Skessuhorn - 12.04.2022, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2022 23
Á miðvikudaginn í síðustu viku
var haldið Páskasundmót á vegum
Ungmennafélaganna Víkings og
Reynis í sundlauginni í Ólafsvík.
Þrettán ungir og upprennandi
sundkappar sem æft hafa sund í
vetur tóku þátt og stóðu sig eins
og hetjur. Eva Hannesdóttir hefur
þjálfað sund í vetur en hún hefur
sjálf æft og keppt í sundi og hefur
Stefanía Klara Jóhannsdóttir
aðstoðað hana. Í lok mótsins fengu
allir þátttakendur svo páskaegg og
þátttökupening. Heppnaðist mótið
mjög vel og fóru allir kátir heim.
Vildu aðstandendur mótsins fá að
koma á framfæri kæru þakklæti til
KG fiskverkunar fyrir að gefa þeim
þátttökupeningana og Bárðar SH
fyrir páskaeggin. þa
Kári tók á móti liði Árborgar
í 1. umferð Mjólkurbikarsins í
knattspyrnu karla í hádeginu á
laugardaginn og fór leikurinn fram
í Akraneshöllinni. Kári gerði út um
leikinn í fyrri hálfleik með þrem-
ur mörkum á átta mínútna kafla.
Fyrst var það Fylkir Jóhannsson
sem skoraði á 35. mínútu og síðan
bættu þeir Ingimar Elí Hlynsson
og Nikulás Ísar Bjarkason við einu
marki hvor fyrir hálfleik. Ekkert
mark var skorað í seinni hálfleik og
lokastaðan því 3-0 fyrir Kára.
Víkingur Ólafsvík heimsótti
sameiginlegt lið Berserkja og
Mídasar á Víkingsvöllinn á laugar-
daginn og vann öruggan sigur, 0-6.
Brynjar Vilhjálmsson kom Víkingi
yfir eftir korters leik og Ísak Máni
Guðjónsson skoraði síðan annað
mark Víkings á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Ísak Máni var aftur á
ferðinni á 50. mínútu áður en
Bjartur Bjarmi Barkarson skoraði
tvö mörk á þremur mínútum fyrir
Víking. Ísak Máni gulltryggði síðan
sigurinn og þrennuna skömmu
síðar, lokatölur 0-6.
Það er því ljóst að Kári og
Víkingur Ó mætast í Vesturlands-
slag í 2. umferð í Mjólkurbikarn-
um laugardaginn 23. apríl í Akra-
neshöllinni um sæti í 32 liða úrslit-
um Mjólkurbikarsins. Liðin voru
saman í riðli í Lengjubikarnum og
þar hafði Víkingur sigur, 3-4 en
leikurinn fór fram um miðjan febr-
úar.
Á sunnudaginn áttu að mætast
í 1. umferð Mjólkurbikarsins lið
Reynis Hellissands og Skallagríms
úr Borgarnesi í Vesturlandsslag
á Ólafsvíkurvelli en leiknum var
frestað vegna vallaraðstæðna þar
sem of mikill snjór var á vellin-
um. Nýr leiktími er ekki ákveðinn
en leikurinn verður líklegast á
miðvikudag klukkan 20 í Ólafsvík.
vaks
Upplestrarkeppni 7. bekkinga í
Reykhóla- og Strandaskólunum
fór fram miðvikudaginn 30. mars
síðastliðinn á Héraðsbókasafni
Reykhólahrepps í Reykhólaskóla.
Fram kemur á vefsíðu hreppsins að
keppnin sé haldin til skiptis á Reyk-
hólum, Hólmavík og Drangsnesi. Í
ár voru alls átta keppendur, sjö frá
Reykhólum og einn frá Hólmavík.
Þrír nemendur úr Reykhóla-
skóla urðu í þremur efstu sætun-
um. Í fyrsta sæti var Ásborg Styrm-
isdóttir, í öðru sæti var Vigdís Lilja
Hjaltadóttir og í því þriðja var
Alexander Óðinn Arnarsson.
vaks
Meistaramót Íslands í badminton
fór fram fimmtudaginn 7. apríl til
laugardagsins 9. apríl í húsum TBR
við Gnoðarvog en Badmintonsam-
band Íslands hélt mótið í samstarfi
við TBR. 145 keppendur voru
skráðir til leiks frá átta félögum og
voru átta keppendur frá Badmint-
onfélagi ÍA sem tóku þátt í mótinu.
Keppt var í úrvalsdeild, 1. deild og
2. deild.
