Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Page 7

Skessuhorn - 25.05.2022, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 7 Verkefnastjóri tækniþjónustu á upplýsingatæknisviði Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu verkefnastjóra tækniþjónustu á upplýsingatæknisviði Háskólinn á Bifröst auglýsir eftir verkefnastjóra í tækniþjónustu á upplýsingatæknisviði. Við leitum að einstaklingi með þekkingu, metnað og reynslu á sviði upplýsingatækniþjónustu sem hefur áhuga á þróun og uppbyggingu tækniumhverfis í stafrænu námi. Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og er leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Helstu verkefni og ábyrgð: •Umsjón með þjónustuborði upplýsingatæknisviðs og tæknibúnaði í fundarherbergjum, kennslustofum og í upptökuaðstöðu skólans. •Greining, úrlausn og eftirfylgni verkefna og beiðna sem berast upplýsingatæknisviði •Þróunar og umbótavinna í upplýsingatækni og notendaþjónustu. •Val á tæknibúnaði ásamt uppsetningu, viðhaldi og þróun á tækniumhverfi. •Tækniþjónusta á viðburðum á vegum skólans •Þjálfun, ráðgjöf, og fræðsla á upplýsingatæknikerfum skólans, þróun á þjálfunar og upplýsingaefni ásamt almennri tölvuþjálfun. Menntunar- og hæfniskröfur: •Reynsla sem nýtist í starfi •Framúrskarandi þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og ábyrgðarkennd við úrlausn verkefna. •Áhugi og reynsla af framþróun í upplýsingatækni, þekking á háskólaumhverfi er kostur •Mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á Microsoft Windows umhverfi, Microsoft vottuð þekking er kostur. •Geta til að takast við tæknileg vandamál, greina og leysa •Þekking á verkefna- og þjónustustjórnun er kostur. (ITIL, PRINCE2) •Menntun sem nýtist í starfi, t.d. kerfisfræði, tölvunarfræði, upplýsingatækni- eða iðnmenntun Umsókn: Með umsókn fylgi ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem lýst er reynslu sem nýtist í starfi. Aðalstarfsstöð er á Bifröst en starfið getur einnig unnist að hluta í fjarvinnu. Starfsaðstaða er á Bifröst og á skrifstofum skólans í Reykjavík Nánari upplýsingar Auðbjörg Jakobsdóttir, þjónustustjóri upplýsingatækni, upplysingataekni@bifrost.is, sími 433- 3000 eða Hulda Dóra Styrmisdóttir mannauðsstjóri, mannaudsstjori@bifrost.is. Umsóknir skilist inn á umsóknarvefnum Alfred.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022. bifrost.is bifrost.is Á garðyrkjustöðinni Laugalandi í Stafholtstungum er nú í gangi all óvenjulegt verkefni. Unnið var í síðustu viku við að lyfta 1200 fer­ metra gróðurhúsi í heilu lagi um 1,85 metra. Verkið er unnið af holl­ enskum verktökum sem sérhæfa sig í að lyfta gróðurhúsum. Farið er í þessa framkvæmd til að bæta hag­ kvæmni lýsingar á plöntur sem ræktaðar eru í húsunum. Gróður­ húsið var byggt árið 1990 og hafa agúrkur verið ræktaðar í því alla tíð. Að sögn Þórhalls Bjarnasonar garðyrkjubónda er áætlað að með nýjum ljósabúnaði megi bæta nýt­ ingu raforkunnar sem notuð er um 15­20% við þessa aðgerð. Sú bætta orkunýting þýðir svo hlutfallslega enn meiri uppskeruaukningu. Blaðamaður Skessuhorns kom að Laugalandi upp úr hádegi á miðvikudegi í síðustu viku. Þá var vinnuflokkurinn sem skipað­ ur er fimm Hollendingum búinn að hækka húsið um 1,2 metra og bjuggust þeir við að ljúka hækk­ uninni fyrir kvöldið. Verkið er framkvæmt með sérstökum bún­ aði sem verktakarnir taka með sér að utan. Áður en hafist er handa er búið að aftengja allar lagnir og skorið á burðarvirki gróðurhússins niður við sökkul. Sérstökum loft­ drifnum membrum er komið fyr­ ir á öllum burðarstoðum og húsinu smám saman lyft í heilu lagi. Þegar fullri hæð er náð eru burðarstoð­ ir úr miðju hússins bútaðar nið­ ur í 1,85 metra lengd og bætt inn í þær burðarstoðir sem fyrir eru í úthringnum. Nýjar burðarstoðir eru loks settar undir hverja burst í blokkinni. Eftir að því verki verð­ ur lokið er klæddur álrammi utan á hliðar hússins og glerjað í hann. Þá verður farið í að koma nýrri hita­ lögn fyrir í húsinu ásamt öðrum frágangi. Þórhallur gerir ráð fyrir að hægt verið að hefja framleiðslu að nýju í húsinu í ágúst í sumar. Þó að framkvæmd sem þessi sýn­ ist býsna umfangsmikil og flókin er þetta langt í frá að vera stærsta gróðurhús sem þessi vinnuflokk­ ur hefur komið að hækkun á. Áður hefur hann meðal annars hækkað hús í Hollandi sem er fjórir hekt­ arar að flatarmáli, eða 40 þúsund fermetrar, og næsta verkefni vinnu­ flokksins verður að hækka fimm hektara gróðurhús í Frakklandi. mm Lyfta þrjátíu ára gróðurhúsi um tæpa tvo metra Hér var búið að lyfta húsinu um 1,20 metra og stutt í að hækkunin yrði komin í 1,85 m. Loftknúnar membrur hækka grindina um 5 cm í einu. Þá smellur húsið í sérstök járnhök, ekki ósvipað og menn þekkja að eru á drullutjökkum. Sumarlestur 2022 3. júní til 12. ágúst fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára • Komdu á Bókasafn Akraness, skráðu þig í sumarlesturinn og fáðu afhent lesblað. • Ef þú átt ekki skírteini kemur þú með foreldri/ forráðamanni til að fá skírteini í fyrsta sinn. Skírteini eru ókeypis fyrir börn, allir að vera með! Húllum-hæ, lokahátíð 17. ágúst kl. 14.00 happadrætti og léttar veitingar. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með starfi Bókasafnsins á fésbókarsíðu safnsins. Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafnakraness.is • bokasafn@akranessofn.is S K E S S U H O R N 2 02 2

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.