Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 20226
Rostungurinn
HVAMMST: Selasetur
Íslands og Náttúruminjasafn
Íslands opnuðu síðastliðinn
föstudag sýninguna „Rost
ungurinn – The Walrus,“ á
Selasetrinu á Hvammstanga.
Sýningin fjallar um íslenska
rostungsstofninn sem nýlega
var uppgötvaður og lifði hér
við land í nokkur þúsund ár, en
dó út við landnámið. Einnig
er fjallað um nytjar af rostung
um og þátt þeirra í menningu
Íslendinga og annarra þjóða.
Selasetrið er opið allt árið.
Nýja sýningin mun standa yfir
fram á vor 2024. -fréttatilk.
Hátt álverð stór-
bætir afkomu
OR
SV-HORN: Tekjur sam
stæðu Orkuveitu Reykjavík
ur á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs jukust um 14% frá
fyrra ári og er helsta skýringin
auknar tekjur Orku náttúr
unnar af raforkusölu til stór
iðju. Hagnaður tímabilsins
nam 6,8 milljörðum króna en
einskiptiskostnaður og tjón
í óveðrum febrúarmánað
ar hækkuðu rekstrarkostnað
tímabilsins miðað við fyrsta
ársfjórðung á síðasta ári. Árs
hlutareikningur samstæðu
Orkuveitu Reykjavíkur fyr
ir fyrsta ársfjórðung 2022 var
samþykktur á fundi stjórnar
OR á mánudag. Innan sam
stæðunnar eru, auk móðurfé
lagsins, Veitur, Orka náttúr
unnar, Ljósleiðarinn og Car
bfix. -mm
Undir áhrifum í
umferðinni
VESTURLAND: Það var
frekar rólegt hjá lögreglunni
á Vesturlandi í vikunni sem
leið. Helst bar þó til tíðinda
nokkrir ökumenn sem betur
hefðu setið heima. Um miðj
an dag síðasta þriðjudag ók
ökumaður út af veginum á
Bröttubrekku í Dölum eftir að
hafa mætt bíl. Lögreglan kom
á staðinn og kom þá í ljós að
ökumaður var sýnilega ölvað
ur og átti í erfiðleikum með
að blása í mæli. Hann slapp
ómeiddur og bíllinn skemmd
ist lítið en svo kom í ljós að
ökumaður hafði verið sviptur
ökuréttindum og því á akstri
próflaus. Í vikunni var ann
ar ökumaður tekinn á 102
km hraða á Vesturlandsvegi
við Bifröst þar sem hámarks
hraði er 70 km. Ökumaður
reyndist undir áhrifum kanna
bisefna og þá fannst smáræði
af efnum í bílnum. Um miðj
an dag á laugardaginn var
ökumaður tekinn undir áhrif
um áfengis og örvandi efna á
Akrafjallsvegi og loks á sunnu
daginn var annar tekinn á
Vesturlandsvegi undir áhrif
um kannabisefna.
-vaks
Opið hús á
Hnoðrabóli
BORGARBYGGÐ: Skólahús
næði Hnoðrabóls að Klepp
járnsreykjum var tekið í notk
un um áramótin 2020 2021
en vegna heimsfaraldurs var
formlegri opnun frestað. Föstu
daginn 27. maí næstkomandi
stendur til að halda opnunarhá
tíð og í tilefni þess verður opið
hús fyrir gesti og gangandi.
Húsið verður opið frá klukk
an 10:30 til 12. Formleg dag
skrá hefst kl. 11 með hátíðar
ræðu og kaffiveitingum. Starfs
fólk Hnoðrabóls hlakkar til að
sjá sem flesta með sól í hjarta.
-vaks
Sumaropnun í
Guðlaugu
AKRANES: Í byrjun mánað
arins hófst sumaropnun í Guð
laugu við Langasand á Akra
nesi. Nú er opið alla daga vik
unnar frá klukkan 12 til 20 og
frá klukkan 10 til 18 um helgar.
