Skessuhorn - 27.04.2022, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202210
Þriðjudaginn 12. apríl síðast-
liðinn áttu bæjarfulltrúar Grundar-
fjarðarbæjar, ásamt bæjarstjóra
og byggingarfulltrúa, fund í Ráð-
húsinu með fulltrúum Mílu, þeim
Jóni Ríkharði Kristjánssyni fram-
kvæmdastjóra og Ingimar Ólafssyni
sviðsstjóra grunnkerfa hjá Mílu.
Umræðuefnið voru fjarskipta-
mál, en frá þessu var sagt á vefsíðu
Grundarfjarðarbæjar.
Fundurinn var haldinn í fram-
haldi af umfjöllun bæjarráðs og bæj-
arstjórnar um fjarskiptamál í febrú-
ar og mars síðastliðnum og álykt-
un bæjarstjórnar á fundi sínum 10.
mars með ósk um úrbætur á fjar-
skipta- og netsambandi. Sú vinna
bæjarstjórnar byggði meðal annars
á fyrri samtölum við Mílu og ekki
síst fjölmörgum ábendingum íbúa
um gæði fjarskipta, sem teknar
voru saman í febrúar að frumkvæði
bæjarstjórnar og sendar fjarskipta-
fyrirtækjum til skoðunar, með ósk-
um um viðbrögð. Ábendingar íbúa
snéru bæði að heimilistengingum
og farsímum. Í erindi til Mílu 26.
mars var jafnframt óskað eftir sýn
Mílu á stöðu og framtíðaráform um
uppbyggingu vegna ljósleiðara.
Míla brást vel við erindi bæjar-
ins og þegar fundurinn hófst hafði
Míla framkvæmt ítarlega grein-
ingu á gæðum þeirrar þjónustu sem
félagið býður í Grundarfirði. Í því
fólst greining á fastlínutenging-
um og farsímaþjónustu félagsins.
Framkvæmd greiningar og niður-
stöður hennar voru kynntar fyr-
ir fulltrúum bæjarins. Á næstunni
munu fulltrúar bæjarins einnig eiga
fundi með fulltrúum fjarskiptafyr-
irtækja um fjarskiptamál og þjón-
ustu í Grundarfirði.
Á vefsíðu bæjarins má finna sam-
antekt á greiningu og kynningu
Mílu á fundinum en þar kemur
meðal annars fram að Míla eigi og
reki fjóra farsímasenda í sveitar-
félaginu en þeir þjóni eingöngu
dreifingu fyrir viðskiptavini Sím-
ans. Greining Mílu á eingöngu
við um senda Mílu en nær ekki til
farsímadreifingar annarra. Míla
sendi skönnunarbíl til að skoða
nákvæmlega gæði og dreifingu
farnets í sveitarfélaginu. Grein-
ingin sýndi að styrkur 3G og 4G er
mjög svipaður og væri góður fyr-
ir bæði úti- og innisamband nema
austast í bænum, þar sé ótryggt
innisamband sem má bæta. Míla er
tilbúin að bæta við sendi á íþrótta-
húsið til að bæta sambandið austast
í bænum fáist fyrir því leyfi. Míla
upplýsti einnig á fundinum að 5G
sé væntanlegt, fyrst í þéttbýli en
ekki er komin tímasetning á upp-
setningu sem verður líklegast síðar
á þessu ári eða í byrjun þess næsta.
vaks
Í hádeginu á sumardaginn fyrsta
bauð Hvalfjarðarsveit til samkomu
á Leirá í Leirársveit, en það var
menningar- og markaðsnefnd
sveitarfélagsins sem skipulagði við-
burðinn. Blíðskaparveður setti svip
sinn á samkomuna og sumarkom-
una og þar dreif að fjölda fólks.
Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
bauð gesti velkomna. Greindi hún
frá því að söguskiltið á Leirá væri
þriðja af a.m.k. tíu skiltum sem sett
verða upp í sveitarfélaginu í þess-
um áfanga, undir heitinu „Merking
sögu- og merkisstaða í Hvalfjarðar-
sveit.“ Áður hafa verið afhjúpuð
skilti við Saurbæ og Miðgarð. Það
var síðan Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra sem afhjúpaði sögu-
skiltið sem stendur við garðvegg
kirkjugarðsins á Leirá.
Að afhjúpun lokinni sögðu Ásge-
ir Kristinsson frá Leirá og börn
hans þrjú frá sögu staðarins. Sú frá-
sögn var litrík, persónuleg og fræð-
andi. Fléttuðu þau saman sögunni
allt frá fyrstu tíð og þeirra búsetu
á staðnum. Að því loknu var sest
inn í kirkjuna þar sem kór Saur-
bæjarprestakalls söng nokkur
lög undir stjórn og við undirleik
Zsuzsönnu Budai. Loks var boðið
upp á veitingar sem sóknarnefnd
Innra-Hólmskirkju sá um í gamla
íbúðarhúsinu á Leirá sem nú hefur
verið gert myndarlega upp.
Fróðlegir sögumolar
Á nýja söguskiltinu koma fram
upplýsingar um sögu Leirárkirkju,
prentsmiðjuna á Leirárgörðum og
Beitistöðum og sagt frá þeim Magn-
úsi Stephensen og Jóni Thorodd-
sen sem þar hafa búið. M.a. er sagt
frá því að heimildir eru um kirkju á
Leirá frá því um 1200. Kirkjan hafi
frá öndverðu staðið nærri íbúðar-
húsum á bænum, líkt og núverandi
kirkja frá 1914 gerir. Þá er einnig
greint frá prentsmiðjurekstrinum á
Leirárgörðum en í prentsmiðjunni
var um 1800 prentað „Einfalt mat-
reiðslu vasakver, fyrir heldri manna
húsfreyjur.“ Prentsmiðjan var flutt
úr Hrappsey að Leirárgörðum, en
um 1800 sameinaðist hún Hóla-
prentsmiðju. Magnús Stephensen
(1762-1833) varð fljótt einvaldur í
bókaútgáfu hér á landi. Auk Magn-
úsar er sagt frá rithöfundinum og
sýslumanninum Jóni Thoroddsen
(1818-1868) sem bjó á Leirá í um
fimm ár. Þekktastur er Jón fyrir að
hafa skrifað Mann og konu og Pilt
og stúlku en sú síðari er talin fyrsta
íslenska skáldsagan. Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra fjallaði í
ávarpi sínu um Jón, sem er forfaðir
hennar sjálfrar.
mm
Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar, byggingafulltrúi og fulltrúar Mílu á fundinum. Ljósm. af vefsíðu Grundarfjarðarbæjar.
Fjarskiptamál rædd í Grundarfirði
Forsætisráðherra afhjúpaði söguskilti við Leirá
Þau voru í aðalhlutverki við vígsluathöfn skiltisins. F.v. Ásgeir Kristinsson á Leirá,
Brynja Þorbjörnsdóttir formaður menningar- og markaðsnefndar, Linda Björk
Pálsdóttir sveitarstjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Bókmenntafræðingurinn Katrín sagði gestum frá uppruna sínum, en forfaðir
hennar var Jón Thoroddsen sýslumaður og skáld sem bjó um tíma á Leirá.
Ásgeir á Leirá og þrjú börn hans sögðu skemmtilega frá. Blönduðu saman sögunni
og eigin reynslu frá æsku og uppvexti á sögustaðnum.
Kirkjukórinn söng undir stjórn Zsuzsönnu Budai.
Leirárkirkja.