Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 20224 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá­ auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli­ og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220kr. Rafræn áskrift til elli­ og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Hæfilega kurteis hverfismávur Ég er svo stálheppinn að hafa vinnustað minn í hæfilegu göngufæri frá heimilinu. Orðið „hæfilegu“ er vandlega valið í þessu samhengi því hvort sem ég væri ennþá eldri og feitari, eða yngri og í fantaformi, væri það nán- ast lögreglumál ef ég færi akandi þessa stuttu leið. Á mánudaginn þegar ég var að opna dyrnar á skrifstofunni stoppar hjá mér eldri maður, nágranni góður. Við erum vel málkunnugir og tókum tal saman þarna í morgunsár- ið. Leikur kvöldsins áður í boltanum var umræðuefnið. Skagamenn höfðu fengið Íslands- og bikarmeistara Víkings í heimsókn og gert sér lítið fyrir og skellt gestunum með þremur mörkum gegn alls engu. Óvænt úrslit en sannarlega gleðileg. Við vorum sammála um að útlitið væri bjart hjá Jóni Þór frænda mínum og hans gulklædda liði. Þarna í hrókasamræðum und- ir húsvegg nefni ég nafn Víkings og hafði ekki fyrr sleppt orðinu þegar stærðarinnar drulluklessa kemur vaðandi á öxlina á mér, ættuð úr óæðri enda svæðismávsins. Sá veit heldur betur hvað hann gargar. Þessi mávur er einmitt sá sami og tyllir sér á ljósastaurinn framan við heimili mitt laust fyr- ir klukkan 18 síðdegis alla daga, ætlar ekki fyrir nokkurn mun að missa af því ef ég eða aðrir nágrannar mínir kynda undir grillinu og bera steikurnar út. Oftar en ekki hefur hann reynt að ná sér í bita af grillborðinu hjá mér, ekki síst ef lambakjöt er þar, nýtir hvert tækifæri ef ég svo mikið sem vík mér frá kjötinu. Oftast hef ég talið að mávar væru með heimskari fuglum. Þarna eftir að hverfismávurinn sendi þessa drulluklessu á öxlina á mér, um leið og ég nefndi nafn Víkingsliðsins, var ég ekki lengur viss í minni sök. Þessi mávur og frændur hans eru nefnilega ekki alveg eins heimskir og þeir líta sannar- lega út fyrir að vera. Til dæmis þegar ég fer á gamla spænska bátnum út til veiða, hér skammt frá ströndinni, eru þeir alltaf komnir, hverfismávurinn og frændur hans, og bíða þess með stóískri ró að einhverju sé gaukað að þeim þegar þorskurinn er flakaður fyrir heimferð. Bera sig fagmannlegar að í því heldur en þegar þeir að næturlagi reyna að veiða ánamaðka á gras- flötinni við húsið okkar. Þó þeir séu þar á heimavelli kunna þeir ekki þá list að veiða maðk. Hlunkast áfram, í stað þess að læðast, og fæla því maðkinn hraðar niður í holurnar sínar en viðbragðsflýti þeirra ræður við. En nú er staðan býsna alvarleg fyrir hverfismávinn minn og frændur hans. Afar skæð fuglaflensa hefur nú borist hingað til lands með farfuglun- um og leggst hún að því er virðist á allan fiðurfénað. Nú berast fregnir af því að hvort sem það eru súlur við Búðir, gæsir á Hornafirði, hrafnar á Suðurlandi eða heimilshænsni í Flóa, allir eru þessir fuglar útsettir fyr- ir smiti fuglaflenskuveirunnar. Þótt vísindamenn telji litlar líkur á að smit berist yfir í okkur mannfólkið, eða önnur spendýr, mæla þeir með að fyllstu varúðar og smitgátar sé gætt. Við eigum að sjálfsögðu að taka á því mark og gæta sóttvarna sérstaklega ef við sjáum dauðan fugl. Við eigum alls ekki að handleika fugla sem mögulega eru taldir smitaðir af fuglaflensu, án til- skilins hlífðarbúnaðar. Svo eigum við að hirða hræin, láta í poka og koma þeim í