Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 23 Dagur í lífi... Nafn: Júníana Björg Óttarsdóttir Fjölskylduhagir/búseta: Búsett í Ólafsvík ásamt manninum mín­ um Jóhanni Péturssyni og Brynjari Óttari syni okkar. Starfsheiti/fyrirtæki: Ráðgjafi í barnavernd hjá Félags­ og skóla­ þjónustu Snæfellinga. Áhugamál: Fjölskyldan mín, golf, samvera með góðum vinum og að vera þátttakandi í bæjarmálunum. Dagurinn: Þriðjudagurinn 17. maí 2022. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerð- ir? Vaknaði klukkan 7:20, fór í sturtu og græjaði mig inn í daginn. Hvað borðaðirðu í morgunmat? Byrja ávallt á vatnsbrúsanum. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Þar sem ég vinn á Hellis­ sandi, keyrði ég þangað klukkan 8:20 með viðkomu í grunnskólan­ um þar sem yngsti strákurinn minn Brynjar Óttar er nemandi við 9. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Fyrstu verk í vinnunni? Lesa yfir tölvupóst og fá mér kaffibolla með frábærum samstarfsfélögum mín­ um í Ráðhúsinu, alveg heilagt. Hvað varstu að gera klukkan 10? Tala við Tryggva Leif bróður minn í símann en hann er búsettur í Sví­ þjóð og átti afmæli þennan dag. Hvað gerðirðu í hádeginu? Keyrði inn í Stykkishólm þar sem við í Félags­ og skólaþjónustunni vinnum þvert á nesið, kom við í bakaríinu þar og keypti mér dýr­ indis langloku. Hvað varstu að gera klukkan 14? Á leið í Grundarfjörð í sömu erindagjörðum og í Stykkishólmi. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Var búin að vinna klukkan 15.30, tók til á skrif­ borðinu mínu (þó það sjáist aldrei). Hvað gerðirðu eftir vinnu? Hengdi út þvott í góða veðrinu og braut saman þvottafjallið sem hafði beðið eftir mér eftir annasama daga síðastliðnar vikur. Hvað var í kvöldmat og hver eld- aði? Mamma bauð mér og krökk­ unum út að borða á Sker Restaur­ ant hér í Ólafsvík, ákváðum að fara út að borða í tilefni afmælis Tryggva bróður míns þó hann væri ekki með okkur. Hvernig var kvöldið? Fór með mömmu á ísrúnt, kom við í fjárhús­ unum hjá eldri stráknum mínum, Pétri Steinari, og knúsaði lömb­ in mín en ég á eina kind enn þrátt fyrir að hafa hætt rollubúskap fyr­ ir þremur árum. Pabbi var með kindur alla tíð og ólst ég upp við að sinna þeim, fyrst á túninu heima og veit fátt betra en að kíkja í fjárhúsin og fá að taka til hendinni. Gengum svo um kirkjugarðinn á Ingjaldshóli í blíðunni, hlustuðum á fuglasöng og hreinsuðum af leiðum ættingja. Gott að hlaða batteríin með þessu móti. Hvenær fórstu að sofa? Fór upp í rúm á miðnætti. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Hringdi í manninn minn og kyssti hann góða nótt á FaceTime en hann vinnur í Bolungarvík hluta mánaðar. Hvað stendur upp úr eftir daginn? Samvera með flestum af mínum bestu. Eitthvað að lokum? Get aldrei sofnað fyrr en klukkan hefur náð því að vera 00:20 þann 18. maí þar sem elsta stelpan mín, Guðlaug Íris fæddist þá árið 1997 og fagn­ aði því 25 ára afmæli sínu 18. maí! Lokaorð mín eru úr uppáhaldsljóð­ inu mínu Lífsþor eftir Árna Grétar Finnsson en hann var giftur Siggu frænku minni og reyni ég að hafa þau að leiðarljósi. Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga, sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa, djörfung til að mæla gegn múgsins boðun, manndóm til að hafa eigin skoðun. Ráðgjafa í Snæfellsbæ Nýtt deiliskipulag fyrir miðbæ Stykkishólms austan við Aðalgötu hefur tekið gildi. Það er unnið af Glámu­Kím arkitektum, sem einnig unnu miðbæjardeiliskipulag sem Stykkishólmsbær hreppti skipulagsverðlaun fyrir árið 2008. Markmið deiliskipulags­ ins er að skilgreina nýjar lóðir og byggingarreiti sem styrkja gömlu byggðina sem fyrir er og ein­ staka