Feykir


Feykir - 30.11.2021, Síða 11

Feykir - 30.11.2021, Síða 11
heimafengnu góðgæti. „Við konan mín stofnuðum nýlega veisluþjónustu og erum farin að framleiða matvæli, m.a. chimichurri sem er mjög vinsæl grillsósa í Argentínu. Okkur langar að nota ærkjöt meira en gert er, til dæmis í grillpylsur, salami, spægipylsur, hrápylsur, lambanektar, paté og ýmislegt fleira og höfum verið að prófa það. Við viljum stuðla að ný- sköpun í íslenskri matarmenningu með því að vinna með íslenskt hráefni en nota uppskriftir og aðferðir frá Suður- Ameríku. Það eru fleiri hugmyndir í farteskinu. Við höfum tekið að okkur veislur og grillþjónustu og finnst okkur gaman að geta haldið veislur og boðið upp á allt þetta frábæra hráefni sem er ræktað í héraðinu.“ Edu segir að nú sé verið að vinna í því að þróa fleiri vörur úr ærkjöti og vonast hann til að koma góðri vörulínu á markað. „Vonandi opnum við grillbar Austan Vatna þar sem íslenskt hráefni verður grillað að argentískum sið.“ Algjör vetrarparadís Jólasiðir eru misjafnir í landi hverju eins og oft hefur verið bent á og gaman að bera saman. Edu segir að í Argentinu sé jólatréð yfirleitt sett upp í hlýjunni þann 8. desember en þá er hásumar svo bornir eru fram kaldir forréttir eins og atambre relleno, sem eru nautaslög í rúllupylsu, fyllt með soðnum eggjum, gulrótum, steinselju o.fl. og Vitel Toné, sem er kalt, soðið nautakjöt, sneitt með mæjónesi, kapers og ansjósum. Í aðalrétt eru margir með grillað svínakjöt eða naut en eftirréttur um jólahátíðarnar er Pan Dulce, sem er alveg eins og ítalska Pannetone, sætt brauð með þurrkuðum ávöxtum. „Ég elska jólin á Íslandi. Þetta er allt öðruvísi en í Argentínu. Hér er alveg kósí og mjög rólegt, dimmt og fallegt og mér finnst mjög gaman að fara á jólatónleika, bæði í kirkju og annars staðar. Þetta er algjör vetrarparadís. Ég hef verið nokkrum sinnum á Íslandi um jólin og það er mjög góður matur hjá okkur á Frostastöðum, tengdamamma mín býr til rosalega góðan jólamat, fiskihlaup, laxakæfu, laufabrauð, beinlausa fugla og allskonar gott. Ég er einnig nýbúinn að uppgötva innmat og var að enda við að elda dýrindis lambahjörtu og langar að skora á ykkur að prófa. Ég skal lofa ykkur því að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Þannig er að ég prófaði að snöggsteikja lambahjörtu og borða þau strax af pönnunni þó svo að allar uppskriftir segi að maður eigi að sjóða þau í nokkra klukkutíma. Þetta var alveg svakalega gott og bragðið allt öðruvísi heldur en eftir að búið er að sjóða þau. Þau voru mjög mjúk, skorin í þunnar sneiðar,“ segir Edu og skilur eftir uppskrift sem allir ættu að prófa í jólaundirbúningnum. Lambahjörtu krydduð með hvítlauk, timian, chiliflögur, salt og pipar, snögg- steikt upp úr smjöri. Þetta er hægt að borða með chimichurri, fersku salati eða með kartöflustöppu. Verði ykkur að góðu! Hin sígrænu jólatré skátahreyfingarinnar verða til sölu fyrir jólin eins og undanfarin ár. Muna að panta tímanlega. Nánari upp- lýsingar og pantanir í síma 867-5584. Jólatrén fást í mörgum stærðum og gerðum. www.sigraena.is Skátafélagið Eilífsbúar óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. KJARNANUM HESTEYRI 2 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 4570 Bílaverkstæði með Meguiar’s bílahreinsivörum Eigum mikið úrval af hágæða bílahreinsivörum frá Meguiar’s Verið velkomin í Kjarnann! 11

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.