Skessuhorn - 27.04.2022, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Pennagrein Pennagrein
Árið 2014 voru gerðar breytingar
á aðalskipulagi Borgarbyggðar
fyrir tímabilið 2010-2022 varð-
andi Brákarey. Breytingar þær
fólu meðal annars í sér, að fall-
ið var frá íbúðabyggð í eynni, sem
ákveðið hafði verið með breytingu
á skipulaginu árið 2009.
Með breytingunni á aðal-
skipulaginu í Brákarey, sem tók
gildi árið 2014, var staðfest að
nýta ætti eyna að meginhluta und-
ir iðnaðar- og þjónustustarfsemi. Í
greinargerð með skipulaginu seg-
ir um nýtingu Brákarbraut 25-27,
lóða og mannvirkja, sem sveitar-
félagið hefur á annan áratug leigt
félagasamtökum og einstaklingum:
„...verður gert ráð fyrir léttum
iðnaði, tómstundastarfsemi, versl-
un og þjónustu við ferðamenn,
matvælaframleiðslu, þjónustu við
smábátahöfn og frumkvöðlastarf-
semi. Gert er ráð fyrir að minnka
byggingarmagn á reitnum með
niðurrifi ákveðinnar byggingar
sökum lélegs ástands.“
Í skipulagslögum segir meðal
annars: „Þegar að loknum sveitar-
stjórnarkosningum metur sveitar-
stjórn hvort ástæða sé til að endur-
skoða aðalskipulagið.“
Hyggst framboðið sem þú ert
í forystu fyrir leggja til í sveitar-
stjórn, að gildandi aðalskipulagi
fyrir Brákarey verði breytt, og ef
svo kynni vera, hvaða breytingar
vill framboðið gera á nýtingu lands
og lóða í Brákarey frá núgildandi
skipulagi, og sérstaklega varðandi
lóðirnar Brákarbraut 25 og 27, sem
nú afmarkast af lóð stórgripaslátur-
húss, skolpdælustöðvar og vöru-
geymslu til nota undir vörur tengd-
ar verktakastarfsemi, s.s. í tjöru-
lögn, hafnargerð og sprengingum?
Er hér með skorað á frambjóð-
endur til sveitarstjórnar í Borgar-
byggð 2022-2026 að upplýsa
um afstöðu sinna framboða til
skipulagsmála í Borgarbyggð.
Þorsteinn Máni
Opið bréf til oddvita
framboða til sveitar-
stjórnarkosninga
2022 í Borgarbyggð
Auglýst er eftir stefnu framboða í Borgarbyggð
varðandi skipulagsmál í Brákarey
Það eru ekki mörg sveitarfélög
sem geta státað sig af því að hafa
námsframboð á öllum skólastigum.
Sveitarfélagið okkar, Borgarbyggð,
býr svo vel að hafa fimm leikskóla,
tvo grunnskóla, menntaskóla og tvo
háskóla. Innra starf hvers skóla er
einstakt þar sem þeir hafa í gegnum
tíðina mótað eigin áherslur hver
fyrir sig og í samstarfi við aðra.
Eitt mikilvægasta verkefni
sveitar stjórnar hverju sinni er að
standa við bakið á og efla lærdóms-
samfélag hvers sveitarfélags fyrir
sig sem skólarnir, nemendur, starfs-
fólk og íbúar mynda.
Fjórða iðnbyltingin er nú í
veldis vexti og á sama tíma er ofar-
lega á baugi mikilvægi þess að
undirbúa nemendur fyrir störf
framtíðarinnar sem í raun og veru
enginn veit hvers eðlis verða. Því er
mikilvægt að skólarnir séu vel bún-
ir þegar kemur að tækni. Eitt tæki
per nemanda í unglingadeild ætti
að vera markmið næstu ára. Með
aukinni áherslu á upplýsingatækni,
upplýsingalæsi, ábyrga netnotkun,
stafræna borgaravitund og notkun
á tólum tækninnar í sveitarfélaginu
öllu.
Skólarnir þurfa frelsi og tækifæri
til nýsköpunar í skólastarfi, til efl-
ingar á innra starfi. Þar sem vinnu-
aðstaða og umhverfi nemenda og
starfsfólks er til fyrirmyndar. Til
þess þurfum við að skoða vandlega
með öllum þeim aðilum sem skóla-
samfélagið mynda, hver þörfin er
og hvernig við getum mætt henni.
Í þessu samhengi er mikilvægt að
hlusta á raddir nemenda því hver
veit betur en þjónustuþegarn-
ir sjálfir í hvers konar umhverfi,
aðstæðum og með hvað hætti þeim
hentar best að sinna námi sínu.
Samfylkingin og Viðreisn stefna
ekki að lokunum skóla í uppsveit-
um heldur vilja ýta undir upp-
byggingu og fólksfjölgun á þeim
svæðum. Þörf er fyrir frekari fjölg-
un lóða í þéttbýliskjörnum og raun-
ar er nú þegar hafin skipulagsvinna
að stóru hverfi við Reykholt. Ver-
ið er að klára gatnagerð á Varma-
landi og á Hvanneyri á svæði sem
búið er að skipuleggja. Þá er einnig
unnið að því að finna fleiri ákjós-
anlegar lóðir, fyrir fjölgun íbúa og
fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Það blasir því við að tækifærin til
uppbyggingar í Borgarbyggð eru
mörg en til þess að laða fólk að þarf
öll grunnþjónusta að vera til stað-
ar. Það er markmið Samfylkingar
og Viðreisnar á næsta kjörtímabili
að efla menntastefnu Borgarbyggð-
ar og koma skólum sveitarfélags-
ins í fremstu röð. Það er mikilvægt
að gera með uppbyggingu innviða
og fagþekkingar skólasamfélagsins.
Þar sem lýðræðisleg vinnubrögð
eru höfð að leiðarljósi þar sem
raddir allra fá áheyrn.
Jóhanna M. Þorvaldsdóttir.
Höfundur er grunn- og framhalds-
skólakennari og skipar 9. sæti Sam-
fylkingar og Viðreisnar
í Borgarbyggð.
Sterkari saman