Feykir


Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 24

Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 24
viðri en úrkomulaust, skamm- degismyrkrið þykkt eins og veggur, næstum áþreifanlegt. Gömlu olíulamparnir rufu ekki stórt skarð í þennan vegg, jólaundirbúningurinn í fullum gangi. Um kvöldið, líklega milli 6 og 7, var sýnilegur eldur í eynni. Fyrst ekki meiri en svo að menn hugleiddu hvort brennt væri rusli. En brátt tók af allan vafa, það var eins og sprenging yrði, eldsúlan steig hátt til lofts og lýsti upp eyna sem dagur væri. Sinuhvítur Kaldbakurinn tók á sig fölrauðan lit af eldinum. Heima á Vatni varpaði hver mishæð, hvert hús og hver staur, dimmum skugga sínum á snjóflekkótta jörðina og hver norður- og vesturgluggi spegl- aði mynd sína á veggnum and- spænis og svo mun einnig hafa verið um Fellshrepp allan.“ Frásögn Guðbjargar og Þórdísar Í Málmey var allt sameiginlegt með fjölskyldunum, þ.e. eldhús og matargerð og búskapurinn allur. Nýlega var búið að byrgja upp fyrir veturinn, kjallarinn fullur af kolum og olíutunnur úti við húsvegginn. Nýlega var búið að setja upp ljósamótor. Seinni part sumarsins hafði verið lagt fyrir rafmagni í húsið og mótorinn tengdur og það var í mótorhúsinu sem eldurinn kviknaði. Hann hefur verið búinn að krauma alllengi niðri í kjallaranum því þegar Guðbjörg opnaði kjallarahlerann gaus þar upp svartur reykur og hún hrópa upp yfir sig. „Guð minn almáttugur, það er kviknað í.“ Mótorinn var í norðausturhorni kjallarans, yfir búrinu. Þegar kviknaði í húsinu voru öll börnin tíu í herberginu inn af eldhúsinu að hlusta á barnatímann. Þórdís, elsta stelpan, var með Loga í fanginu nokkurra mánaða gamlan. „Þá vitum við ekki fyrr til en Lindi kemur æðandi inn og þrífur í öxlina á einum krakkanum sínum og pabbi segir: „Hvurslags er þetta við barnið.“ Þá hrópar Lindi: „Það er kviknað í húsinu.“ Talstöðin var heit svo að strax var hægt að kalla í henni vegna þess að raf- hlöður útvarpsins voru tómar og við vorum að hlusta gegnum talstöðina. Hún var þarna í sama herbergi og pabbi fer strax og kallar: ,,Siglufjarðarradíó, Siglu- fjarðarradíó, neyðarkall frá Málmey.“ Þetta heyrði ég (Þórdís) frá honum um leið og ég fór frá húsinu.“ Frásögn Erlendar Á annan í jólum átti Morgun- blaðið tal við Erlend. Hann sagði að þau hefðu öll verið á neðri hæðinni þegar eldsins varð vart. Hann kvaðst sjálfur hafa verið Bruninn í Málmey Lokabindi Byggðasögu Skagafjarðar, það tíunda í röð þessa viðamikla og metnaðarfulla verkefnis sem Hjalti Pálsson hefur stýrt allt frá upphafi, er komið út. Þar er umfjöllunarefnið m.a. kauptúnin þrjú í austan- verðum Skagafirði, Grafarós, Hofsós og Haganesvík auk kafla um Drangey og Málmey og smájarðirnar sem fylgdu Hofsóshreppi. Feykir fékk leyfi höfundar til að birta kafla um brunann í Málmey sem varð rétt fyrir jólin 1951 en búskapur var í eynni, líklega allt frá landnámi enda gnægtabúr matar í og við eyna, fugl, fiskur og selur, auk þess að eyjan ber töluverðan bústofn. Málmey fór í eyði 1952, ári eftir brunann, og hefur ekki verið búið þar síðan. Í lýsingu um eyna segir m.a.: Málmey er á austanverðum Skagafirði, um 3 km norðvestur af Þórðarhöfða. Um 5,5 km eru til lands yfir Málmeyjarsund á Lónkotsmöl. Til Drangeyjar í suðvestri eru um 10 km. Eyjan er um 4 km á lengd og mest 650 m á breidd en mjókkar til beggja enda. Málmey er öll gróin en best ræktunarland er um hana miðja að austanverðu. Suður- enda eyjunnar hallar til vesturs og er þar grynnri jarðvegur. Svipað er að segja um norður- endann. Hann hallar til austurs og er þar gróskuminna. Trúlega veldur vatnsleysi að hluta þess- um mun á gróðurfari.