Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 18
Margir muna eflaust eftir því þegar ungt
tónlistarfólk í Skagafirði tók sig til um sein-
ustu jól og hélt glæsilega jólatónleika í
beinu streymi frá félagsheimilinu Bifröst sem
nefndust Jólin heima. Sami hópur hefur nú
tekið sig saman og ætlar að halda Jólin heima
að nýju en nú í Menningarhúsinu Miðgarði,
vonandi fyrir fullum sal af fólki ef veður og
vindar, Þórólfur og Svandís leyfa. Markmiðið
er að halda tónleika þar sem ekkert er slegið
af, hvorki í söng né hljóðfæraleik.
Þeir sem koma fram og standa að tónleikunum
eru allir Skagfirðingar, sumir búsettir í firðinum, aðrir
námsmenn í Reykjavík og svo hann Gunnar Hrafn
Kristjánsson sem á sterk tengsl í fjörðinn. Við skulum
gefa Gunnari orðið:
-Pabbi minn er af Króknum og heitir Kristján
Gíslason. Hann er söngvari og starfar einnig sem
markaðssérfræðingur hjá VÍS. Hann er sonur Gísla
Kristjánssonar og Hólmfríðar (Díu) Ragnarsdóttur.
Mamma mín heitir Elín Greta Stefánsdóttir og er
mannauðsstjóri hjá Verkís. Hún er frá Hofsósi
en var í fjölbrautaskóla á Króknum. Hún er dóttir
Stefáns (Dedda) Gunnarssonar og Stefaníu Theodóru
Guðmundsdóttur.
Hvernig kemur það til að þú ert að fara að syngja á
þessum tónleikum? Hann Jóhann Daði heyrði bara í
mér og sagði að þetta væru skagfirskir tónleikar og
þá einfaldlega gat ég ekki sagt nei. Ég hafði heyrt af
þessum tónleikum þegar þeim var streymt í fyrra og
fannst þetta bara rosa flott verkefni. Síðan hjálpaði
það mjög mikið til þegar ég vissi að þeir yrðu haldnir
í Miðgarði, þá þurfti ég að slá til vegna þess að ég
hafði heyrt svo mikið um þennan stað. Pabbi hafði
giggað endalaust þarna og svo hafði auðvitað öll
stórfjölskyldan mín djammað ófá kvöld þarna þannig
að mér fannst þetta bara fullkomið tækifæri að halda
áfram með fjölskylduhefðirnar og setja mitt nafn þar
inn.
Hvernig líst þér á þetta? -Mér líst rosalega vel á þetta.
Ég söng síðast á svona tónleikum fyrir næstum því ári
síðan á Jólagestum Björgvins þannig það er kominn
smá tími síðan ég söng fyrir fólk, mig er eiginlega farið
að klæja bara. Ég er líka spenntur að fá að koma aftur
á Krókinn, alltof langt síðan síðast.
Lítur þú á þig sem Skagfirðing, ef svo er, að hvaða
leyti? -Já ég hika ekki við að kalla mig Skagfirðing. Þó
að ég hafi aldrei búið þarna sjálfur þá hef ég alltaf átt
þessa tengingu við Skagafjörðinn í gegnum sögusagnir
frá fjölskyldunni, bæði Hofsós-megin og Sauðárkróks-
megin. Systir pabba og maðurinn hennar eiga líka land
þarna þar sem ég hef eytt ófáum stundum og það er
eitthvað það skemmtilegasta og notalegasta sem ég
geri, að fara á Skefilsstaði. Síðan auðvitað á ég besta
afa í heimi sem býr rétt utan Sauðárkróks þannig ég
fyllist alltaf góðri tilfinningu þegar ég kem þangað.
Skín við sólu Skagafjörður. /SMH
Hægt er að nálgast miða á Tónleikana á Tix.is.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Kaupfélag Vestur Húnvetninga - Strandgata 1 • Sími 455-2300
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár
Gunnar Hrafn Kristjánsson.
Gunnar Hrafn vill halda í fjölskyldu-
hefðir og syngja í Miðgarði
Jólin heima 11. desember í Miðgarði
18