Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 holabok.is • holar@holabok.is Ingvar Viktorsson afmælisrit Ungmennið Ingvar Viktorsson er 80 ára í dag hvort sem menn trúa því eða ekki. Af því tilefni kemur út í nóvember afmælisrit honum til heiðurs - stútfullt af fróðlegum og skemmtilegum sögum. Þeir sem vilja senda Ingvari afmælis-kveðju á þessum tímamótum og jafnframt eignast ritið eru beðnir að senda nafn sitt á netfangið: ingvar80ara@gmail.com eða hringja í síma 690- 8595. Verðið er 6.900 og innheimtist í gegnum heimabanka. Ritnefndina skipa: Guðmundur Árni Stefánsson, Lúðvík Geirsson og Guðjón Ingi Eiríksson. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þúsundir Íslendinga og erlendra ferðamanna stunda útivist á Trölla- skaga og er fjallaskíðamennska vin- sæl. Fjögur fyrirtæki eru með þyrl- ur í sinni þjónustu til að flytja gesti upp í fjöllin en meirihlutinn er þar þó á eigin vegum eða í minni hóp- um með leiðsögn. Fjögur skíðaslys hafa orðið á Tröllaskaga frá því um miðjan mars og hefur einn erlendur ferðamaður látist. Alloft hafa fallið snjóflóð á vin- sælum skíðastöðum, bæði af völdum fjallaskíðafólks og af náttúrulegum ástæðum. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að snjór er víða óstöð- ugur eftir umhleypinga í mars en snjóað hefur ofan á hjarnið á Vest- fjörðum, Norðurlandi og Aust- fjörðum. Fjölmörg nokkuð stór flekaflóð féllu í norðan hraglanda í Skíðadal um og eftir síðustu helgi en minni flóð hafa fallið undan skíðamönnum í Hjaltadal, Þorvalds- dal og í Skeiðsfjalli í Svarfaðardal í þessari viku. Snjóflóð fylgja aukinni umferð Þrír bandarískir fjallaskíðamenn á fertugsaldri urðu fyrir síðastnefna flóðinu. Einn lést og hinir tveir eru alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norð- urlandi eystra í gærmorgun kom fram að allir eru þeir vanir fjalla- menn og vel búnir. Magni Hreinn Jónsson, hópstjóri ofanflóða hjá Veðurstofunni, segir að ekki hafi orðið vart við að breyt- ingar í náttúrunni orsaki tíðari snjóflóð. Snjóalög séu mjög breyti- leg á milli mánaða á Íslandi. Hann telur að fjölgun snjóflóða á Trölla- skaga tengist breyttri ferðahegðun og útivist. Þegar fólk er mikið á ferð í brattlendi fylgi því að snjóflóð falla. Fjögur þyrlufyrirtæki Fjögur fyrirtæki bjóða þyrlu- skíðaferðir á Tröllaskaga og hefur sú grein verið vaxandi. Tekið skal fram að Bandaríkjamennirnir voru ekki á vegum þessara fyrirtækja. Halldór Óli Kjartansson, verkefna- stjóri hjá Markaðsstofu Norður- lands, segir að fyrirtækin séu í al- þjóðlegri samkeppni en Ísland sé að ná stærri hluta af kökunni. Þyrluskíðamennskan er komin á fullt eftir að hafa verið í lágmarki í kórónuveirufaraldrinum. Telur Halldór Óli að bókanir séu ekki minni en var fyrir faraldurinn. Það verði þó að koma í ljós að lokinni vertíð hvort aukning hafi orðið. Rætt var um að þúsund gestir hefðu nýtt þessa þjónustu fyrir far- aldur en Halldór segist ekki hafa upplýsingar um fjöldann, þeir séu þó örugglega ekki fleiri en það. Þurfa að standast kröfur Spurður um öryggismálin bendir hann á að mjög fjölbreyttur hópur stundi fjallaskíðamennsku á Trölla- skaga. Sumir séu með leiðsögu- menn en aðrir á eigin vegum. Hann segir að mikil reynsla sé hjá þyrlu- skíðafyrirtækjunum enda verði þau að fara að ýtrustu öryggiskröfum til að standast alþjóðlega samkeppni. Telur hann að þeir sem stunda fjallaskíðamennsku á eigin vegum séu mun stærri hópur en þeir sem nýta sér þyrlurnar. Þúsundir á fjallaskíðum - Tröllaskagi er vinsæll leikvangur fyrir erlenda ferðamenn sem sækja í þyrlu- skíðamennsku - Enn fleiri nota tvo jafnfljóta - Fjögur skíðaslys orðið í