Feykir


Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 32

Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 32
„Ég er fæddur á Hvammstanga árið 1943 og ólst þar upp. Á sumrin var ég oftast í vegavinnutjöldunum með for- eldrum mínum út um sveitir og alltaf að snúast í kring um verkakarla, bílstjóra og ýtumenn. Að vetrinum gilti það sama og þá þvælst fyrir á vinnustöðum þegar ekki var skóli. Ekkert æskulýðsstarf og orðið afþreying sennilega ekki til, en mörgu fundið upp á og brallað með félögum á líku reki. Á tólfta ári fór ég í sveit og var þar í þrjú sumur. Þar kynntist ég hestum, spennti aktygin á „Brúnku gömlu“ og sat svo stundum argur á rakstrarvélinni. En það var gaman að hífa upp tindana og bruna heim á brokki. Keyrði líka jeppa og traktor og forframaðist í heiðagöngum síðasta haustið. Dvölin leiddi til þess að ég hef átt hesta í rúm 50 ár. Eiginkona mín er Elín Þormóðsdóttir frá Sauðadalsá á Vatns- nesi. Við eigum þrjú börn, sex barnabörn og fjögur langafa- börn.“ Hvenær fluttir þú frá Hvamms- tanga og hvað fórstu að gera? „Til Reykjavíkur flutti ég 1990 en þá hafði mér verið boðið að taka við starfi framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, Lánasjóðs sveit- arfélaga og Bjargráðasjóðs. Þetta voru samstarfsstofnanir með sameiginlegt starfsmanna- og skrifstofuhald. Þarna hélt ég áfram að fást við sveitar- Þórður Skúlason fyrrverandi sveitarstjóri á Hvammstanga ræðir um pólitíkina, húsin á Hvammstanga, jólin og besta stað í heim Nú í haust kom út bókin „HÚS OG HÍBÝLI Á HVAMMSTANGA 1898-1972“. Þetta er fróðleg og efnismikil bók um öll hús á staðnum, stærðir þeirra, eigendur og staðsetningu á þessu tímabili auk ljósmynda og korta. Höfundur hennar er Þórður Skúlason, fyrrverandi sveitarstjóri á Hvammstanga og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Af því tilefni ákvað FEYKIR að leggja nokkrar spurningar fyrir höfundinn sem beðinn er í upphafi að segja frá sjálfum sér og fjölskyldu. stjórnarmál en þó með öðrum hætti en fyrir norðan. Það var ekki staðið í neinum framkvæmdum.“ Hvernig kom það til að þú fórst að skrifa bókina Hús og híbýli á Hvammstanga? „Að- dragandinn að ritun bókar- i n n a r v a r sá, að farið var að grúska í sóknarmanna- tölum og íbúaskrám frá upphafi byggðar á staðnum. Kom þá í ljós að ýmislegt blundaði í fornu minni, frá því um miðja síðustu öld, bæði um híbýlin og fólkið sem í þeim bjó. Enn var þá búið í mörgum þessara fyrstu húsa og torfbæja og leifar eða rústir þeirra, sem ekki voru lengur í brúkun, voru enn sýnilegar og saga þeirra þekkt. Nú er fjöldi þessara húsa horfinn af sjónarsviðinu. Þetta átti aldrei að verða bók en ýmsir sem vissu af þessu grúski hvöttu mig til að koma þessu fyrir almenningssjónir. Síðan bauðst fyrrum sam- starfsmaður minn til þess að setja bókina upp og vinna ljósmyndirnar og bókaforlagið Í Vesturhópi er paradís Skriða tók þá djörfu áhættu að gefa bókina úr.“ Hvað er að þínu mati merkilegasta húsið? „Eftir- minnilegustu húsin eru versl- unar- og atvinnuhús Riis- verslunarinnar, Verslunarhús Jóns L. Hanssonar, sem KVH eignaðist seinna og Þinghúsið, sem bæði var skóla- og samkomuhús. Þetta voru stór og mikil hús, byggð um og upp úr aldamótunum 1900 og settu lengi mikinn svip á staðinn. Þau hafa nú öll verið rifin. Elstu uppistandandi húsin eru Gunnarshús, sem fyrst var byggt sem hesthús og var líka íbúðar- og verslunarhús og íbúðarhúsið Sjávarborg, sem tvisvar var flutt. Bæði eru þessi hús byggð 1906.“ Var eitthvað sem kom þér á óvart við skrifin eða gagnaöflun? „Það er þá helst hve sóknarmannatölin eru brotakennd á fyrstu árum byggðarinnar. Hvernig heiti húsanna færðust af einu þeirra á annað og hve sum hús hétu mörgum nöfnum. Það hús sem skráð er flestum heitum bar VIÐTAL Páll Friðriksson Paradís Þórðar er Grund í Vesturhópi. 32

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.