Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Page 9

Skessuhorn - 25.05.2022, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 9 ALLT UM MÓTIÐ Á UMFI.IS LANDSMÓT UMFÍ BLANDA AF ÍÞRÓTTAKEPPNI, ALMENNRI HREYFINGU OG GLEÐI FYRIR 50 ÁRA OG ELDRI. BORGARNES 24.-26. JÚNÍ UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR BORGARBYGGÐ Valgerður Jónsdóttir tónlistarkona hefur síðastliðið ár borið titilinn bæjarlistamaður Akraness. Í tilefni þess að titillinn mun nú brátt færast á nýjan listamann eða ­konu mun Valgerður standa fyrir tónleikavið­ burði í Tónlistarskóla Akraness á morgun, fimmtudaginn 26. maí, uppstigningadag, milli klukkan 13 og 15:30. Valgerður mun koma fram ásamt hljómsveit samansettri af samstarfsfólki hennar úr tón­ listinni ásamt Skólakór Grunda­ skóla og Karlakórnum Svönum. Valgerður mun flytja fjölbreytta tónlist eftir sjálfa sig á tónleikunum m.a. af kynningarplötu sem koma mun út í sömu viku. Viðburðurinn mun fara fram í þremur atrennum og geta gestir og gangandi kom­ ið og farið af vild yfir fyrrnefnda tímasetningu en boðið verður upp á nammi og svaladrykk á með­ an á tónleikunum stendur. Enginn aðgangseyrir er inn á viðburðinn en tekið verður við frjálsum fram­ lögum þar sem ágóði mun renna til Ljóssins, endurhæfingar­ og stuðn­ ingsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstand­ endur þess. sþ Seint á síðasta ári hófust fram­ kvæmdir við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum á Akranesi en það verður stærsta framkvæmd Akra­ neskaupstaðar um árabil. Um er að ræða fjölnota íþróttahús og er það einn áfangi af mörgum í áfram­ haldandi uppbyggingu íþrótta­ mannvirkja á svæðinu. Í þessum fyrsta áfanga verksins hefur Véla­ leiga Halldórs Sigurðssonar séð um gröft fyrir mannvirkinu og breytingar á lögnum í jörðu ásamt því að girða af vinnusvæðið. Í lok apríl var undirritaður samningur milli Akraneskaup­ staðar og Flotgólfs ehf. um upp­ steypu og ytri frágang íþrótta­ hússins á Jaðarsbökkum. Verk­ lok eru áætluð um mitt ár 2023. Jarðvinnu lýkur brátt og mun vinna við uppsteypu fara í gang á næstu vikum. Inannhússfrá­ gangur verður boðinn út haustið 2023 og lóðafrágangur í kjölfarið. Heildarverklok eru ef allt fer eftir áætlun haustið 2024. vaks Jarðvinnu að ljúka á Jaðarsbökkum Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona. Ljósm. Sigtryggur Ari Jóhannsson.z Bæjarlistakona Akraness kveður titilinn með tónleikum Árbók Ferðafélags Íslands 2022 er komin út og fjallar að þessu sinni um vestasta hluta Snæfells­ ness; svæðið undir Jökli. Höfund­ ur meginefnis er fræðimaðurinn og leiðsögumaðurinn Sæmundur Kristjánsson í Rifi en Daníel Berg­ mann skrifar náttúrukafla og tek­ ur langflestar myndirnar. Báðir eiga þeir ættir að rekja til Snæfells­ ness. Sæmundur starfaði lengi sem hafnarvörður í Rifshöfn og vann við verkstjórn hjá sveitarfélaginu í mörg ár. Samhliða þessu hefur hann veitt ferðamönnum leiðsögn um svæðið. Menningarnefnd Snæ­ fellsbæjar útnefndi hann Snæfelling ársins árið 2016 fyrir framlag hans til kynningar á sögu og náttúru Snæfellsness. Ferðafé lagið gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Hún hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Í formála Gísla Más Gíslasonar ritstjóra Árbók­ arinnar nú seg­ ir m.a. að Snæfellsnes hafi verið til umfjöllunar áður í þremur eldri bókum félagsins og var það fyrst 1932 þegar fjallað var um allt Nes­ ið að sunnan og norðan. Bókin í ár ber heitið Undir Jökli og undirtitill er Frá Búðum að Ennisfjalli. Þess má geta að í lok ávarps síns í upphafi bókarinnar vekur ritstjóri athygli á því að nýtt félag hafi bæst í hóp deilda Ferðafélagsins. Er það Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs sem stofnað var fyrir rúmu ári og birtir nú í fyrsta sinn starfsskýrslu í bókinni. gjSvæðið sem tekið er fyrir í bókinni. Teikning: FÍ. Sæmundur skrifar Árbók Ferðafélags Íslands Sæmundur Kristjánsson með bókina. Ljósm. Snæfellsbær.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.