Feykir


Feykir - 30.11.2021, Síða 16

Feykir - 30.11.2021, Síða 16
Anna Steinunn, sem er fædd árið 1971, ólst upp fyrstu árin í gamla húsinu. Hún kennir við Árskóla á Sauðárkróki, er gift Sigurði Árnasyni, sem er frá Marbæli á skagfirska Langholtinu en starfar hjá Byggðastofnun. Saman eiga þau þrjú börn; Árna Frey, Bríeti Lilju og Þórð Ara. Foreldrar Önnu Steinunnar eru Friðrik Antonsson og Guðrún Þórðardóttir en hún er næstyngst fimm systkina, hin eru Grétar Þór, sem lést 2019, Þórleif Valgerður, Guðný Þóra og yngst er Elfa Hrönn. Friðrik fæddist í Hólakoti á Höfðaströnd og bjó þar til fjögurra ára aldurs en þá flutti fjölskyldan að Höfða. Hann tók síðar við búinu af foreldrum sínum og bjó og starfaði á Höfða alla tíð. Friðrik lést sumarið 2017 en Guðrún býr nú á Sauðárkróki. „Að alast upp í umhverfi sem þessu voru forréttindi því það Anna Steinunn Friðriksdóttir ólst upp á bænum Höfða á Höfðaströnd í Skagafirði. Gamla íbúðarhúsið var byggt árið 1891 og má segja að það hafi verið gert ódauðlegt í kvikmyndum Friðriks Þórs, Börnum náttúrunnar og ekki síst Bíódögum, þar sem húsið og nokkrir fyrrum íbúar þess léku stóra rullu. Gamla húsið var í sumar tekið af grunni sínum og flutt suður yfir heiðar og er að sjálfsögðu sjónarsviptir að þessu sögufræga húsi í Skagafirði. Unnið er að endurgerð þess á Jarðlangsstöðum rétt ofan við Borgarnes. Til að rifja upp jólin og lífið á Höfða hafði JólaFeykir samband við Önnu Steinunni. var alltaf einhver til staðar og alltaf var fang til að skríða upp í ef eitthvað bjátaði á,“ segir Anna Steinunn en gestkvæmt var á Höfða yfir sumartímann þar sem bæði vinir og vandamenn komu til lengri eða skemmri dvalar. „Stundum gistu milli 20 og 30 manns í gamla húsinu þegar mest var. Þar virtist alltaf vera nóg pláss enda líklega minni kröfur gerðar í þá daga. Það var oft þétt setinn bekkurinn við matarborðið og við krakkarnir sátum gjarnan í stiganum upp á loft við að matast.“ Lengstu og mest krassandi sögurnar náðu alla leið upp á Krók „Sagnahefðin var rík á heimilinu og kunnu Bríet, afi og pabbi vel þá list að segja sögur og gæða þær lífi,“ segir Anna. „Í uppvextinum minnist ég aðallega sagnanna af Grýlu sem Bríet sagði en þær spann hún upp jafnóðum. Sögusviðið var yfirleitt Höfðahólarnir þar sem Grýla lék lausum hala en stundum blandaðist fólkið í sveitinni inn í sögurnar og lenti gjarnan í heljarinnar svaðilförum og ævintýrum. Sögurnar gátu „Við búum í gamla húsinu til haustsins 1979 en þá flutti fjölskyldan í nýtt hús sem reist var spölkorn frá hinu gamla. Fram til þess tíma bjuggu á Höfða þrjár kynslóðir saman, foreldrar mínir og systkin, föðurafi og amma og uppeldissystir hennar sem hét Bríet. Afi deyr 1969 og amma 1979 og Bríet því sú eina af elstu kynslóðinni sem flutti með okkur í nýja húsið,“ segir Anna Steinunn Friðriksdóttir þegar JólaFeykir forvitnast hjá henni um síðustu árin í gamla húsinu á Höfða á Höfðaströnd. Fjölskyldan á fermingardegi Grétars Þórs árið 1973. verið þrenns konar og um það var samið áður en sagan hófst. Þær gátu náð niður að hliði sem þýddi að sagan var stutt og fremur einföld í sniðum. Svo voru það sögurnar sem náðu inn í Hofsós, þær voru lengri og söguþráðurinn flóknari og gátu orðið æsispennandi. En lengstu og mest krassandi sögurnar voru þær sem náðu alla leið upp á Krók, sem var í barnshuganum afar langt. Um jólaleytið náðu Grýlusögurnar oft hátindum þar sem Grýla fór hamförum, stal hangikjöti úr reykhúsum nágrannanna, skipaði Leppalúða og jólasveinunum út og suður, hnuplaði mjólkurbrúsum af bæjunum í kring og henti þeim síðan í Höfðavatnið eftir að hafa drukkið úr þeim. VIÐTÖL Óli Arnar Brynjarsson „Alltaf var fang til að skríða upp í ef eitthvað bjátaði á“ Stórfjölskyldan og Höfðavinir samankomnir á Höfðahátíð sumarið 2015. Á myndinni fyrir ofan er Anna Steinunn á gulum stígvélum og efst á næstu síðu er amma þeirra systkina að gæta Elfu Hrannar sem er bísperrt í barnavagninum. MYNDIR ÚR SAFNI FJÖLSKYLDUNNAR Efri mynd: Elstu þrjú systkinin, Grétar, Guðný og Þórleif. Höfði í bakgrunni. Mynd til hægri: Gurra húsfreyja í eldhúsinu á Höfða árið 1972. Stiginn sem börnin sátu í mötuðust þegar gestir fylltu eldhúsið sést lengst til hægri. Frá vinstri: Bríet Guðmundsdóttir, Friðrik Antonsson, Anton Jónsson, Guðríður Hjaltested, Guðný Friðriksdóttir, Þóra Antonsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Guðný Finnsdóttir, Þórður Sigurðsson og Friðrik Guð- mundsson. 16

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.