Stakur miði í Guðlaugina fyrir
18 ára og eldri kostar 500 krón
ur, stakur miði fyrir 15 til 17 ára
er 200 krónur og sama verð er
fyrir öryrkja og eldri borgara.
Frítt er fyrir 14 ára og yngri og
einnig frítt fyrir þá sem keypt
hafa árskort í Jaðarsbakkalaug.
-vaks
Hluti af starfsemi Fjöliðjunnar á
Smiðjuvöllum 9 á Akranesi var flutt
um miðjan apríl yfir götuna í nýtt
húsnæði á neðstu hæð á Smiðjuvöll
um 28. Að sögn Ástu Pálu Harðar
dóttur yfirþroskaþjálfa hjá Fjöliðj
unni vinna allir starfsmenn á báð
um stöðum en á nýja staðnum er
meira unnið við pökkun og hrein
legri vinnu og það henti mörg
um betur. „Það er rólegri stemn
ing hérna en grófari vinna hinum
megin eins og flöskumóttakan. Það
er róterað á milli staða og hver og
einn er með sitt dagsskipulag eins
og hentar þeim.“
Ásta Pála segir að nýja húsnæð
ið sé bjart, það sé gott loft í húsinu.
Starfsemin þyrfti þó meira pláss
ef hún mætti einhverju ráða. Þau
séu með alls kyns verkefni í opnu
rými og það henti ekki öllum að
vera þar. Stundum gleymist einnig
að Fjöliðjan er vinnustaður en ekki
afþreyingarstaður. Fram undan hjá
þeim er að vinna með bænum að
því að á milli vinnustaðanna geti
þau verið örugg með samgöngur,
að þau geti gengið á milli því það
vanti göngustíg og gangbraut og
það sé næsta skrefið. vaks
Á næsta tímabili gildandi sam
gönguáætlunar, eða árin 2025 til
2029, er áformað að hefjast handa
við gerð 2+1 vegar milli Hval
fjarðarganga og Borgarness. Nokk
ur undirbúningur er þegar hafinn
og beinist hann einkum að þeirri
leið sem Hringvegurinn liggur
um nú þ.e. frá Hvalfjarðargöng
um, austur fyrir Akrafjall framhjá
Grundartanga og þaðan norður
að Borgarfjarðarbrú. Svo áfram sé
haldið eru margir á því að núver
andi akleið milli Borgarfjarðarbrú
ar gegnum þéttbýlið í Borgarnesi
og norður fyrir gatnamót Hring
vegar og Snæfellsnesvegar sé ekki
heppileg leið til framtíðar fyrir
gegnumakstursumferð sem þar fer,
heldur sé farsælla að leggja sérstaka
hjáleið utan byggðarinnar.
Nú hefur Samgöngufélagið sett
í gang tvær skoðanakannanir þar
sem mæla á vilja íbúa til þessara
tveggja tillagna í samgöngumálum
á Vestur landi, þ.e. annars vegar fær
slu hringvegarins þannig að hann
verði lagður fyrir mynni Grunna
fjarðar og þannig stytt leiðina milli
Borgarness og Akraness um sjö kíló
metra. Hins vegar er kannað með
skoðun fólks á að færa hringveg
inn út fyrir byggðina í Borgarnesi.
Þessar kannanir verða í gangi til og
með 10. júní næstkomandi.
Nálgast má kannanirnar á vef
slóðinni https://www.envalys.is/
surveys en einnig á auglýsinga
borðum á vef Skessuhorns til 10.
júní nk. Loks má benda á aðsenda
grein Jónasar B Guðmundssonar
hjá Samgöngufélaginu sem birtist
hér í blaðinu í dag.
mm
Skjáskot úr kynningarmyndbandi Samgöngufélagsins sem birt er í könnuninni.
Þarna er horft til suðurs að Akrafjalli og yfir brú sem lögð yrði yfir mynni Grunna-
fjarðar.
Nýjar kannanir um legu Hringvegar
yfir Grunnafjörð og við Borgarnes
Starfsmenn eru hæstánægðir með nýju aðstöðuna. Ljósm. vaks
Fjöliðjan komin á nýjan stað