Skessuhorn - 12.04.2022, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 202222
Hvað á að gera um páskana?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Klara Guðbjörnsdóttir
„Njóta þess að vera í fríi.“
Helena Rós Sigurðardóttir
„Vera með fjölskyldunni og
borða nóg af súkkulaði.“
Unnur Sigurðardóttir
„Vera í faðmi fjölskyldunnar og
kíkja í fermingu.“
Jóhanna Elva Ragnarsdóttir
„Hafa það huggulegt og kíkja í
heimsókn í Borgarnes.“
Lilja Gunnarsdóttir
„Skella mér til Köben.“
Pennagrein
Þegar ég bauð mig fram í kosningunum
2018 voru málefni íþróttamannvirkja
eitt af þeim málum sem ég brann hvað
mest fyrir og geri enn. Það er löngu
vitað að núverandi aðstæður til íþrótta-
iðkunar eru ekki góðar og að íþrótta-
húsið í Borgarnesi eins og það er í dag
er barn síns tíma.
Aðstæður til íþróttaiðkunar í Borgar-
byggð eru mjög góðar á sumrin en þá
eru frjálsar íþróttir með mjög góða
aðstöðu sem og knattspyrnan en yfir
vetrartímann vandast málið. Er sá vandi
í raun tvíþættur, bæði eru aðstæður til
knattspyrnuiðkunnar yfir vetrartím-
ann ekki boðlegar auk þess sem íþrótta-
salurinn í íþróttahúsinu annar ekki
eftirspurn. Þessi staða getur komið í veg
fyrir að nýjar íþróttagreinar komist að
en einnig að þröngt er um hvern flokk
á æfingum sem stundum eru aðeins í
hálfum sal o.s.fv. Þá er einnig kominn
tími á ýmiskonar viðhald í núverandi
húsi og þörf á að bæta annars konar
aðstöðu til dæmis fyrir starfsmenn,
íþróttafélög og aðkomu inn í húsið.
Starfshópur skipaður
Á þessu kjörtímabili var vinnunni ýtt
af stað með því að skipa hóp sem hafði
það hlutverk að fara yfir þau gögn sem
höfðu verið unnin síðustu ár í tengslum
við byggingu íþróttahúss og í kjölfarið
leggja til hvar mögulegt sé að byggja
upp nýja íþróttaðstöðu. Samráð var
haft við starfsmenn Borgarbyggðar
sem nýta húsið hvað mest, formenn
íþróttafélaga, UMSB og einnig var
fengin verkfræðistofa til að aðstoða við
vinnu við þarfagreiningu o.fl. Niður-
staða hópsins varð í grófum dráttum
sú að það væri mesta samlegðin í að
byggja við núverandi hús, bæði myndi
það nýtast skólanum betur í íþrótta-
starfi, starfsfólk myndi nýtast betur,
aðgengni fyrir íbúa og notendur betra
og auðveldara að skipuleggja heildstætt
íþróttastarf á svæðinu. Enda er til stað-
ar mikil þörf til endurbóta á aðstöðunni
við núverandi íþróttahús.
Umræðan um nýtt íþróttahús er ekki
ný af nálinni og hefur yfirleitt verið
talað um að það yrði byggt fyrir aftan
núverandi hús, það lá því beinast við
þegar hópurinn var búinn að ákveða að
vilja að uppbyggingin væri á núverandi
svæði, að kanna jarðveginn í kringum
íþróttahúsið til að vita hvar væri raun-
hæft að byggja hús. Hópurinn fekk með
sér ráðgjafa í þessa vinnu og samhliða
var unnin þarfagreining.
Niðurstöður þarfagreiningarinnar
gáfu til kynna að það þyrfti fjölnota-
hús sem myndi rúma knattspyrnuna,
frjálsar íþróttir og að til staðar yrði
göngubraut innandyra sem gæti nýst
eldri borgurum. Í öðru lagi þyrfti nýjan
íþróttasal sem yrði byggður við núver-
andi hús. Auk þess þyrfti að ráðast í alls-
herjar viðhald á núverandi húsi.
Til að byrja með var kannað svæðið á
bak við núverandi íþróttahús og núver-
andi æfingasvæði knattspyrnunnar og
teknar prufuholur til að kanna jarðveg-
inn. Niðurstöður sýndu að ekki væri
æskilegt að reisa hús á hvorugum staðn-
um þar sem núverandi æfingavöllur er
búinn til úr allskyns uppfyllingarefni og
þar þyrfti að jarðvegsskipta og væntan-
lega langan sigtíma áður en hægt væri
að byggja þar sem er mjög kostnaðar-
samt. Svipaða sögu er að segja með
svæðið á bakvið núverandi íþróttahús.
Því var haldið áfram að rannsaka svæðið
til að finna hvar væri best að byggja við.
Teknar voru fleiri prufuholur í kring-
um húsið meðal annars á bílastæðinu
hægra megin við húsið og þar sem
körfuboltavöllurinn er milli íþróttahúss
og UMSB húss. Í ljós kom að þessi svæði
áttu bæði að henta vel til uppbyggingar
sér í lagi á klöppinni milli íþróttahúss
og Þorsteinsgötu 5 en það myndi þýða
að kaupa þyrfti upp fasteign til að koma
því fyrir og eins væri hægt að setja lítið
fjölnotahús á körfuboltavöllinn milli
íþróttahús og UMSB húss.