vetur Morgunblaðið/Bjarni Helgason Tröllaskagi Hlíðar fjallanna á Tröllaskaga eru vinsælar til útivistar, jafnt hjá erlendum ferðamönnum sem inn- lendum hópum eða einstaklingum. Þessi mynd er tekin í nágrenni Siglufjarðar. Fjölmargir skíða á eigin vegum. Fjögur skíðaslys á Tröllaskaga 16. MARS Ólafsfjörður við Vermundastaði 27. MARS Siglufjörður 30.MARS Dalvík, Karlsá 7. APRÍL Svarfaðardalur ofan við Skeið Agnes Jóhannsdóttir lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brák- arhlíð í Borgarnesi 7. apríl sl., 95 ára að aldri. Agnes fæddist í Keflavík 19. janúar 1927. Hún var dóttir hjónanna Guðrúnar Pétursdóttur og Jó- hanns Gunnlaugs Guð- jónssonar. Bræður hennar, Guðjón Ingi- ber, Pétur og Jón, eru allir látnir. Æskuárin í Keflavík voru viðburðarík gleði- ár en sorgum blandin, lituð af hinum skelfilega bruna í Skuld, en Agnes komst út úr húsinu ósködduð sjö ára gömul, og svo berklafaraldrinum sem hjó skörð í hóp jafnaldra hennar. Agnes tók virkan þátt í skátastarfi með Heiðarbúum þar sem hún fékk m.a. óbilandi áhuga á söng og leiklist. Agnes hlaut hefðbundna menntun í Barnaskóla Keflavíkur, en hleypti svo heimdraganum og var einn vetur í Héraðsskólanum í Reykholti í Borgarfirði. Síðar stundaði hún nám við Leiklistarskóla Lárusar Páls- sonar og tók þátt í nokkrum leiksýn- ingum, m.a. í revíunni Bláu stjörn- unni í Sjálfstæðishúsinu og söng- leiknum Einu sinni var í Iðnó en eftirminnilegast var að hlaupa um stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu og hrópa að eldur væri í Kaupinhöfn í Íslands- klukkunni rétt eftir vígslu hússins árið 1950. Agnes starfaði við ýmislegt sem til féll í Keflavík og í Reykjavík frá unga aldri, m.a. starfaði hún nokkur ár í kaupfélaginu í Kefla- vík og rak lítið útibú þess rétt rúmlega tví- tug. Hún var seinna fé- lagi í Kvenfélaginu Hringnum og Inner Wheel og átti auðvelt með að halda ræður, hvort sem var undirbúið eða beint frá brjóstinu. Árið 1952 giftist hún Haraldi Sveinssyni, forstjóra Timburversl- unarinnar Völundar, sem síðar varð framkvæmdastjóri Morgunblaðsins og stjórnarformaður Árvakurs um árabil. Haraldur lést árið 2019, 94 ára að aldri. Börn þeirra Agnesar eru Soffía, Ásdís, Jóhann og Sveinn. Barnabörnin eru fimm og lang- ömmubörnin sex. Agnes tengdist Morgunblaðinu alla tíð sterkum böndum. Á kveðju- stund þakkar blaðið samfylgdina og vottar fjölskyldu hennar dýpstu sam- úð. Agnes verður jarðsungin frá Langholtskirkju laugardaginn 23. apríl og hefst athöfnin kl. 14. Andlát Agnes Jóhannsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviða- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, átti í gær fund með Vig- dísi Häsler Sveinsdóttur, framkvæmda- stjóra Bænda- samtaka Íslands, og stjórn samtak- anna vegna um- mæla sem Sig- urður lét falla í garð Vigdísar á samkomu í tengslum við Búnaðarþing um síðustu helgi. Að fundi lokn- um í gær birti Vigdís færslu á sam- félagsmiðlum og segir þau Sigurð Inga hafa átt „hreinskilið, heiðarlegt og opið samtal“. Segist Vigdís hafa meðtekið af- sökunarbeiðni Sigurðar Inga og hún hafi upplifað hana sem einlæga. Mál- inu sé lokið af hennar hálfu. Ummælin í garð Vigdísar lét Sig- urður falla þegar taka átti mynd af starfsmönnum Búnaðarsamtakanna að lyfta henni í „planka“. Myndin hefur verið í dreifingu á samfélags- miðlum, sem og sambærileg mynd sem tekin var á samkomu með Mið- flokknum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherra Sigurður Ingi kemur út af fundi með fjölmiðla á eftir sér. Meðtók afsökun ráðherra - Vigdís og Sigurður Ingi funduðu í gær Vigdís Häsler

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.