klukkan 22:30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Fór í sturtu, burstaði tennurnar og
tók smá hugleiðslu í Headspace
appinu.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Sennilega að hafa varið
góðum tíma með fjölskyldunni og
hafa átt fínasta dag í vinnunni.
Eitthvað að lokum? Ég skora á
Skessuhorn að senda Sigurði Erni
Sigurðssyni aka Sössa að taka þátt
í ,,Dagur í lífi“ en hann er einstak-
lega menningarlega sinnaður og
fagnar því að brjóta upp hvers-
dagsleikann. Þá vil ég hrósa stjórn-
endum Borgarbyggðar fyrir að hafa
loksins sett fjármagn í uppbyggingu
íþróttamannvirkja í Borgarnesi í
fjárhagsáætlanir næstu ára. Það
er mikilvægt fyrir sveitarfélög að
vera alltaf á tánum þegar kemur
að umgjörð í kringum íþróttastarf
barna, unglinga og fullorðinna.
Annars bara gleðilega páska!
Framhaldsskólakennara og þjálfara í Borgarnesi