Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 17
Knattspyrnufélag ÍA leitar að verkefnastjóra á skrifstofu félagsins með
brennandi áhuga á fótbolta. Starfið er fjölbreytt og lítur að öllum þáttum
starfsemi Knattspyrnufélags ÍA. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt
sem og í samstarfi við starfsmenn félagsins, leikmenn, iðkendur, foreldra,
félagsmenn og stjórn.
Umsækjendur þurfa að geta unnið sveigjanlegan vinnutíma vegna leikja og mó-
tahalds, brenna fyrir sportið og tilbúnir að starfa í fjölbreyttu umhverfi fótboltans.
Nauðsynlegt er að hafa búsetu á Akranesi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Halda utan um skráning og innheimtu æfinga- og félagsgjalda KFÍA
• Umgjörð og framkvæmd heimaleikja meistaraflokka
• Tryggja aðföng
• Vefsala
• Starfa með nefndum/ráðum
• Norðurálsmótið
• Viðburðir
• Samfélagsmiðlar og markaðsmál
• Ýmis dagleg umsýsla
Menntunar og hæfniskröfur:
• Góð tölvukunnátta
• Frumkvæði
• Áhugi á fótbolta
Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri (geir@ia.is). Umsóknir ásamt ferilskrá
berist eigi síðar en 27. maí í gegnum ráðningakerfi á www.alfred.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Verkefnastjóri á skrifstofu
inni á fishmas.com og fishmas.
fr en við erum með mismunandi
uppskriftir fyrir breska mark
hópinn og franska markhópinn. Í
Bretlandi er meira djúpsteikt en í
Frakklandi er meira pönnusteikt,
smjör og hvítvínssósur en það er
mjög gaman að prófa sig áfram
með þetta. Við höfum verið sér
staklega ánægð með herferðina í
Bretlandi. Frakkland var aðeins
erfiðara út af tungumálinu en
þetta er svona lokahnykkur í
þessari herferð að fá þetta fólk
til Íslands og sýna því hvað ligg
ur að baki íslenska fiskinum. Við
finnum hvað kynningarsamstarf
er dýrmætt. Þegar maður er að
vinna svona úti á markaðnum
koma upp hlutir sem flækjast fyr
ir eins og t.d. tungumálið. Það er í
rauninni lykillinn að því að kynna
fiskinn okkar að komast í samstarf
við aðila erlendis sem vilja vinna
með okkur. Við vorum til dæm
is að vinna með Waitrose, súper
markaði í Bretlandi sem býður
upp á ferskan og frosinn fisk. Við
fengum svo áhrifavalda sem eru
með sýningareldhús í London til
að vera með viðburð þar inni en
þá var kokkur frá þeim sem var að
elda ,,Fish and chips“ uppskriftina
úr Fishmas. Við buðum áhrifa
völdum að koma og þau deildu
efni inn á sína miðla. Þetta er
svona dæmi um hvernig er hægt
að vinna með aðilum úti á mark
aðinum.“
Ísland á mörgum
,,bucket-listum“
Blaðamaður náði tali af nokkrum
úr hópnum sem öllum fannst
upplifunin stórkostleg og
voru hæstánægð með það sem
Snæfellsnesið hafði uppá að bjóða.
Einnig heyrðist að enginn í hópn
um hafði á ævinni borðað jafnmik
inn fisk. Laura Martin, blaðamað
ur frá Bretlandi, sagði að upphaf
lega þegar hún sá fyrir sér Ísland
hafi náttúran og íslenska lamba
kjötið verið það sem hún hugs
aði til en ekki endilega fiskurinn.
Henni fannst mjög fræðandi að
læra um fiskiðnaðinn og stóð lax
inn hvað mest upp úr en hún seg
ir ekki mikið vera af bleikum fisk
í Bretlandi. Laura hafði heyrt um
háan standard Íslendinga á mat
sem húnn fékk sannreynt. Einnig
sagði hún Héðinn á veitinga
staðnum Bjargarsteini í Grundar
firði hafi staðið upp úr í ferðinni
þar sem vel var útskýrt hvaðan
allur maturinn kæmi, með mik
illi kímni sem virðist hafa fallið
vel í kramið hjá hópnum. Fisk
urinn sem borðaður hefur verið
í ferðinni er ferskari en hópurinn
hafði nokkurn tímann upplifað
og greinilegt að Íslandsstofu hef
ur vel tekist til með herferðinni.
Fannst flestum upplifunin hing
að til vera mögnuð, matur
inn tilkomumikill og alltaf góð
ur. Náttúran hefur einnig heill
að og ferska loftið sem finnst ekki
í stórborgum Evrópu. Laura tel
ur Ísland vera á mörgum listum
breskra ferðamanna yfir lönd sem
þykja spennandi til heimsókn
ar. Eina gallann telur hún vera að
Ísland er fremur dýr áfangastaður
en ætlar hún í umfjöllun sinni að
hvetja fólk til að heimsækja Ísland
og borða íslenska fiskinn.
Það er greinilegt að vel hefur
tekist til hjá Íslandsstofu að kynna
okkar mikilvægustu auðlind sem
fiskurinn er en Björgvin var mjög
ánægður með upplifun hópsins og
gengur sáttur frá vel heppnuðu
verkefni. sþ
Viktor Örn kokkur smakkar afrakstur dagsins með gestunum.
Hópurinn borðaði sex rétta fiskmáltíð á Sjávarpakkhúsinu í Stykkishólmi.
Áhrifavaldar ánægðir með daginn.
Ungir Hólmarar veiddu á stöng og sýndu gestunum aflann.
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Sunnudagur 29. maí
AKRANESKIRKJA
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
Velkomin til kirkju!