Skessuhorn - 27.04.2022, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 23
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli sínu hefur
ritstjórn blaðsins aðeins verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem
geyma myndir fyrir og í kringum síðustu aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu
2000 og sýnir ungar stúlkur að leik á Langasandi á Akranesi.
Nú styttist í að golfarar lands-
ins geti farið að kíkja út á golfvöll
og slá eina kúlu eða tvær. Starfs-
menn golfvalla um allt land vinna
nú hörðum höndum að því að
koma völlunum sínum í stand fyrir
sumarið og ljóst að margir golfar-
ar bíða spenntir eftir að vellirn-
ir opni. Blaðamaður Skessuhorns
kíkti í síðustu viku við í Golfklúbb-
inn Leyni á Akranesi og hitti þar
að máli Rakel Óskarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra. Rætt var um golf-
sumarið sem er framundan. Rakel
segir starfið mjög fjölbreytt og
mjög árstíðabundið, það sé vertíð
í sex mánuði og eftir það uppgjör,
frágangur, ársskýrsla og ýmislegt
annað sem þarf að ljúka fyrir vet-
urinn. Rakel tekur sér sumarfrí um
miðjan desember og inn í janúar en
eftir það hefst undirbúningur fyr-
ir næsta sumar. Hún segir að starf-
ið sé blanda af rekstri íþróttafélags
og fyrirtækis og oft á tíðum hálfgert
einyrkjastarf því hún sé yfirleitt ein
á skrifstofunni að vetri til. Fjögur
heilsárs störf eru hjá golfklúbbnum
en auk Rakelar eru Einar Gestur
vallarstjóri og Guðni Steinar starfs-
maður golfvallarins í heilsársstarfi
og þá er íþróttastjórinn Valdís Þóra
í hlutastarfi.
Orðnir þyrstir í að byrja
Hvað ertu með marga starfsmenn
yfir sumarið? „Þegar mest lætur þá
erum við örugglega í kringum 20
auk unglinga frá vinnuskólanum.
Við erum svo lánsöm að fá alltaf
ákveðinn fjölda sumarstarfsmanna
frá Akraneskaupstað og það getur
verið frá tíu til yfir tuttugu krakk-
ar á aldrinum 14-17 ára. Þá eru þau
þrjú sem sjá um afgreiðsluna sem
keyrð er á vöktum. Þetta er mjög
langur vinnutími frá klukkan átta á
morgnana til níu til tíu á kvöldin.“
Rakel segir að stefnt sé á að opna
völlinn um mánaðamótin næstu
og það megi gera ráð fyrir því að
brjálað verði að gera, sérstaklega
fyrstu tvo mánuðina, því kylfingar
eru orðnir mjög golfþyrstir á þess-
um tíma og vilja komast í golf. „Við
erum með fína æfingaaðstöðu í
kjallaranum í húsinu sem er mjög
vel nýtt yfir veturinn en hún er
sprungin. Það stendur nú barna-
og unglingastarfi fyrir þrifum að
stækka þá aðstöðu. Þá erum við
einnig með golfhermi í kjallaranum
sem er mjög vinsæll og má segja að
það sé búið að vera uppselt í hann
nánast í allan vetur.“
Konur að koma mjög
sterkar inn
Hvernig lítur sumarið út hjá ykk-
ur? „Ég er rosalega bjartsýn, með-
limum í klúbbnum er sífellt að
fjölga, bæði í barna- og unglinga-
starfinu og þá eru konur að koma
mjög sterkar inn í klúbbinn. Þá
fjölgar alltaf félagsmönnum sem
búa í Reykjavík en kjósa að vera í
Leyni. Við vorum í samstarfi við
Golfklúbb Mosfellsbæjar varðandi
vallarstjórastöðuna árið 2021 og
fengum þá aðgang að þeim tækj-
um og tólum sem nauðsynleg eru
í golfvallarekstri og hægt var að
samnýta. Nú þegar rekstur okk-
ar er að styrkjast smátt og smátt
verðum við að horfa til framtíðar í