Drífa Harðardóttir frá ÍA varð
Íslandsmeistari í tvenndarleik ásamt
Kristófer Darra Finnssyni frá TBR
í úrvalsdeild en þau sigruðu Eið
Ísak Broddason og Margréti Nils-
dóttur í úrslitum 21-8 og 21-10.
Egill Guðlaugsson og Ármann
Steinar Gunnarsson frá ÍA urðu
Íslandsmeistarar í tvíliðaleik í
2. deild eftir sigur á þeim Jóni
Sverri Árnasyni og Stefáni Einari
Guðlaugssyni í úrslitum 21-10 og
21-9.
Þá fagnaði Egill einnig sigri í
tvenndarleik ásamt Karítas Evu
Jónsdóttur frá ÍA í 2. deild en þau
báru sigur úr býtum gegn þeim
Jóni Sverri Árnasyni og Hrafn-
hildi Eddu Ingvarsdóttur í úrslitum
21-12 og 21-13.
vaks
ÍA lék tvo leiki í liðinni viku í riðli
2 í C deild kvenna í knattspyrnu í
Lengjubikarnum og var sá fyrri á
móti liði KH síðasta þriðjudags-
kvöld og fór leikurinn fram í Akra-
neshöllinni. Um úrslitaleik var að
ræða um sigur í riðlinum og öruggt
sæti í úrslitum C deildar. Það var
ljóst snemma hver tæki það sæti
því Erla Karitas Jóhannesdóttir
kom Skagastúlkum yfir strax á 12.
mínútu og Unnur Ýr Haraldsdóttir
bætti við tveimur mörkum á 28. og
36. mínútu. Bryndís Rún Þórólfs-
dóttir skoraði síðan fjórða mark ÍA
á lokamínútu fyrri hálfleiks og stað-
an 4-0 fyrir ÍA.
Stórskotahríðin hélt áfram í
seinni hálfleik þegar Bryndís Rún
skoraði sitt annað mark á 49.
mínútu og Erla Karitas einnig eftir
rétt rúman klukkutíma leik. Unnur
Ýr náði þrennunni á 63. mínútu og
Erla Karitas einnig sinni þrennu
á 66. mínútu. Það voru síðan þær
Dagbjört Líf Guðmundsdóttir, Ylfa
Laxdal Unnarsdóttir og Sunna Rún
Sigurðardóttir sem innsigluðu stór-
sigur ÍA, lokatölur 11-0 fyrir ÍA.
ÍA lék síðan á laugardaginn
síðasta leik sinn í riðli 2 í C deild
kvenna þegar þær unnu öruggan
sigur á liði Einherja í Bogan-
um á Akureyri. Eftir aðeins fimm
mínútna leik var ÍA komið í 0-2 með
mörkum frá Erlu Karitas Jóhann-
esdóttur og Lilju Björgu Ólafs-
dóttur. Á lokamínútu fyrri hálf-
leiks var Karitas Anja Magnadótt-
ir leikmaður Einherja rekin út af
og því ljóst að róðurinn yrði þung-
ur fyrir heimastúlkur sem varð svo
raunin. Erna Björt Elíasdóttir kom
gestunum í þriggja marka forystu
á 66. mínútu, Ylfa Laxdal Unnars-
dóttir bætti við marki níu mínútum
síðar og það var síðan Erna Björt
sem skoraði sitt annað mark fimm
mínútum fyrir lokaflautið, úrslitin
0-5 fyrir ÍA.
ÍA mætir að öllum líkindum liði
Sindra í undanúrslitum C deild-
ar og er leikurinn áætlaður mánu-
daginn 18. apríl, á annan í páskum,
í Akraneshöllinni klukkan 14.
vaks
Kvennalið ÍA var í æfingaferð á Spáni á dögunum. Ljósm. kfía
ÍA með stórsigra
í Lengjubikarnum
Byrjunarlið Kára í leiknum
gegn Árborg.
Ljósm. af facebook síðu Kára
Kári og Víkingur Ó áfram í Mjólkurbikarnum
og mætast í næstu umferð
Ásborg Styrmisdóttir sigraði upplestr-
arkeppnina.
Ljósm. af vef Reykhólahrepps.
Upplestrarkeppni í 7. bekk á Reykhólum
Héldu Páskasundmót í Ólafsvík
Ármann Steinar, Drífa, Egill og Karítas Eva ánægð með árangurinn.
Ljósm. af facebook síðu BFA
ÍA með fjóra Íslandsmeistara í badminton