Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 21 Greining á áhættu og áfallaþoli Nánari upplýsingar og skráning á idan.is www.idan.is 5. maí Þetta námskeið er fyrir starfsmenn sveitarfélaga, ríkisstofnana og ráðuneyta sem koma að greiningu á áhættu og áfallaþoli. Tilgangur þess er að kenna þátttakendum hvernig staðið skuli að slíkum greiningum. Á námskeiðinu er farið yfir skyldur, ábyrgð og hlutverk aðila og hugtök sem tengjast framkvæmd greiningarinnar. Farið er í gegnum aðferðafræði við greiningu skref fyrir skref ásamt framsetningu, framkvæmd og eftirfylgni. Einnig er fjallað um söfnun upplýsinga og skil á þeim til almannavarna. Kennarar: Staður: Tími: Verð: Sérfræðingar í áhættugreininguma. Símenntunarmiðstöðin Vesturlandi, Borgarbraut 8, Borgarnesi. Fimmtudagur 5. maí kl. 9.00 – 16.00. 45.000 kr. 1. maí 2022 í Borgarnesi Hátíðar- og baráttufundur verður í Hjálmakletti og hefst kl. 11.00 Dagskrá: Hátíðin sett Söngur: Signý María Völundardóttir Nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar Ávarp dagsins Söngfjölskyldan úr Kveldúlfsgötunni, Theodóra, Olgeir Helgi og Sigríður Ásta Internasjónalinn Félögin bjóða samkomugestum í súpu og brauð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9. bekkjar GB sjá um veitingarnar. Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa. Athugið aðeins þessi eina sýning SK ES SU H O R N 2 02 2 nýja Garðasel í Skógarhverfinu. Sá skóli verði þá í næsta nágrenni við leikskólann og tæki við yngstu börnunum. Annars er of snemmt að fabúlera um þetta núna, ekki er tímabært að ráðast í byggingu nýs grunnskóla fyrr en íbúafjöldinn fer í tíu þúsund. Nú er í undirbúningi gríðarstór framkvæmd við elsta hluta skólabyggingar Grunda- skóla sem bæði stækkar og gjör- breytir skólanum. Einnig er verið að vinna að breytingum innanhúss í Brekkubæjarskóla. Okkar áhersla er að vinna þessar breytingar eins vel og kostur er þannig að vel fari um bæði börn og starfsfólk.“ Höfnin batni að gæðum Valgarður segir að atvinnumál hafi verið fyrirferðarmikil á líð- andi kjörtímabili. Hann nefnir að bæjarráð sé í raun sú fastanefnd sem fari með fjárveitingavaldið og því hafi hann talsvert fjallað um þann málaflokk á kjörtímabil- inu. „Við höfum verið að einbeita okkur að markaðssetningu og upp- byggingu grænna iðngarða uppi í Flóa en þeirri framkvæmd fylgir aukin gatnagerð og veitufram- kvæmdir á þessu ári. Grænir iðn- garðar hafa fengið mikla athygli og margir hafa sýnt svæðinu áhuga. Það eru ekki mörg fyrirtæki kom- in en áhuginn er vissulega til stað- ar. Ég spái því að atvinnusvæðið byggist hratt upp á næstu árum og þar verði til fjölmörg ný störf. Þá hefur Breið nýsköpunarsetur vax- ið hratt á liðnum tveimur árum og aðstaða til þróunarstarfs batn- að. Það byggir svo undir það sem kallað hefur verið störf án stað- setningar. Framundan hjá okkur er síð- an að stækka og bæta aðstöðuna í Akraneshöfn. Sú framkvæmd hef- ur verið á teikniborðinu hjá Faxa- flóahöfnum lengi og við bæjarfull- trúar höfum verið vakandi yfir því að tryggja að hún verði að raun- veruleika. Þar eiga ákveðnar fram- kvæmdir að hefjast á næsta ári sem miðast að því að minnka óróa í höfninni, viðlegukanturinn verð- ur sömuleiðis lengdur og auk- in uppfylling samhliða því. Okk- ar markmið er að höfnin verði aft- ur sú lífæð sem hún var og á að vera í atvinnulífi bæjarins. Mik- ilvægi hafnarinnar kom vel í ljós á nýliðinni loðnuvertíð auk þess sem hún skiptir miklu máli fyrir margt sem hér er til staðar í dag, eins og hátækniiðnað Skagans 3X. Akraneshöfn er stór en hana þarf að bæta og við sjáum fyrir okkur að þar liggi tækifæri. Ýmsar hug- myndir hafa verið nefndar og má þar nefna krabbaveiðar og -vinnslu og laxaslátrun, en til að geta átt möguleika á því að komast lengra með slíkar hugmyndir þarf höfnin að vera fyrsta flokks.