Feykir - 30.11.2021, Side 13
Lesendur fá að vera með Sigga
litla, Jóhönnu vinkonu hans
og hundinum Ysju einn dag
í lífi þeirra. Bókinni er ætlað
að veita innsýn í daglegt líf
Íslendinga á árum áður út frá
sjónarhóli barns. Bókin kom út
á fjórum tungumálum; íslensku,
ensku, frönsku og þýsku og því
Bókin Sumardagur í
Glaumbæ er tilvalin jólagjöf
Berglind Þorsteinsdóttir fagnar jólum í pakkaflóði í Kakalaskála
Í haust gaf Byggðasafn Skagfirðinga út gullfallega barnabók, Sumardagur
í Glaumbæ, sem er prýdd vatnslitamyndum franska listamannsins Jérémy
Pailler en textinn er eftir safnstjórann, Berglindi Þorsteinsdóttur. Sögusviðið er
Glaumbær á seinni hluta 19. aldar en sagan er að mestu byggð á frásögnum af
fólki sem bjó í Glaumbæ og Skagafirði á þeim tíma.
alveg tilvalin í jólapakka. Öll
fjölskyldan ætti að hafa gaman
af bókinni en heppilegust er hún
fyrir lestrarhesta á aldrinum
3-12 ára.
Í kjölfar útkomu bókarinnar
var sett upp sýning í Áshúsi
á myndunum í bókinni og
voru þær til sölu. Sýningunni
lauk á sama tíma og sumar-
opnunartíma safnsins, 21.
það bil hundrað pökkum
er síðan komið fyrir við
tréð. Eftir kvöldverð á
aðfangadagskvöld er
gærum raðað á gólfið og
stólum raðað umhverfis
tréð. Pakkarnir eru
opnaðir og síðan er
leikið og spjallað
fram eftir kvöldi í
notalegheitum. Jóla-
dagur er slökunardagur,
allir í náttfötum eða
kósígöllum fram eftir
degi og borðað, leikið, lesið og
notið samverustunda frá morgni
til kvölds.“
Var einhver bók ómissandi
í desember þegar þú varst
krakki? „Snúður og Snælda í
jólaskapi eiga sérstakan stað í
hjarta mínu. Enda á ég hund
og nokkra ketti í dag.“
Hvert var jólalag
unglingsáranna? „Sko,
jólalag æsku minnar var
Last Christmas með Wham!
og kemur mér í jólaskapið.
Ég hef alltaf haldið mikið
upp á Jólaköttinn með Björk
Guðmundsdóttur en jólalög
unglingsáranna myndi ég segja
að hafi verið Christmastime
Stórfjölskyldan samankomin í Kakalaskála jólin 2012. AÐSENDAR MYNDIR
með Smashing Pumpkins og
Stay Another Day með East 17
þegar gelgjuskeiðið stóð sem
hæst.
Sumardagur í Glaumbæ fæst
í Skagfirðingabúð og helstu
verslunum Eymundsson sem og
vefverslun. Einnig í safnbúðum
Minjasafnsins á Akureyri,
Kakalaskála, Snorrastofu í
Reykholti og Þjóðminjasafns
Íslands og að sjálfsögðu í
Glaumbæ þar sem hún fæst á
3.500 kr. „Það er sjálfsagt að
senda bókina með pósti sé þess
óskað, innanlands sem utan,
og hvetjum við alla áhugasama
til að hafa samband við okkur,“
segir Berglind að lokum.
október. „Nokkur myndverk
bókarinnar eru þó enn óseld
og eru tilvalin jólagjöf og
framtíðareign fyrir fagurkera,“
sagði Berglind þegar JólaFeykir
hafði samband við hana. Hægt er
að skoða myndirnar, ásamt öðru
fallegu handverki og gjafavöru,
í litlu safnbúðinni í Glaumbæ. „Ef
einhver mynd er í uppáhaldi er
hægt að senda okkur fyrirspurn
um hvort hún sé óseld á
byggdasafn@skagafjordur.is,“
segir hún.
Stendur eitthvað til á
aðventunni hjá Byggðasafni
Skagfirðinga? „Við stefnum á
að vera með tvær rökkurgöngur
í gamla bænum í ár, 17. og
18. desember, ef aðstæður í
samfélaginu og sóttvarnarreglur
leyfa. Við hvetjum alla áhuga-
sama til að fylgjast með
Facebook-síðu safnsins þegar
nær dregur.“
Hvernig ætlar forstöðumaður
Byggðasafns Skagfirðinga
að fagna jólunum? „Síðustu
ár hefur skapast sú hefð hjá
tengdafjölskyldunni að halda
jólin saman í Kakalaskála, þar
sem systur mannsins míns og
fjölskyldur þeirra koma norður.
Stórt jólatré er sótt í Kúskerpi
og komið fyrir í skálanum.
Krakkarnir skreyta tréð og
skálann hátt og lágt og um
Sól var enn á lofti þrátt fyrir að orðið væri áliðið þegar feðgarnir nálgast
bæinn. Þá heyra þeir einkennilegt hljóð sem hljómar eins og ropi. „Þarna fer
Ropa-Katrín. Sú gamla hefur fengið kaffisopa hjá presthjónunum,“ segir faðir
Sigga. Siggi mundi eftir förukonunni sem hafði nokkrum sinnum áður komið
í Glaumbæ. Viðurnefnið fékk hún af því að hún var alltaf að ropa og heyrðust
roparnir langar leiðir. „Ropinn batnar af kaffi og engu nema kaffi,“ heyrði Siggi
hana segja við bóngóða húsfreyjuna í eitt sinn þegar hún rétti henni bollann.
Hún tók við bollanum með báðum höndum, réri fram og söng dátt: „Ó, finn ég,
hvað ég sýp. – Ó, finn ég, hvað ég sýp!“ Sigga fannst mikið til um rop-hæfileika
Katrínar koma og var leiður yfir því að hafa misst af heimsókn hennar.
VIÐTAL
Óli Arnar Brynjarsson
Bókin er prýdd fjölda fallegra mynda listamannsins Jérémy Pailler.
Brot úr bókinni Sumardagur í Glaumbæ
Ropa-Katrín
13