Morgunblaðið - 09.04.2022, Side 2
- Framboðum í borginni fækkar um fimm milli kosninga - F-listinn býður ekki fram á Seltjarnarnesi
„Við munum veita þeim svigrúm
fram til úrskurðar. Það eru ekki
gerðar of stífar tímakröfur og fram-
boðin fá raunverulegt tækifæri til að
bæta úr,“ segir Eva.
F-listinn ekki í framboði
Á Seltjarnarnesi verða framboðin
til sveitarstjórnarkosninganna þrjú
talsins; A-listi Framtíðarinnar, D-
listi Sjálfstæðisflokks og S-listi Sam-
fylkingarinnar og óháðra.
Ekkert varð úr framboði F-listans
undir forystu Skafta Harðarsonar,
formanns Samtaka skattgreiðenda,
eins og til stóð.
Að sögn Skafta má meðal annars
rekja ákvörðunina til persónulegra
ástæðna en þá hafi endurnýjun á list-
um flokkanna í sveitarstjórn einnig
haft áhrif.
„Það er mikil endurnýjun í meiri-
hlutanum og við töldum einfaldlega
að grunnurinn væri ekki sambæri-
legur við það sem var fyrir fjórum
árum. Þannig að það var í rauninni
ákveðið að kljúfa ekki þá borgara-
legu hreyfingu á Nesinu meira en
þörf væri á og bjóða ekki fram að
þessu sinni.“
Skiptar skoðanir voru um ákvörð-
unina en á endanum varð þetta nið-
urstaðan, segir Skafti. hmr@mbl.is
Alls skiluðu ellefu framboð inn list-
um fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar í maí, en skilafrestur rann
út á hádegi í gær.
Flokkarnir sem skiluðu inn listum
eru Samfylkingin, Sjálfstæðisflokk-
urinn, Viðreisn, Framsóknarflokk-
urinn, Vinstri-græn, Flokkur fólks-
ins, Miðflokkurinn, Píratar,
Sósíalistaflokkurinn, Reykjavík –
besta borgin og Ábyrg framtíð.
Framboðin í ár eru nokkru færri
en fyrir síðustu kosningar þegar 16
listum var skilað inn.
Úrskurðað verður um lögmæti
framboðanna í dag þegar búið er að
fara yfir listana; meðmælendur og
undirskriftir. Ef eitthvað stenst ekki
kröfur verður frestur veittur til að
gera úrbætur, að sögn Evu B.
Helgadóttur, formanns yfirkjör-
stjórnar.
Ellefu flokkar bjóða fram í Reykjavík
Hópar menntskælinga klæddir í ýmiskonar búninga fjöl-
menntu í miðbæ Reykjavíkur í gær til að dimmitera. Ekki er
annað hægt að segja en að þeir hafi verið heppnir með veður
en glampandi sól var á himni og hreyfði varla vind.
Nemendur Menntaskólans í Reykjavík voru afar hressir
þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Skörtuðu
þeir glæsilegum íkornabúningum og var fylgihluturinn að
sjálfsögðu hneta, að ógleymdum ómissandi farsímanum fyrir
sjálfurnar.
Morgunblaðið/Eggert
Menntskælingar slettu úr klaufunum
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
TVÆR VIKUR Á ALBÍR EÐA BENIDORM
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
19. APRÍL - 03. MAÍ 2 VIKUR
MELIA BENIDORM 4*
VERÐ FRÁ167.900 KR
TVÍBÝLI MEÐ HÁLFU FÆÐI
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
19. APRÍL - 03. MAÍ 2 VIKUR
HOTEL SUN PALACE ALBIR 4*
VERÐ FRÁ129.900 KR
TVÍBÝLI MEÐ MORGUNVERÐI
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ríkisendurskoðun féllst í gær á
beiðni Bjarna Benediktssonar fjár-
málaráðherra um að gera úttekt á
því hvort útboð og sala á 22,5%
hlut ríkisins í Íslandsbanka 22.
mars sl. hafi samrýmst lögum og
góðum stjórnsýsluháttum. Er
stefnan sett á að skila niðurstöðum
í júní.
Þingmenn minnihlutans voru þó
ekki sáttir en þeir höfðu farið fram
á að rannsóknarnefnd Alþingis
rannsakaði sölumeðferðina. Krafa
þeirra var ekki samþykkt í gær
þegar þingfundi lauk og var það
harðlega gagnrýnt. Þingið er nú
komið í frí fram yfir páska og því
ekki hægt að afgreiða kröfuna á
næstunni.
Segir lög ekki hafa
verið brotin
Sigríður Benediktsdóttir, hag-
fræðingur við Yale-háskóla og
fyrrverandi framkvæmdastjóri
fjármálastöðugleikasviðs Seðla-
banka Íslands, telur að sölumeð-
ferðin hafi brotið í bága við 3. gr.
og mögulega 2. gr. laga um sölu-
meðferð eignarhluta ríkisins í fjár-
málafyrirtækjum.
Á brotið að felast í því að valdir
voru yfir 150 aðilar sem keyptu
magn bréfa sem var svo lítið að
það hefði ekki hreyft við markaðs-
virði Íslandsbanka ef þeir hefðu
keypt bréfin á eftirmarkaði.
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri
Bankasýslu ríkisins, vísar þeim
ásökunum á bug og segir ekki
samræmi milli umræddra laga-
greina og þess sem Sigríður vitnar
í. Þá hafnar hann því að forsendur
útboðsins hafi ekki staðist, eins og
haldið hefur verið fram. Hann vek-
ur jafnframt athygli á því að
hvergi hafi komið fram að einblína
ætti á langtímafjárfesta eða að
takmarka ætti fjölda þeirra við
nokkra tugi. Hann segir aðilana á
listanum ekki hafa verið handvalda
heldur hafi verið stuðst við skil-
greiningu um „hæfa fjárfesta“.
hmr@mbl.is
Beiðni fjármálaráð-
herra samþykkt
- Forstjórinn vísar ásökunum á bug
Morgunblaðið/Eggert
Sala Seldur var 22,5% hlutur.