Feykir - 30.11.2021, Síða 2
Jólin mín
Magnús Freyr Gíslason Sauðárkróki
Ómissandi að gera sem
allra minnst yfir hátíðirnar
Jólin eru… ansi
reglulega.
Hvað kemur þér í
jólaskap? National
Lampoon's Christmas
Vacation.
Hvert er besta jólalagið?
Merry Christmas Mr.
Lawrence.
Hvað finnst þér
ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Sem allra
minnst.
Hvað langar þig að fá í
jólagjöf? Playstation 5.
Bakar þú fyrir jólin?
Það væri þá ekki nema
vegleg skúffukaka.
Hver er uppáhaldskökusortin þín? Klassískar piparkökur.
Þegar hátíð skal halda er undirbúningur mikill.
Það á við um stórar stundir lífsins svo sem
brúðkaup, fermingu, stórafmæli svo eitthvað
sé nefnt. Eins er það þegar jólahátíðin nálgast
þá er hún undirbúin. Hversdeginum er lyft
upp og hátíð fer í hönd.
Það fylgja því blendnar tilfinningar að
undirbúa jólahátíðina og njóta hennar þegar
hún gengur í garð. Börnin fara að hlakka til,
segir í kvæðinu góða, og vonandi á það við
um öll Guðs börnin á hvaða aldri sem þau eru.
Undirbúningurinn er ekki bara hið ytra heldur
er aðventan tími íhugunar. Við hugsum um
hvað gefur lífinu gildi í raun og veru og hver
eru okkur kær. Í hugann kemur bæn Martins
Lönnebo, fyrrum biskups í Svíþjóð, sem orðaði
bænina fallegu: „Guð minn, ger mig ljósbera,
sem færi ljós og birtu öðrum.“
Boðskapur jólanna er skýr. Hann byggist á
fæðingu lítils drengs í Austurlöndum nær fyrir
rúmum 2000 árum. Svo mikil tíðindi voru það
og svo mikil áhrif hafði drengurinn á líf þeirra
sem voru samtíða honum og þeirra sem á eftir
komu að tímatal okkar er miðað við fæðingu
hans. Fyrir Krist og eftir Krist er sagt þegar
atburður er tímasettur í veraldarsögunni.
Fyrir gos og eftir gos segja Eyjamenn og í
fleiri samfélögum eða í lífi einstaklings eða
fjölskyldu er talað um atburði sem orsökuðu
afdrifaríkar afleiðingar.
Fæðing barns breytir miklu í lífi foreldr-
anna og þannig er það einnig þegar dreng-
urinn frá Nasaret „fæðist“ inn í líf einstaklings.
Í 3. kafla Jóhannesarguðspjalls er sagan um
Nikódemus sem kom um nótt og vildi fá að
tala við Jesú. Hann sem var lærifaðir í Ísrael
vissi sitthvað um Guð. Hann vildi ekki að aðrir
sæju að hann væri að ræða um Guð, lífið og
tilveruna við Jesú sem hafði þá þegar breytt
vatni í vín og sannfærst um að Guð væri með
Jesú.
Jesús bendir honum á að enginn geti horft
á sköpun Guðs og verk nema fæðast að nýju
eins og það er orðað í sögunni. Að fæðast að
nýju er að fá nýja sýn á lífið. Að fæðast að
nýju er að öðlast tiltrú á sjálfan sig og Guð. Að
fæðast að nýju er að koma út úr myrkrinu og
taka á móti ljósinu, ljósi lífsins.
Þessi saga um samtal Nikódemusar og
Jesú er lesin þegar fullorðið fólk er skírt því
hún segir frá fullorðnum manni sem öðlaðist
nýtt líf, nýja lífssýn eftir samtalið við Jesú.
Hann fæddist að nýju, hann varð nýr maður.
Jólin eru haldin hátíðleg í svartasta skamm-
deginu hér á Íslandi. Þá gengur ljóssins hátíð
í garð og andstæðurnar geta ekki orðið meiri.
Myrkur og ljós, ljós og myrkur. Við lýsum upp
umhverfið og fögnum því að láta ljósið lýsa
okkur á vegum okkar.
Megi ljós heimsins, Jesús sjálfur, barnið
sem í jötu var lagt, lýsa upp líf þitt, greiða þér
veginn til góðra verka og hjálpa þér að dreifa
kærleiksboðskap hans til samferðamanna
þinna nær og fjær.
Guð gefi þér gleði og frið á helgri jólahátíð.
Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Ísland
JÓLAHUGLEIÐING | Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands
Hátíð í svartasta
skammdeginuÚTGEFANDI
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Sími 455 7176, feykir@feykir.is
RITSTJÓRI & ÁBM.
Páll Friðriksson
palli@feykir.is
BLAÐAMENN
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir
siggag@nyprent.is
Klara Björk Stefánsdóttir
klara@nyprent.is
FORSÍÐUMYND
Helga Sjöfn Helgadóttir
Hátúni Skagafirði.
PRÓFARKALESTUR
Fríða Eyjólfsdóttir o.fl.
AUGLÝSINGASÖFNUN
Sigríður Garðarsdóttir
UMBROT & PRENTUN
Nýprent ehf.
JólaFeykir er prentaður í
3600 eintökum og er dreift
frítt í öll hús í Skagafirði og
í Húnavatnssýslum.
Jólin mín
Katrín Ingólfsdóttir Sauðárkróki
Rjúpur og Sörur
eru alveg ómissandi
Jólin eru… dásamlegur
tími til þess að eiga góðar
stundir með fjölskyldu og
vinum.
Hvað kemur þér í
jólaskap? Jólasnjór og
jólalög.
Hvert er besta jólalagið?
Ég fæ jólagjöf með Kötlu
Maríu.
Hvað finnst þér
ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Borða rjúpu á
aðfangadag.
Hvað langar þig að
fá í jólagjöf? Ekkert
sérstakt, bara að allir eigi
gleðileg jól.
Bakar þú fyrir jólin? Já, ég baka fyrir jólin.
Hver er uppáhaldskökusortin þín? Sörur eru alveg ómissandi.
Jólin mín
Björgvin Jónsson Hofsósingur á Akureyri
Stefnir á að fara í skötuveislu í Sveinsbúð
Jólin eru… ást og friður.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Strákarnir mínir.
Hvert er besta jólalagið? Ef ég
nenni (Helgi Björnsson).
Hvað finnst þér ómissandi að
gera yfir hátíðirnar? Fara í
skötuveislu í Sveinsbúð.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Dróna.
Bakar þú fyrir jólin? Nei.
Hver er uppáhaldskökusortin
þín? Lakkrístopparnir sem
mamma gerir.
2