Skessuhorn - 27.04.2022, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 5
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu • Grettisgötu 89, 105 Reykjavík • Sími 525 8330 • sameyki@sameyki.is • sameyki.is
Til hamingju með
alþjóðlegan baráttudag
launafólks
1. maí
Matvælastofnun hefur gefið út
leiðbeiningar um hvernig fólk á
að bregðast við sjái það veika eða
dauða fugla í náttúrunni. „Ef vart
verður við veika ósjálfbjarga fugla
í nærumhverfi manna er möguleiki
á að fuglinn sé veikur vegna smits
af fuglaflensuveirunni. Þó litlar lík-
ur séu taldar á smiti yfir í mann-
fólk eða önnur dýr þá mælir Mat-
vælastofnun með að varúðar og
smitgátar sé gætt. Ekki skal hand-
leika fugla sem mögulega eru taldir
vera smitaðir af fuglaflensu, án til-
skilins hlífðarbúnaðar.“
Fuglaflensuveirur af gerðinni H5
greindust í átta sýnum af fimmt-
án sem tekin voru úr villtum fugl-
um í vikunni sem leið og rannsök-
uð voru á Tilraunastöð HÍ að Keld-
um. Fimm sýni voru með óljósa
svörun og verða rannsökuð nánar,
en í tveimur sýnum greindust ekki
fuglaflensuveirur. Sýni sem tekin
voru úr alifuglum á tveimur stöð-
um í síðustu viku voru öll neikvæð.
Matvælastofnun ítrekar mikil vægi
þess að fuglaeigendur verndi fugla
sína gegn smiti. Af þeim átta sýn-
um sem reyndust jákvæð voru þrjú
úr súlum sem fundust í Njarð-
vík og Grindavík, þrjú úr súlum á
Búðum á Snæfellsnesi, eitt úr grá-
gæs á Akureyri og eitt úr svartbak
á Húsavík. Áður hafði veiran m.a.
verið greind í grágæsum, súlum,
hrafni og heimilishænum á Suður-
landi.
Sveitarfélög
hafa skyldur
Samkvæmt lögum um velferð
dýra bera sveitarfélög ábyrgð á
að brugðist sé við að koma villt-
um dýrum í neyð til aðstoðar eða
sjá til þess að þau séu aflífuð. Þeim
sem verða varir við lifandi veika
villta fugla í neyð í nærumhverfi
manna ættu því að tilkynna strax
um það til viðkomandi sveitarfé-
lags. Sveitarfélaginu er skylt að
bregðast við út frá dýravelferðar-
sjónarmiðum. Helst er mælt með
að sveitarfélag kalli til dýralækni til
aflífunar á sjáan lega veikum dýrum
eða að dýrin verði aflífuð með öðr-
um mannúðlegum hætti, sem ekki
eykur áhættu á dreifingu á smitefni
(skot, höfuðhögg eða blóðgun gæti
aukið smitdreifingu). Ef sveitarfé-
lagaskrifstofur eru lokaðar getur
almenningur beint erindinu til lög-
reglu. Boð eftir dýralækni til hjálp-
ar villtu dýri í neyð þarf að koma
frá sveitarfélagi eða lögreglu, nema
ætlunin sé að greiða sjálfur fyrir
útkallið.
Þegar villtur fugl finnst dauður,
skal hafa samband við MAST, nema
ef augljóst er að hann hafi drepist af
slysförum. Best er að tilkynna með
því að skrá ábendingu á heimasíðu
stofnunarinnar www.mast.is, en líka
er hægt að hringja í síma 530-4800
á opnunartíma eða senda tölvupóst
á netfangið mast@mast.is. MAST
metur hvort taka skuli sýni úr fugl-
inum. Ef taka þarf upp dauðan fugl
skal það gert með einnota hönsk-
um og hann settur í plastpoka eða
með því að stinga hendi í plastpoka
og taka fuglinn upp með pokanum
og draga pokann svo yfir fuglinn og
loka fyrir.
Sýni ítrustu varúð
„Á undanförnum dögum hefur
Matvælastofnun borist mikið af til-
kynningum um dauða villta fugla
víða á landinu. Stofnunin fer yfir
Leiðbeiningar um viðbrögð vegna veikra fugla
og gruns um fuglaflensu
allar ábendingar og metur hvort
ástæða sé til að taka sýni. Matið
byggir m.a. á staðsetningu, fugla-
tegund og tíma frá því fuglinn
fannst. Fólki er bent á að gæta ítr-
ustu sóttvarna ef það þarf að hand-
leika villta fugla, hvort sem þeir eru
dauðir eða lifandi. Hræ skulu annað
hvort látin liggja óhreyfð eða tekin
í plastpoka án þess að þau séu snert
með berum höndum. Það skal tek-
ið fram að engin dæmi eru um að
fólk smitist af fuglaflensu við neyslu
eggja eða fuglakjöts, hvort sem er af
alifuglum eða villtum fuglum.“ mmVeiran hefur m.a. verið greind í súlum á Búðum á Snæfellsnesi, þar sem þessi mynd er tekin. Ljósm. úr safni.