Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202214 Þessum árstíma fylgir einatt auk- in hætta á gróðureldum, allt frá því í apríl og fram á mitt sumar þegar nýr gróður hefur náð yfir- höndinni í þurru landi. Eðli máls- ins samkvæmt hafa íbúar áhyggjur af gróðureldum og þá ekki síst íbú- ar í Skorradal þar sem flóttaleið- ir eru fáar og eldsmatur mikill. Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum vakti athygli Skessuhorns á mál- inu og segist hafa fengið þær upp- lýsingar að staðan hjá Landhelgis- gæslunni hvað varðar slökkvi- skjólu sé slæm; eina skjólan sem til er í landinu sé óvirk. „Þetta gerð- ist líka síðasta vor,“ rifjar Hulda upp, en þá voru tugir gróður- elda í landinu í þurru vori. Eina skjólan sem til var þá skemmd- ist í eldum í Heiðmörk og var um tíma engin tiltæk í landinu. Hún segir að eini raunhæfi búnaður- inn til að slökkva skógarelda á frí- stundasvæðum sé slíkur slökkvi- búnaður á allar þrjár þyrlur Land- helgisgæslunnar. Slökkviskjólur geta borið um tvö tonn af vatni og eru hengdar neðan í þyrlu. Þeim er hægt að dýfa í vatn, til dæmis í Skorradalsvatn, og fylla á komi til gróðurelda í dalnum. Nú er engin tiltæk slökkviskóla í landinu, en slíkt líta menn alvarlegum aug- um í ljósi þeirrar gagnsemi sem þær hafa sýnt frá því 2009 þegar sú fyrsta kom til landsins. Gamla skjólan er ónýt Ásgeir Erlendsson upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunn- ar segir í samtali við Skessuhorn að Gæslunni hafi árið 2007 ver- ið afhent slökkviskjóla af Bruna- málastofnun Íslands. Var hún ætluð til slökkvistarfa með þyrlu í eldum sem kviknað höfðu í skóglendi, kjarrlendi og öðr- um gróðri. „Búnaður þessi hef- ur sannað sig í erfiðum tilfell- um þar sem hefðbundnu slökkvi- starfi hefur ekki verið viðkom- ið vegna ýmis konar aðstæðna svo sem fjarlægðar frá vatni, aðgengi- legum vegasamgöngum, erfiðu landslagi og þess háttar. Undan- farin ár hefur búnaðurinn þurft sífellt meira viðhald og í fyrra var ljóst að slökkviskjólan sem afhent var árið 2007 væri orðin ónýt. Þá var ráðist í að kaupa nýja slökkvi- skjólu en Landhelgisgæslan benti á nauðsyn þess að keyptar yrðu allt að þrjár slökkviskjólur og útbún- aður tengdur þeim til að nota við slökkvistörf með þyrlu þar sem um viðhaldsfrekan búnað er að ræða. Slökkviskjólan sem keypt var í fyrra var fjármögnuð af rek- starfé Landhelgisgæslunnar,“ seg- ir Ásgeir. Ekki verksvið Gæslunnar „Landhelgisgæslan hefur vak- ið máls á því við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á undan- förnum árum að nauðsynlegt sé að tryggja framtíðarfyrirkomu- lag og fjármögnun slíks búnað- ar. Landhelgisgæslan geti ekki séð um rekstur slökkviskjólu enda ekki gert ráð fyrir slíku í fjár- framlögum til stofnunarinnar. Í fyrra áætlaði Landhelgisgæslan að tvær slökkviskjólur til viðbót- ar ásamt viðeigandi búnaði til að sinna slökkvistörfum með þyrlu kostaði á bilinu 80 til 90 millj- ónir. Minnis blað þess efnis var sent í viðeigandi fagráðuneyti. Brunamál falla undir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem heyr- ir undir Innviðaráðuneyti,“ segir Ásgeir sem ítrekar að slökkvistarf á landi sé ekki lögbundið hlutverk Landhelgisgæslunnar og falli því ekki undir dómsmálaráðuneytið. „Aftur á móti hefur Landhelgis- gæslan verið tilbúin til þess að aðstoða við slökkvistörf með þyrl- um stofnunarinnar eins og kostur er,“ segir Ásgeir Erlendsson í skriflegu svari til Skessuhorns. mm Engin slökkviskjóla tiltæk í landinu Ekki á verksviði dómsmálaráðuneytis heldur innviðaráðuneytis að bæta úr Núna eru um 80 flóttamenn frá Úkraínu komnir á Bifröst og búnir að koma sér fyrir. Um bráðabirgða- húsnæði er að ræða meðan ver- ið er að greiða götu fólksins varð- andi framtíðar búsetu hér á landi. Að sögn Heiðrúnar Helgu Bjarna- dóttur, verkefnastýru fyrir móttöku flóttafólksins, kom fólkið í þrem- ur hollum, síðasti hópurinn kom síðastliðinn föstudag. „Við höfum bæði verið að fá fólk beint af flug- vellinum en einnig í gegnum Fjöl- menningarsetrið. Þetta eru aðal- lega konur með börn, eitthvað af eldra fólki auk einstaklinga; fjöl- breyttur og ólíkur hópur víða að úr Úkraínu,“ segir Heiðrún. Lögð áhersla á virkni Fólkið hefur fengið úthlutað húsum og herbergjum með sameiginlegu rými í húsum við Hraunin, Garða og Kotin í háskólaþorpinu. Í stærri íbúðum hafa fjölskyldur komið sér fyrir en auk þess býr fólk í húsnæði þar sem eru herbergi með baði en með aðgengi að sameiginlegu eld- húsi og stofu. „Gestirnir borða svo í Hreðavatnsskála þar sem