því hvernig við viljum reka klúbb-
inn. Ný aðstaða sem tekin var í
notkun árið 2019 gerir aðstöð-
una og umgjörð Garðavallar allt
aðra og hefur styrkt stöðu klúbbs-
ins til muna. Aðstaðan gerir okkur
samkeppnishæf við stóru klúbbana
og nú í fyrsta skipti í langan tíma
höfum við ráðið vallarstjóra í fullt
starf. Svo verðum við að horfast í
augu við það að til að vera sjálfbær
í rekstri þá þurfum við að eignast
fleiri tæki og tól sem eru nauðsyn-
leg eru til að gera góðan völl enn
betri.“
Rakel segir að reksturinn heilt
yfir hafi gengið vel og sé búinn að
vera upp á við síðustu ár. „Ég tók
við um áramótin 19/20 og fékk far-
aldurinn beint í fangið, sem var viss
áskorun. En faraldurinn fór ekki illa
með golfhreyfinguna að mínu mati,
heldur styrkti hana frekar. Félaga-
fjöldi í klúbbunum jókst mikið um
allt land og nú sér maður að margir
makar hafa komið inn í meira
mæli en áður. Fjölskyldur samein-
ast á golfvellinum í auknum mæli,
þetta er orðið mikið fjölskyldu- og
hjónasport og er alltaf að eflast.
Félagsmenn í Leyni eru nú að nálg-
ast 700 en ég hef trú á því að við
náum því í sumar. Konurnar eru í
kringum 35% af félagsmönnum
og hefur fjölgað mikið undanfarin
tvö ár, sem er virkilega ánægjulegt.
Kvennastarfið í klúbbnum er orðið
mjög öflugt og við höfum farið þá
leið að þetta sé ekki bara keppni
heldur líka samvera og félagsskapur
sem er svo dýrmætt.“
Tækifærin gríðarleg
Nú er kominn nýr rekstraraðili í
golfskálanum. Hvernig líst þér á
hann? „Rosalega vel, ég held að við
höfum dottið í lukkupottinn með
Hlyn á Nítjándu. Það stefnir í það
að þetta verði mjög metnaðarfullt
og ég held að Skagamenn eigi eft-
ir að verða hæstánægðir með þjón-
ustuna hvort sem það eru kylfingar
eða aðrir gestir. Tækifærin í þessu
húsi eru gríðarleg og fullt af íbúum
sem búa hérna steinsnar frá. Við
erum einnig mjög heppinn í Leyni
því við erum með marga öfluga og
sterka styrktaraðila sem standa þétt
við bakið á klúbbnum og félagsauð-
urinn er svo mikill. Fólk er alltaf
tilbúið að leggja klúbbnum lið með
sjálfboðavinnu og er ekkert að víla
Styttist í spennandi golfsumar
Rætt við Rakel Óskarsdóttur, framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Leynis á Akranesi
það fyrir sér, til að mynda komu
um 50 sjálfboðaliðar saman á sum-
ardaginn fyrsta og unnu ýmis verk
úti á velli og inni á Garðavöllum.“
Svipaður fjöldi móta eru á Garða-
velli í ár eins og undanfarin ár. Tvær
innanfélags mótaraðir eru í sumar
líkt og áður, alltaf á miðvikudögum,
en svo er töluvert af opnum mótum
og byrjar það með Opna Norður-
álsmótinu 7. maí. „Vesturlandsmót
kvenna, þar sem klúbbarnir af Vest-
urlandi hittast er mjög skemmti-
legt mót, og þá eru uppi hugmynd-
ir að halda Vesturlandsmót karla
í sumar, vonandi verður það að
veruleika hjá strákunum. Golfið
hefur verið frekar karllægt sport og
við erum til að mynda örfáar kon-
ur sem eru framkvæmdastjórar í
golfklúbbum landsins. Engin kona
er vallarstjóri en þó nokkrar gegna
starfi íþróttastjóra og/eða golf-
kennara. En nú var kona kosin for-
seti GSÍ þannig þetta er nú kannski
að breytast smátt og smátt,“ segir
Rakel Óskarsdóttir að lokum. vaks
Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Leynis.