bæjarmynd Stykkishólms. Deiliskipulagsreiturinn afmark­ ast af Aðalgötu og Víkurgötu til vesturs, Austurgötu til norðurs og lóðarmörk húsa við Skúlagötu til austurs. Svæðið er um 1,7 ha að stærð og er að mestu fullbyggt. Meðal þess sem kveðið er á um í deiliskipulaginu er að styrkja gamla bæjarkjarnann með verndun og uppbyggingu og að nýbyggingar skuli taka fullt til­ lit til gömlu byggðarinnar og falla vel að henni. Um viðkvæmt svæði sé að ræða og að meta skuli hverju sinni hvort yfirbragð fyrirhugaðra bygginga samræmist viðmiðum um gamla byggð. „Í Stykkishólmi hefur verið rík hefð fyrir því að standa vörð um byggingarlist og sögu húsa sem hafa sögulegt gildi. Í aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar er m.a. lögð sérstök áhersla á verndun og varð­ veislu gamla bæjarins í Stykkis­ hólmi, sem á rætur að rekja til stefnumörkunar frá árinu 1978 með húsakönnun Harðar Ágústs­ sonar. Á þeim grunni er í hinu nýja skipulagi kveðið á um að nýbyggingar á svæðinu skuli taka fullt tillit til gömlu byggðarinn­ ar og falla vel að henni sem og að virða sögu svæðisins og form­ fræði gömlu húsanna,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi í samtali við Skessu­ horn. Með tilkomu nýja deiliskipulags­ ins mun byggingarmagn á svæð­ inu aukast með nýjum skilgreind­ um byggingareitum og þannig má gera ráð fyrir því að tilteknar lóð­ ir í gamla bænum í Stykkishólmi muni koma til með að vera aug­ lýstar lausar til úthlutunar. Er þessi fjölgun á byggingareitum á þegar byggðu svæði í samræmi við stefnu bæjarins um þéttingu byggð­ ar sem unnið hefur verið að frá árinu 2018. Um er að ræða fjóra byggingareiti ætlaða íbúðahúsnæði og einn fyrir verslun og þjónustu. Auk þess heimilar deiliskipulag­ ið bílskúra og viðbyggingar við einstök hús á svæðinu. gj Síðastliðinn miðvikudag hófst fjár­ öflunar­ og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja ný „Lífið er núna“ arm­ bönd, fá fólk til að koma saman og sýna samstöðu með því að perla armbönd og sýna almenningi inn í reynsluheim félagsmanna Krafts og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra. Um 70 ungir einstaklingar grein­ ast á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjöl­ skyldu og ástvini þeirra. Vit­ undarvakningin er nú hafin og stendur til 6. júní og ætlar Kraftur að selja armbönd á tímabilinu sem verða seld í takmörkuðu upplagi en öll armböndin eru perluð af sjálf­ boðaliðum. „Hver perla hefur sína sögu er yfirskrift átaksins í ár og vísar til lífsreynslu okkar félagsmanna og hvaða þýðingu „Lífið er núna“ armbandið hefur fyrir þau. Sem fyrr verður slagorð Krafts „Lífið er núna“ í hávegum haft og munum við hvetja fólk til að „sýna Kraft í verki“ með því að perla með okk­ ur armbönd eða kaupa þau. En með því að bera armbandið sýnir fólk stuðning sem það jafnvel áttar sig ekki alveg á en félagsmenn okkar finna ætíð fyrir meðbyr og stuðn­ ingi þegar þeir sjá aðra með arm­ böndin,“ segir Hulda Hjálmars­ dóttir, framkvæmdastjóri Krafts. Armböndin eru komin í forsölu í vefverslun Krafts á www.lifider­ nuna.is og verða einnig í völd­ um verslunum Krónunnar sem og vefverslun Krónunnar eftir stóra perluviðburðinn. Armböndin kosta 2.900 krónur og rennur allur ágóði af þeim í starfsemi Krafts og í að styðja þar með við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabba­ mein og aðstandendum. mm Frá Stykkishólmi. Ljósm. sþ. Nýir byggingareitir í einstakri bæjarmynd Stykkishólms Síðastliðinn sunnudag var perlað af krafti í Hörpunni í Reykjavík. Samheldin fjölskylda tók þátt. Ljósm. Tinna Grímars. Perlað verður af krafti næstu daga fyrir Kraft

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.