“ Leggja áherslu á gæði Þá segir Valgarður að í stefnu síns flokks sé sett efst á blað að bæta heilsu og almenna velferð íbúa. „Það er allra hagur að fólk hafi möguleika á að lifa heilbrigðu lífi og til dæmis að stunda úti- vist á fjölbreyttan máta við bestu aðstæður. Við höfum öfluga heil- brigðisstofnun sem er gríðarlega mikilvægur þáttur í vaxandi bæj- arfélagi. Þá höfum við verið að byggja upp það sem má kalla lífs- gæðakjarna fyrir eldri borgara með nýrri félagsaðstöðu á Dalbraut. Auk þjónustunnar á Dalbraut 4 eru nú í byggingu leiguíbúðir fyrir aldraða á Dalbraut 6. Þá er í gangi hönnun og bráðum bygging sam- félagsmiðstöðvar á Dalbraut 8 og 10 þar sem m.a. ný Fjöliðja verður til húsa ásamt starfsemi HVER og Þorpsins. Við leggjum þar mikla áherslu á vandað hönnunarferli í samstarfi við fagfólk líkt og þegar við vorum að leggja drög að nýj- um leikskóla sem nú er í byggingu í Skógahverfinu. Nýtt Garðasel er virkilega metnaðarfull leikskóla- bygging þar sem áhersla er lögð á að börnin og starfsfólkið fái það besta sem í boði er. Það er með- vituð ákvörðun að þannig eigi það að vera og við ætlum að sýna sama metnað í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Hið sama má segja um uppbyggingu íþróttamann- virkja, en þar höfum við stað- ið okkur vel á kjörtímabilinu með byggingu fimleikahúss, lagfæring- um á íþróttahúsinu við Vesturgötu og byggingu reiðhallar í Æðar- odda. Svo er stóra framkvæmd- in hafin, sem er uppbygging á nýju íþróttahúsi við Jaðarsbakka en þar ætlum við okkur að sýna sama metnaðinn og byggja upp aðstöðu á pari við það allra besta á landinu.“ Húsnæði fyrir alla „Á þessu kjörtímabili höfum við í Samfylkingunni lagt áherslu á fjöl- breytt húsnæðisúrræði. Við þurf- um vissulega úrræði sem henta öll- um, óháð efni og aðstæðum hvers og eins. Við höfum farið í samstarf við Bjarg, Þroskahjálp, Leigufélag aldraðra og íbúðum á vegum Brynju hefur verið að fjölga. Sveitarfélög eiga að reyna að tryggja að óhagn- aðardrifið íbúðarhúsnæði verði byggt upp samhliða byggingum á almenna markaðinum. Það vilja ekki og geta ekki allir fjárfest í steypu, en allir verða að eiga þak yfir höfuðið. Við eigum að hafa val um að leigja eða kaupa okkur íveruhús. Þegar við skipuleggjum ný hverfi verðum við því að gefa möguleika á bland- aðri byggð með þeim búsetukost- um sem í boði eru. Rétt samsetning nýrra hverfa er því mikilvæg, hverfi þar sem horft er til lýðheilsu, göngu og hjólandi umferðar. Ekki síst þurfum við að vernda grænu svæð- in þannig að hverfin verði ekki öll grá og einsleit, gróðursetja tré og runna og skapa þannig fall ega ásýnd og góð rými utanhúss. Fjölbreytni er þannig ekki einungis góð heldur einnig nauðsynleg.“ Eflum lýðræðisvitund Aðspurður segir Valgarður að það sé markmið Samfylkingarinnar að komast aftur í meirihluta í bæj- arstjórn og að fá sterka útkomu úr kosningunum. „Ég get vel sagt að það sé markmið okkar að bæta helst við einum bæjarfull- trúa þannig að við verðum fjög- ur. Allavega förum við bjartsýn í kosningabaráttuna og teljum okk- ur vera að kynna góðan málstað. Stjórnmál snúast vissulega um allt sem snýr að venjulegu fólki; lýð- ræði, réttindi, velferð og lífsgæði. Því er mikilvægt að fólk taki þátt í stjórnmálum með því að mæta á kjörstað. Það er ágætt að rifja það upp að enn er til fólk sem upp- lifði það að barist var fyrir sjálf- stæði þjóðarinnar og þegar það loks fékkst klæddi fólk sig í spari- fötin og mætti stolt á kjörstað. Við þurfum kannski að hvetja ungt fólk til að taka virkari þátt í samfélags- umræðunni og mynda sér sjálf- stæða skoðun á því hvernig það telji að sanngjarnt samfélag eigi að vera. Það má aldrei verða þannig að stjórnmál séu eitthvað sem fólk forðast að fylgjast með og taka þátt með umræðu. Því hvet ég alla til að mæta á kjörstað 14. maí,“ seg- ir Valgarður Lyngdal Jónsson að endingu. mm Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.