Feykir - 30.11.2021, Síða 31
skutlast hingað og þangað að redda hinu
og þessu. Við getum hlegið að þessu núna
en í sannleika sagt þá var þetta alger
örvænting á köflum í sumar.“
Alþjóðlegur bragur á bryggjunni
Birna segir heppnina hafa verið með þeim
þegar hjá þeim sótti um vinnu ítalskur
kokkur sem vildi svo skemmtilega til að
vissi ekki að væri að sækja um starf úti á
landi. „Henni fannst við vera ansi afskekkt
á Íslandi en við náðum að telja henni
trú um að það væri mjög gott að búa á
Skagaströnd og hingað er hún komin og
systir hennar líka sem aðstoðar í eldhúsinu.
Við erum nokkuð alþjóðleg þegar kemur að
starfsfólki en hjá okkur starfa Íslendingar,
Ítalir, Króatar og Lithái.“
Matseðillinn hjá Harbour restaurant er
ekki stór en samt fjölbreyttur og þar ættu
allir að geta fengið eitthvað við sitt hæfi.
Birna segir að fram að þessu hafi vin-sælasti
rétturinn verið fiskur og franskar og verður
væntanlega gert ráð fyrir því að næsta sumar
verði meira af ferskum fiski á matseðlinum.
Sitthvað verður gert til að brjóta upp
hversdagsleikann í veitingabransanum
þar sem jólin eru framundan en einnig var
blásið til villibráðakvölds fyrir skömmu.
„Já, við vorum með villibráðarkvöld í
október. Silli kokkur kom og galdraði fram
girnilega villibráð eins og honum er einum
lagið. Það var vel sótt og mikil stemning
og gaman væri að endurtaka viðburðinn
að ári. Þá verðum við með jólahlaðborð
tvær helgar í nóvember sem Gunnar
Sveinn Halldórsson matreiðslumaður sér
um. Á matseðlinum má finna bæði nokkuð
hefðbundna jólarétti ásamt spennandi
nýjungum.“
-
Hvað er ómissandi á jólunum?
„Það sem er ómissandi á jólunum er
samveran. Við erum dugleg að koma sam-
an fjölskyldan yfir hátíðirnar og það er
ómetanlegt. Hver veit nema stórfjölskyld-
an komi saman á Harbour á aðfangadag
í ár og haldi jól með alþjóðlegu ívafi,“
segir Birna sem í kjölfarið er rukkuð um
uppskrift að meðlæti til að deila með
lesendum Feykis.
„Jólamatur hjá okkur fjölskyldunum
er nokkuð hefðbundinn en við erum með
hamborgarhrygg í aðalrétt og ómissandi
meðlæti er karrí-eplasósa, gular baunir
með smá mæjó og remúlaðikryddi og
„Waldorfsalat“ eða eiginlega rjóma ávaxta-
salat sem inniheldur vínber, gul epli
og þeyttan rjóma – og mikið af honum.
Tengdabörnin hafa haft orð á því að það
sé frekar skrítið að borða rjómasalat með
hamborgarhryggnum en okkur finnst það
algjörlega ómissandi. Ég ætla að deila
með ykkur karrí-eplasósunni. En aðalmálið
með hamborgarhryggnum er sósan hennar
mömmu.“
Að lokum vilja þau Harbour-eigendur
þakka þær frábæru viðtökur sem þau hafa
fengið frá viðskiptavinum sínum nær og
fjær.
Slavko Velemir, Birna Sveinsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir og Stefán Sveinsson.
AÐSENDAR MYNDIR
Karrí
eplasósa
Laukur og epli saxað smátt og brúnað
létt í smjörlíki ásamt karríinu, hveiti
bætt saman við. Þynnt út með soðinu.
Rjóma bætt við í lokin og smakkað til
með smá sykri, salti, sætu sinnepi og
Season-all.
1 epli
1 laukur
25 gr smjörlíki
1-2 msk. hveiti
1-2 tsk. karrí
Út var að koma hjá
Bókaútgáfunni Hólum
bókin Fimmaurabrandarar
3 sem unnin er upp úr
smiðju hins vinsæla
Fimmaurabrandarafjelags.
Hér á eftir verður gripið
niður í bókina:
Í gær ætlaði ég að segja
góðan brandara um IKEA
en ég er enn að setja hann
saman.
*
Hvernig bragð er af
stafasúpu? Nú, auðvitað
orðbragð.
*
Hatið þið það ekki þegar fólk
spyr spurninga og svarar
þeim sjálft? Ég geri það.
*
Ætli gæinn, sem fann upp
orðatiltækið „one hit wonder“,
hafi komið fram með annað
vinsælt orðatiltæki?
*
Hvar lærði Jesús að ganga á
vatni? Í Krossá.
*
Nú eru allir að tala um
hringrásarhagkerfið; endur-
nota, endurnýta, endurvinna.
En vilja endurnar þetta
endilega?
*
Ef skilvindan bilar, verður
mjólkin þá misskilin?
*
Ég hellti óvart G-mjólk í
sófann og það kom g-blettur.
Nær maður þessu úr með því
að nudda hann?
*
Ef maður gengur þá hleypur
maður ekki í spik.
*
Ég er að spá í að smíða
mitt eigið sjónvarpstæki.
Hvar ætli maður geti keypt
sjónvarpsefni?
*
Góður svefn er ekki aðeins
heilsusamlegur ... hann styttir
vinnudaginn líka heilmikið!
*
Þegar Aðalbjörg svarar
ekki í símann hringi ég í
Varabjörgu.
*
Jólin nálgast. Nú sitja margir
með hendur í skrauti.
*
Af hverju varð Gosi gjald-
þrota? Jú, hann var rukkaður
um svo mikinn nefskatt.
Ómótstæðilegir
fimmaura-
brandarar
Bókaútgáfan Hólar
31