Feykir


Feykir - 30.11.2021, Qupperneq 34

Feykir - 30.11.2021, Qupperneq 34
Jólatréð girt af með pappakössum Daði Hlífarsson og Erna Ósk Björgvinsdóttir á Króknum eiga rosalega fallegan hvítan hund af tengundinni Samoyed en þeir eiga uppruna sinn að rekja til Síberíu. Þeir eru með tvöfaldan þykkan feld og voru upphaflega ræktaðir sem sleðahundar og til að smala hreindýrum. Hvernig eignuðust þið Ölbu? Alba er fædd í fimm hvolpa goti á Akureyri 21. maí 2019. Við sáum gotið auglýst á Facebook og höfðum samband við ræktand- ann og kynntum okkur. Ræktandinn kom og heimsótti okkur á Sauð- árkrók til að kynnast okkur og heimilisað- stæðum nánar og í kjölfarið vorum við svo heppin að verða fyrir valinu sem eigendur Ölbu. Við fórum nokkur skipti að kíkja á hvolpana á Akureyri áður en við fengum svo að taka Ölbu með okkur heim 17. júlí 2019. Nafnið Alba var valið aðallega út af því að þeim þótti það fallegt en það hefur einnig tengingu við hvíta litinn og þýðir hvít á latnesku. Alba á líka ættbókarnafn hjá HRFÍ sem er valið af ræktandanum og er það Pearl en það er eingöngu notað þegar við förum með hana á hundasýningar. Hvað er skemmtilegast og erfiðast við Ölbu? Alba er mjög skemmti- legur hundur og er nánast alltaf glöð en Daði er Skagfirðingur, fæddur og uppalinn á bænum Víðiholti í Seyluhreppi hinum forna. Erna kemur frá Skagaströnd og á einnig ættir að rekja austur á land. AÐSEND MYND Gæludýrið mitt siggag@nyprent.is Daði og Erna Ósk | Hundurinn Alba Samoyed hundar eru sérstaklega þekktir fyrir brosið sitt. Hún vill alltaf leika við allt og alla og það er ekki til dropi af grimmd í henni. Okkur þykir einna skemmti-legast að fara öll saman í góðan göngutúr þar sem Alba fær að hlaupa laus og allra best ef það er í miklum snjó og snjókomu, þá er mikið fjör og hún nýtur sín alveg í botn. Hún er líka mikið kúrudýr og á það til að sofa í hinum furðu-legustu stellingum. Það erfiðasta við að eiga svona hund er að halda húsinu hreinu! Stórum og miklum feldi fylgir mikið hárlos á tímabilum en einnig berast oft ýmis óhreinindi inn með feld- inum og loppunum eftir útiveru. Eruð þið með einhverja sniðuga eða merkilega sögu af gæludýrinu? Hún er ótrúlega fyndin þegar hún vill ná athygli okkar hérna heima en þá fer hún inn á baðher- bergi og sækir sér heila klósettrúllu og labbar með hana í kjaftinum í hringi í kringum borðstofuborð- ið grafalvarleg þangað til við veitum henni athygli. Hún á það einnig til að misskilja og halda að allt sem hreyfist vilji leika við hana. Til dæmis lömbin Alba kampakát úti í náttúrunni. SÍMANÚMER FYRIRTÆKJA Í KJARNANUM FJÖLNET S: 455 7900 BIFREIÐAVERKSTÆÐI S: 455 4570 I Fax 455 4571 VÉLAVERKSTÆÐI S: 455 4560 I Fax 455 4561 Jón Geimundsson pípulagningameistari S: 825 4565 TENGILL ehf. S: 455 9200 I Fax 455 9299 HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI SÍMA ER FYRIRTÆKJA Í KJARNANUM & & 455 9200 & 455 4570 & 455 4560 Jón Geirmundsson pípulagningameistari & 825 4565 SÍMANÚMER FYRIRTÆKJA Í KJARNANUM FJÖLNET S: 455 7900 BIFREIÐAVERKSTÆÐI S: 455 4570 I Fax 455 4571 VÉLAVERKSTÆÐI S: 455 4560 I Fax 455 4561 Jón Geimundsson pípulagningameistari S: 825 4565 TENGILL ehf. S: 455 9200 I Fax 455 9299 HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI 34

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.