Það segir sig sjálft að byggja tvö
hús annað fjölnota og parketsal í
viðbyggingu við núverandi hús eru ansi
háleit markmið og mjög kostnaðar-
samt eins og tillögur hópsins voru
fyrir lokafund um skýrsluna. Þar að
auki hefði fjölnotahúsið þurft að vera
frekar lítið og myndi ekki anna allri
þörf knattspyrnudeildarinnar. Við lok
vinnunnar kom knattspyrnudeildin
með tillögu þess efnis að það væri
líklega betri kostur að setja gervigras á
æfingasvæðið. Sú hugmynd hefur síðan
þróast í að setja gervigras á núverandi
knattspyrnuvöll.
Framhaldið
Um þessar mundir er að taka til starfa
bygginganefnd íþróttamannvirkja
í Borgarnesi þar sem þessari vinnu
verður haldið áfram og unnið út frá
rannsóknum og þarfagreiningum sem
hópurinn hefur látið gera. Ráðinn
verður verkefnastjóri á næstu dögum/
vikum og í kjölfarið skipaður samráðs-
hópur hagaðila sem verður til ráðgjafar
og samráðs við byggingarnefndina á
næstu stigum málsins.
Nýlega kom niðurstaða úr prufuhol-
um á núverandi knattspyrnuvelli sem
gaf til kynna að það svæði myndi henta
mjög vel fyrir gervigras sem og er búið
að ganga frá kaupum á Þorsteingötu 5
og á árinu eru áætlaðar um 400 millj-
ónir í þetta verkefni. Vinna við að bæta
íþróttaaðstöðu í Borgarnesi mun því
hefjast á þessu ári og vonandi á næsta
kjörtímabili munum við sjá aðstöðuna
okkar batna með hverju árinu.
Þessi vinna hefur tekið langan tíma
og því er ekki að neita að þar hefur
ýmislegt spilað inn í sem ekki verð-
ur rakið hér. Þegar farið er af stað
í svona umfangsmikil fjárfestinga-
verkefni er nauðsynlegt að vanda til
verka. Reynslan hefur kennt okkur að
það borgar sig að hafa belti og axlar-
bönd áður en lagt er á stað og endan-
leg ákvörðun tekin. Er það sérstak-
lega mikilvægt til að minnka líkur á því
að upp komi óvæntar áskoranir og til
þess að mögulegt sé að gera raunhæfar
kostnaðaráætlanir. Þetta eru mjög fjár-
frekar framkvæmdir en að setja gervi-
gras á núverandi völl getur kostað um
og yfir 300 milljónir með öllu og nýr
parketsalur gæti kostað milli 6-800
milljónir og þá er ekki talinn með
kostnaður við endurbætur á núverandi
íþróttamannvirkjum.
Silja Eyrún Steingrímsdóttir
Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í
Borgarbyggð
Uppbygging íþrótta
svæðis í Borgarnesi
Bingóþyrstir Skagamenn og
nærsveitungar hafa haft í nógu að
snúast undanfarið. Nýverið stóð
Tinna Ósk Grímarsdóttir og vinir
hennar fyrir fjölskyldubingói á sal
FVA til stuðnings Krabbameinsfé-
lagi Akraness og nágrennis og sama
dag hélt umhverfisnefnd Heiðar-
skóla í Hvalfjarðarsveit bingó til
styrktar hjálparstarfi í Úkraínu.
Síðastliðinn miðvikudag buðu
svo útskriftarnemar Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi upp á
páskabingó í sal skólans til að safna
fyrir útskriftarferð sinni til Krítar í
sumar. Bingóið átti að byrja klukkan
átta en var seinkað til hálf níu vegna
þess að mikill fjöldi bingóunnenda
var mættur og biðröð myndaðist
alla leið að inngangi skólans. Mikil
og góð stemning var og spilaðar 15
umferðir þar sem fullt af glæsileg-
um vinningum voru gefnir af fyrir-
tækjum á Akranesi og nágrenni.
Bingóstjórar kvöldsins voru þær
Salka Brynjarsdóttir og Sólrún
Lilja Finnbogadóttir og stóðu þær
sig með mikilli prýði. Sá háttur
var á að ef fleiri en einn voru með
bingó í hverju spili þá var dreg-
ið úr spilastokk og sá sem var með
hæsta spilið fékk vinninginn. Það
voru því margir sáttir vinningshafar
sem gengu út í nóttina rétt eftir tíu
um kvöldið eftir vel heppnað bingó
útskriftarnema í FVA. vaks
Mikill fjöldi á páskabingói útskriftarnema FVA
Sólrún Lilja og Salka voru Bingóbjössar kvöldsins. Salurinn var troðfullur og var bætt við stólum og borðum
þar sem hægt var svo allir fengju sæti.
Íþróttamaður vikunnar
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta-
manna úr alls konar íþróttum á
öllum aldri á Vesturlandi. Íþrótta-
maður vikunnar að þessu sinni er
knattspyrnumaðurinn Ísar Ólafur
úr Hvalfjarðarsveit.
Nafn: Ísar Ólafur Ísaksson
Fjölskylduhagir? Ég bý í
Melahverfi með mömmu og pabba
og ég á tvær systur.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru fótbolti
og körfubolti.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir? Ég
fer í skólann, svo eftir skóla fer ég
bara heim og þangað til það byrjar
æfing.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Minn helsti kostur er
að ég á létt með að fókusa og minn
helsti galli er að ég verð léttilega
pirraður.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi
fimm sinnum í viku.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt
um? Mín fyrirmynd í fótbolta er
Neymar.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Ég hef bara alltaf spilað fótbolta
síðan ég var lítill.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Máni frændi minn.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þínar íþrótt
ir? Skemmtilegast er að keppa og
leiðinlegast eru hlaupaæfingar.
Máni frændi er fyndnastur