“ Margar og ítarlegar frásagnir eru til um brunann í Málmey, bæði úr blöðum og einkaviðtölum og segir í Byggðasögunni að lítilsháttar misræmis gæti í þeim eins og verða vill þegar margir segja frá sama atburði. Verður hér gripið niður í nokkrar: Séð úr landi Axel Þorsteinsson (1927-2013), lengi bóndi í Litlu-Brekku, átti heima á Vatni á Höfðaströnd þegar bruninn varð. Þaðan sést vel til eyjarinnar yfir Höfðavatnið, Höfðamölina og Málmeyjar- sundið. Axel varð þetta atvik ógleymanlegt og lýsti því þannig: Daginn fyrir Þorláksmessu árið 1951 var „sunnan hörkuhvass- Úr fortíðinni palli@feykir.is Hluti úr umfjöllun í lokabindi Byggðasögu Skagafjarðar að mála ásamt Jakobi vinnu- manni en Þormóður var í her- bergi inn af eldhúsinu, þar sem talstöðin var. Eldurinn kom upp í kjallara hússins þar sem rafvélin var og reykinn lagði upp í eldhúsið með hlera í gólfinu þar sem konurnar voru. Erlendur ætlaði niður í kjallarann en varð að snúa við og kallaði upp að grípa börnin. Komst hann svo fram í ytri gang hússins með þrjú börn. Konurnar og Þormóður voru þar fyrir og um leið og þau hlupu út úr brennandi húsinu, gripu þau fáeinar yfirhafnir. Þormóður hljóp inn aftur og upp á loft og náði í þrjár sængur og kastaði út um glugga, ætlaði síðan niður stigann aftur en komst ekki, varð að fara niður af svölunum með því að renna sér niður aðra súluna. Allt gerðist þetta á fáeinum augnablikum. Strax var farið með börnin suður í fjárhúshlöðuna sem er um 300 m leið frá bænum. Þegar hópurinn komst að fjárhúshlöð- unni og leit til baka heim að íbúðarhúsinu stóðu eldtung- urnar út um glugga og dyr á hæðinni og innan stundar var húsið allt í ljósum logum. Taldi fólkið að það hafi brunnið á einni klukkustund. Í snatri var búið um börnin í geil rúmlega mannhæðar djúpri og um þrír m á hvern veg. Yfir geilina var settur tjaldræfill. Það kom sér vel þegar byrjaði að snjóa um nóttina og snjófjúk smaug undir þakskeggið. Fjósið var áfast norðan við bæinn og það brann. Jakob vinnumaður var sendur til þess að bjarga kúnum. Honum gekk það erfið- lega. Fór Þormóður honum þá til hjálpar. Kýrnar vildu snúa inn aftur er þær höfðu rekið höfuðið út um fjósdyrnar, en vindurinn stóð upp á þær. Svo þegar þeir ætluðu að bjarga hænsnunum sem voru í sér kofa þá voru þau köfnuð vegna þess að reykurinn stóð á kofann. Kýrnar, ásamt tarfi, voru reknar niður í fjárhús. Þar voru 150 ær. Voru allmargar látnar út til að koma kúnum inn. Fólkinu varð ekki svefnsamt um nóttina. Karlmennirnir fóru úr því sem þeir máttu missa til að skýla konum og börnum. Konurnar höfðu verið við eldhússtörfin, t.d. var Guðbjörg kona Þormóðs sokkalaus og í inniskóm. Börnin sofnuðu, en ekki vært, og þau eldri skulfu í svefninum. Handa minnstu börnunum mjólkuðu þau beint í pelann úr kúnum. Um nóttina voru ræddar horfur á björgun fyrst ekki varð komist út til þeirra strax um Málmeyjarhúsið 25. júní 1931. Hér er húsið 6 ára gamalt og í sínu besta standi. MYNDIR OG MYNDATEXTAR ÚR X. BINDI BYGGÐASÖGU SKAGAFJARÐAR Þann 24. júní 1931 kom Arthur Gook trúboði til Málmeyjar og fór til baka daginn eftir. Hann tók nokkrar ljósmyndir í eynni, m.a. þessa af heimilisfólkinu. Frá vinstri talið: Grímur Jósep Sigurðs- son frá Dæli í Fljótum, síðar útvarpsvirki Akureyri, Sigurður Ásgrímur Sigurðsson bróðir Gríms, dó 19 ára úr blóðkrabba, Jóhanna Gunnarsdóttir húsfreyja, Frans Jónatansson húsbóndi, Gísli Konráðsson meðeigandi, Gísli Sigurðsson bróðir Gríms, Klara Ísfold, síðar á Hofsósi, Sigríður Jóhanna Konráðsdóttir systir Gísla. 24

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.