Skessuhorn - 27.04.2022, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 17
Lokahóf Körfuknattleiksdeild-
ar Snæfells í Stykkishólmi var
haldið síðasta miðvikudag og áttu
meistara flokkarnir ásamt stjórn
góða stund saman. Að venju voru
leikmenn verðlaunaðir fyrir árang-
ur sinn í vetur og aðrir hvattir til
þess að halda áfram þeirri góðu
þróun sem hóparnir sýndu.
Í meistaraflokki kvenna hlutu
verðlaun fyrir tímabilið þau
Rebekka Rán Karlsdóttir sem var
mikilvægust, besti varnarmaður-
inn var Minea Takala, besti ungi
leikmaðurinn Vaka Þorsteinsdótt-
ir og mestu framfarirnar sýndi Alfa
Magdalena Frost. Hjá körlunum
var Aron Ingi Hinriksson valinn
sá mikilvægasti, Óttar Sigurðsson
besti varnarmaðurinn, Jason Helgi
Ragnarsson besti ungi leikmaður-
inn og Jónas Már Kjartansson sýndi
mestu framfarirnar.
Afhent voru ný verðlaun á hóf-
inu sem kallast Félagsmaður Snæ-
fells sem eru veitt þeim leikmönn-
um sem leggja hart að sér og taka
þátt í hinum ýmsu störfum fyr-
ir félagið. Það var Birgitta Mjöll
Magnúsdóttir sem hlaut verðlaun-
in að þessu sinni. Á fésbókarsíðu
körfuknattleiksdeildarinnar þakkar
deildin kærlega fyrir stuðninginn á
tímabilinu og segir að liðin ætli sér
stærri hluti á næsta tímabili.
vaks
Stjórn Menningarsjóðs Borgar-
byggðar úthlutaði úr sjóðnum á
fundi sínum 26. apríl síðastliðinn.
Alls hlutu fimm umsækjendur styrk;
Snorrastofa vegna Barnamenn-
ingarhátíðar 300.000 kr., Theo-
dór Kr. Þórðarson vegna ljóðabók-
ar 200.000 kr. og Hollvinasamtök
Varmalands vegna útgáfu á korti
og skráningu örnefna 200.000 kr.
Freyjukórinn fékk 150.000 kr. styrk
til tónleikahalds, æfinga og söngbúða
og Reynir Hauksson 250.000 kr. fyr-
ir tónlistarviðburði í Borgarfirði.
Nokkrum umsóknum var hafn-
að vegna þess að þær uppfylltu ekki
úthlutunarreglur sjóðsins, en alls
var 1.100.000 kr. úthlutað að þessu
sinni. Styrkveitingar Menningar-
sjóðs Borgarbyggðar fara fram
tvisvar ári, sú fyrri fer fram fyrir 1.
maí og hin síðari fyrir 1. október.
Í stjórn sjóðsins eru Brynja Þor-
steinsdóttir formaður, Anna Lísa
Hilmarsdóttir, Jenný Lind Egils-
dóttir, Jóhanna Möller og Margrét
Vagnsdóttir.
gj
Stóri plokkdagurinn var síðasta
sunnudag og margir sem fóru
þá út að plokka og létu félagar í
Lionsklubbi Ólafsvíkur ekki sitt
eftir liggja. Þeir eru í fjáröflunar-
verkefni í samstarfi við Vegagerðina
og plokka rusl á 60 kílómetra kafla
á völdum svæðum á Snæfellsnesi.
Var fyrsti dagurinn í því verkefni á
sunnudaginn. Eftir annað kvöldið
sem lionsfélagar voru að plokka
var komið svolítið mynstur á hvaða
rusli var mest hent, en á ákveðnu
svæði var mikið af hálfslíters gos-
flöskum fullum af sígarettu stubb-
um og talsvert af sígarettustubbum,
böggum eða munntóbaki og var
einnig töluvert af einnota rafrett-
um og má því segja að baggarnir og
rafretturnar séu stubbar, eða sóða-
skapur samtímans.
þa
V i n k o n u r n -
ar Guðrún Ósk
og Mýrún Lotta
nýttu stóra plokk-
daginn, sem var
24. apríl síðast-
liðinn, í að tína
upp rusl úr fjör-
unni á Framnesi í
Grundarfirði. Þær
höfðu þó smá tíma
til að stilla sér upp
fyrir ljósmyndara
áður en þær héldu
áfram að tína upp
gamalt plast og
rusl úr fjörunni.
tfk.
Fullorðnir nemendur Tónlistar-
skóla Snæfellsbæjar, ásamt mök-
um og kennurum, lögðu land und-
ir fót um síðustu helgi. Lagt var
af stað á föstudagsmorgninum og
haldið á Selfoss. Þar tók Helga Sig-
hvatsdóttir skólastjóri Tónlistar-
skóla Árnesinga á móti hópnum og
kynnti skólann. Margrét Stefáns-
dóttir söngkennari við skólann var
svo með stutt og mjög gott nám-
skeið fyrir hópinn ásamt því að þrír
nemendur hennar sungu hluta af
prófverkefnum sínum.
Frá Selfossi lá leið hópsins að
Freysnesi í Öræfum þar sem gist
var á Hótel Skaftafelli. Þorsteinn
Jakobsson, einn nemenda tónlistar-
skólans, er einmitt frá bæ í Öræf-
um og var hann leiðsögumað-
ur í ferðinni enda á heimaslóð-
um. Á laugardeginum var svo far-
ið í skoðunarferð og Þórbergsset-
ur skoðað ásamt fleiri fallegum og
merkum stöðum. Tónleikar voru
haldnir á Hótel Skaftafelli bæði
föstudags- og laugardagskvöld. Á
föstudeginum söng Þorsteinn eða
„Steini í Skaftafelli,“ eins og sveit-
ungar hans segja, margar perl-
ur íslenskrar tónlistar í bland við
sænsk og írsk þjóðlög. Á laugardeg-
inum voru svo seinni tónleikarnir
þar sem allir nemendur tónlistar-
skólans sem í ferðinni voru sungu
ýmis lög við góðar undirtektir tón-
leikagesta. Á sunnudegi var svo lagt
af stað heimleiðis, komið var við á
Skógum þar sem safnið var skoðað
áður en lagt var af stað heimleiðis.
Voru allir sem í hópnum voru sam-
mála um að helgin hefði heppn-
ast mjög vel og vildu fá að koma á
framfæri kæru þakklæti til allra sem
lögðu hönd á plóg til að ferðin yrði
að veruleika.
Á meðfylgjandi mynd má sjá allan
hópinn með Jökulsárlón í baksýn
en það var einn af viðkomustöðum í
ferðinni. Þess má svo einnig geta að
til stendur að fullorðnir nemend-
ur skólans haldi vortónleika seinni
partinn í maí og hvetur fréttaritari
alla sem hafa áhuga á söng að fylgj-
ast með hvenær og hvar þeir verða
haldnir og síðast en ekki síst að
mæta og hlusta. þa
Jason Helgi, Aron Ingi, Óttar og Jónas Már ásamt Gunnlaugi Smárasyni þjálfara.
Lokahóf Snæfells í körfunni
Alfa Magdalena, Rebekka Rán og Vaka ásamt Baldri Þorleifssyni þjálfara.
Ljósm. Snæfell.
Frá Borgarnesi. Ljósm. gj.
Menningarsjóður
Borgarbyggðar úthlutar
Plokkað meðfram vegum
á Snæfellsnesi
Plokkuðu rusl á stóra plokkdeginum
Tónlistarnemendur í helgarferð