Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 1
Barnið titraði og skalf Loksinsblúsað Olga Keptanar horfði á dóttur sína Viktoríu titra og skjálfaþegar sprengjur féllu á þorpið hennar. Hún tók þá ákvörðun í skyndi og yfirgaf land sitt, eigin- mann og foreldra til að koma barninu í skjól. Til Íslands eru komnir um sex hundruð flótta- menn frá Úkraínu, aðallegakonur og börn. Morgunblaðið ræddi við úkraínskar mæður sem eru þakklátar að fá hér hæli en óttast um afdrif þjóðar sinnar. 12 10. APRÍL 2022SUNNUDAGUR Bjarni Tryggvason,eini Íslendingurinnsem farið hefur út ígeiminn, hugsaðialltaf með hlýju heimtil gamla landsins. 10 Síungt Sögufélag„Við erum ungur öldungur, “ segir Hrefna Róbertsdóttir, forseti Sögufélags. 8 Blúshátíð íReykjavík er ínæstu viku eftirlangt hlé.GuðmundurPéturssonverður þar í góðum blúsgír. 2 Geimfari kveður ÆFAVIÐBRÖGÐ Á FREYJU VARNARÆFING NORÐUR-VÍKINGUR, 22 L A U G A R D A G U R 9. A P R Í L 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 84. tölublað . 110. árgangur . Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn Audi e-tron 50 Pro-line Verð frá 9.690.000 kr. Stillanleg loftpúðafjöðrun, íslenskt leiðsögukerfi og fjarhitun. Búnaður bifreiða til sölu getur verið ólíkur þeirri sem sýnd er á mynd. Laugavegi 172, 105 Rvk. www.hekla.is/audisalur Eigum nokkra lausa til afhendingar strax LEIKMENN PHOENIX TIL ALLS LÍKLEGIR NBA-DEILDIN 49 Íslensk kona hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal og brot í nánu sambandi gagnvart fjór- um stjúpbörnum sínum. Hún var sökuð um að hafa haft þau í nauð- ungarvinnu þegar þau voru börn að aldri. Þetta er fyrsti dómurinn í mansalsmáli síðan árið 2010 og sá fyrsti eftir að lögum um mansal var breytt á síðasta ári. Kolbrún Benediktsdóttir vara- héraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að dómurinn hafi fallið á fimmtudaginn, en hann hefur ekki enn verið birtur á vef Héraðsdóms Reykjaness. Konan var gift föður barnanna og var í ákæru sögð hafa flutt börnin til landsins. Þá var hún sögð hafa hýst þau og útvegað þeim vinnu hjá fyrir- tæki þar sem hún var verkstjóri og stýrði daglegum rekstri. Sagði í ákærunni að þrjú barnanna hefðu verið látin vinna allt að þrettán klukkustundir á dag, sex til sjö daga í viku. Fjórða barnið hafi hins vegar unnið í allt að tvær klukkustundir, þrjá daga vikunnar. Laun barnanna, sem metin voru á rúmar 16 milljónir, átti konan að hafa nýtt í eigin þágu. Kolbrún segir að málið hafi mikla þýðingu, enda sé það fyrsti dómur- inn um mansal síðan fimm menn frá Litháen voru dæmdir í 4-5 ára fang- elsi fyrir að hafa svipt unga konu frelsi. thorsteinn@mbl.is Dæmd fyrir mansal - Fyrsti dómur um mansal í tólf ár - Braut á börnum Sprengikraftur mynda er heiti stærstu sýningar með verkum eftir Erró sem sett hefur verið upp hér á landi og verður opn- uð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag en á henni eru um 300 verk frá öllum ferli listamannsins dáða. Erró verður níræður seinna á árinu og starfar enn af kappi að list sinni. Hann tók á móti gestum í Hafnarhúsinu í gær, m.a. skólasyst- ur úr Myndlistarskólanum, Sigríði Björnsdóttur, listmeðferð- arfræðingi og ekkju myndlistarmannsins Dieters Roth. Urðu þar miklir fagnaðarfundir en Sigríður er 93 ára. »45 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Erró fagnaði skólasystur í foropnun listsýningar sinnar Lyubomyra Petruk er stjórnarformaður Félags Úkra- ínumanna hér á landi. Hún gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að taka ekki afgerandi afstöðu gegn Rússum. „Íslendingar stæra sig af því að vera lítið land en samt sterk þjóð. Þeir voru fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Litháens. Þeir tóku vel á móti Fischer. Af hverju vilja þeir ekki núna vera fyrsta þjóðin til að taka afgerandi af- stöðu gegn Rússum? Það er kannski slæmt fyrir viðskipti og pólitíkina. En við erum að tala um að standa vörð um mannréttindi. Ég vil að óvinurinn minn verði veikari,“ segir hún í viðtali við Sunnudagsblaðið um helgina, en þar er einnig rætt við sterkar úkraínskar mæður. „Ég vil að óvinurinn minn verði veikari“ - Íslendingar taki afgerandi afstöðu Lyubomyra Petruk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.