fólk- ið frá Hraunsnefi er staðarhaldar- ar. Nú þegar er meira að segja hluti af hópnum kominn í vinnu hjá þeim við þjónustu og önnur störf. Þetta er hörkuduglegt fólk og mik- ill kraftur í því. Fólkið sem til okk- ar er komið er staðráðið í að gera það allra besta úr aðstæðum sínum og margir stefna á að setjast hér að. Það er svo mitt og okkar hér hjá Borgarbyggð að greiða götu þess eins og kostur er. Fólkið er afskap- lega líflegt, skipulagði til dæmis sjálft plokkdag og fegraði umhverf- ið hér á Bifröst. Þá kennir ein kon- an ensku og allir sem vilja eru komnir í íslenskunám fjórum sinn- um í viku á vegum Símenntunar- miðstöðvarinnar. Loks er samfé- lagsfræðsla á vegum Vinnumála- stofnunar að fara í gang. Við leggj- um mikla áherslu á virkni, bæði af okkar hálfu sem gestgjafa og fólks- ins sjálfs.“ Atvinnutilboð streyma inn Heiðrún segir að búið sé að fara í heimsókn í Grunnskóla Borgar- fjarðar á Varmalandi. „Það eru for- eldrar sem eru áhugasamir um að skrá börnin sín strax í skóla, ekki síst til að þau geti kynnst öðr- um börnum og falli sem fyrst inn í góða rútínu. Það eru 10-15 börn á grunnskólaaldri og einhver þeirra byrja því strax í skólanum. Það er lán að í skólanum á Varmalandi er mikil áhersla lögð á útikennslu á vorin og því eru kjöraðstæður þar til að börnin geti aðlagast aðstæð- um og kynnst jafnöldrum sín- um um leið. Á leikskólaaldri eru 5-6 börn og hefja einhver þeirra aðlögun í leikskólanum Hraunborg nú í byrjun maí. Þá höfum við sett upp leikhorn víðs vegar um svæð- ið, þar sem foreldrar geta hist með börnin sín. Margir komu skömmu fyrir páska og þá var páskafrí í skólunum en sjálfboðaliðar Rauða Krossins sáu um afþreyingu með ýmsum hætti. Margir úr hópnum hafa gengið á Grábrók og skoð- að umhverfið hér i kring og deila upplýsingum og gönguleiðum með restinni af hópnum. Við leggjum áherslu á að nýta svæðið og njóta þessa einstaka umhverfis hér á Bif- röst. Þetta hefur gert það að verk- um að margir hafa lýst því yfir að hér vilji þeir setjast að. Við erum því að greiða götu þeirra sem vilja setjast að í sveitarfélaginu. Það er svo einkar ánægjulegt að það rignir Áttatíu flóttamenn búnir að koma sér fyrir á Bifröst Rætt við Heiðrúnu Helgu verkefnastýru fyrir móttöku fólksins yfir fólkið atvinnutilboðum. Þetta er jú bara ósköp venjulegt fólk en í óvenjulegum og erfiðum aðstæð- um; fólk með mikinn drifkraft og á vinnualdri. Húsnæðismálin til frambúðar verður kannski helsta áskorunin,“ segir Heiðrún. Úkraínska fólkinu býðst að fara með rútu í Borgarnes alla morgna klukkan 10 og heim aftur eft- ir hádegið. Hafa margir notfært sér það. „Fólkið fer í sund og nýt- ur þess sem í boði er í Borgarnesi. Allir hafa verið til fyrirmyndar og þakklátir fyrir það sem gert er fyr- ir það,“ segir Heiðrún Helga að endingu. Gestir í heimsókn Síðasta vetrardag komu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrands- son félagsmálaráðherra í óopin- bera heimsókn og ræddu við fólk- ið á Bifröst. Á heimasíðu Háskólans á Bifröst kemur fram að gestirn- ir hafi fengið höfðinglegar mót- tökur. Guðni forseti hafði boðað komu sína á Bifröst til að heilsa upp á flóttafólkið og þá sem haft höfðu veg og vanda af undirbúningi mót- töku þess. „Boðið var upp á kaffi og kökur í Kringlunni. Var gestun- um vel fagnað og er óhætt að segja að glatt hafi verið á hjalla þennan fyrsta sumardag ársins,“ segir í frétt frá skólanum. Nýir heimamenn á Bifröst gripu tækifærið og sýndu forseta og félagsmálaráðherra þá aðstöðu sem komið hefur verið upp á staðnum. Hefur m.a. verið sett upp virkni- herbergi með leikaðstöðu fyrir börn og lítil kennslustofa. Þá hefur verið opnuð birgðastöð, en þangað geta íbúarnir frá Úkraínu sótt eft- ir þörfum í gjafavarning ýmiss kon- ar, sem spannar allt frá smærri bús- áhöldum og leikföngum, að spilum, fötum, teppum og skrautmunum. mm Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra heilsar upp á úkraínsk mæðgin. Í bakgrunni má sjá Margréti Jónsdóttur Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. Ljósm. Háskólinn á Bifröst. Hluti af því teymi sem vinnur að móttöku flóttafólksins á Bifröst. F.v. Björk Vil- helmsdóttir, Heiðrún Helga Bjarnadóttir, Anastasia Amor og Þorvaldur Hjaltason. Ljósm. aðsend. Slökkviskjóla var fyrst keypt til landsins í kjölfar reynslunnar af Mýraeldunum vorið 2006. Hún var m.a. prófuð í stórri brunaæfingu sem haldin var í Fíflholt- um á Mýrum vorið 2009 þegar kveikt var í gamla íbúðarhúsinu á jörðinni. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.