rannsókn. Eftir að hverfismávurinn, sem heldur dyggilega með gulum og glöð- um, sendi þessi ótvíræðu skilaboð til mín á mánudagsmorguninn fór ég að hugsa; hafði hann mögulega verið búinn að hitta farfugla frá fjarlægum löndum og þar af leiðandi kominn með fuglaflensusmit? Er sjúkdómsein- kennið kannski einmitt það að vera skítandi í tíma og ótíma á axlir saklausra ritstjóra? Var ég þarna kominn með sýkta afurð háloftanna á fötin mín? Ekki þorði ég neinu að treysta, dreif mig því aftur heim, þetta er jú í göngu- færi, skellti úlpunni í þvottavélina og notaði jafnvel ívið meira þvottaefni en ég er vanur. Allur er jú varinn góður og síst vil ég fá fuglaflensu nýstiginn upp úr bansettu kóvitinu. Magnús Magnússon Nýlega lét brunavarnasvið Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar framkvæma könnun á stöðu bruna- varna á heimilum landsmanna. Spurt var um brunavarnir á heim- ilum, flóttaleiðir og annað sem snýr að brunavörnum heimilisins. Í ljós kom að 98% svarenda eru með reykskynjara, 86% með slökkvitæki og 75% með eldvarnarteppi. Þá eru 54% með þrennar brunavarn- ir á heimilinu, 29% tvennar bruna- varnir og 12% eina brunavörn. „Niðurstöðurnar gefa til kynna að brunavarnir eru góðar á mörg- um heimilum sem er ánægjulegt að sjá. Það er jákvætt að fólk hugar að ástandi brunavarna heima fyrir og sé meðvitað um flóttaleiðir og aðgengi að slökkvitækjum. Þá kem- ur fram í tilkynningu frá HMS að dagur reykskynjarans, 1. desem- ber, sem er átak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna (LSS) hefur verið árangurs- ríkt átak í gegnum árin. mm Það var hamagangur í öskjunni þegar áburði var skipað á land á stóru bryggjunni á Akranesi síðast- liðinn föstudag. Skipið heitir Wil- son Newport og flutti stórsekki af áburði sem fara nú til dreifingar í sveitum á Vesturlandi. Það voru starfsmenn ÞÞÞ sem sáu um upp- skipunina. Eins fram hefur komið hefur áburðarverð hækkað mikið frá síðasta ári, er nú tvöfalt dýrara. Engu að síður þurfa bændur sinn áburð þótt vafalítið hafi einkar vel verið vandað til áburðarpantana að þessu sinni. mm/ Ljósm. ki Almenna umhverfisþjónustan vinn- ur þessa dagana hörðum höndum að brjóta upp elsta hluta þekjunn- ar á Grundarfjarðarhöfn en hluti hennar var farinn að síga tölu- vert og kominn tími á endurnýjun. Skipt verður um raflagnir í leiðinni en nýjar og stærri lagnir verða lagð- ar í raftengikassa fyrir skipin. tfk Samkvæmt upplýsingum frá Þjóð- skrá var vísitala íbúðaverðs á höfuð- borgarsvæðinu 869,9 í mars 2022 (janúar 1994=100) og hækkaði um 3,1% á milli mánaða. Síðast- liðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 7,4%, síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 11,6% og síðast- liðna tólf mánuði hækkaði hún um 22,2%. Eins og öllum ætti að vera ljóst er húsnæðisliðurinn stofn til mælingar vísitölu í landinu og þar af leiðandi verðbólgu. Áfram má því búast við að verðbólga verði mikil hér á landi þar sem hvergi sér fyrir endan á hækkun húsnæðis- verðs. mm Íbúðaverð hefur hækkað um tæpan fjórðung á árinu Almennt er góð staða brunavarna á heimilum Samkvæmt könnun HMS hafa 98% heimila reykskynjara. Ljósm. hms.is Dýrmætum áburði skipað á land Gabríel Freyr Atlason er hér með afa sínum Friðriki Tryggva- syni eiganda Almennu umhverfisþjónustunnar. Jóhann Marteinsson starfsmaður stendur hjá þeim. Skipt um elsta hluta þekjunnar á Grundarfjarðarhöfn Verið að moka steypu og járni úr gömlu þekjunni á vörubílspall.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.