Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 11
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hreinsun gatna og stíga hjá Reykja- víkurborg hófst upp úr 20. mars, að sögn Hjalta J. Guðmundssonar, skrifstofustjóra reksturs og umhirðu borgarlandsins hjá Reykjavíkur- borg. „Við vinnum eftir verkáætlun sem hægt er að sjá á reykjavik.is/ hreinsun. Ég held að þetta hafi gengið alveg bærilega,“ sagði Hjalti. „Við tökum stofnbrautir fyrst og helstu göngu- og hjólastíga. Það er gert til að hreinsa fyrst þá stíga sem eru mest notaðir svo hjólafólk og gangandi verði fyrir sem minnstum vandræðum.“ Hægt er að fylgjast með framvindu hreinsunarinnar í Borgarvefsjá á vef Reykjavíkur- borgar. Hreinsunin er öll boðin út og sjá því verktakar um sópun, hreinsun og þvott gatna, stétta og stíga. Hjalti sagði að verkið sé mjög umfangsmik- ið og taki því margar vikur. Reiknað er með að hreinsuninni ljúki að fullu í byrjun júní. „Stígarnir eru samtals 820 kíló- metra langir. Við vetrarþjónustum götur sem jafnast á við allan hring- veginn og eru samtals 1.200 til 1.300 kílómetra langar. Þessar götur eru einnig hreinsaðar á vorin,“ sagði Hjalti. Íbúar fá sent SMS áður en hreinsun þeirra gatna hefst. Uppsópið af götunum fer í svo- nefnda sópþró sem uppfyllir öll mengunarskilyrði, enda getur efnið af götunum verið mengað. Öðru máli gegnir um sandinn af stígunum og er mögulega hægt að endurnýta hann á einhvern hátt. Verið er að skoða möguleika til þess, að sögn Hjalta. Þjóðvegir í þéttbýli þrifnir Vegagerðin er að hefja vorhreins- un þjóðvega í þéttbýli, að sögn G. Péturs Matthíassonar upplýsinga- fulltrúa. Hann sagði að jarðgöng landsins væru hreinsuð reglulega og ekki bara á vorin. Vorhreinsun gatna og göngustíga er hafin - Götur og stígar í Reykjavík yfir 2.000 kílómetrar að lengd Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vorhreinsun Verktakar annast hreinsun gatna og stíga í Reykjavíkurborg. Senjóríturnar, kór eldri kvenna í Reykjavík, halda tónleika í Langholtskirkju klukkan 16 í dag og syngur Bubbi Morthens með konunum. Tónleikarnir áttu að vera í nóvember á liðnu ári en þeim varð að fresta á síðustu stundu eft- ir að Bubbi greindist með kórónuveiruna. „Við löðum að okkur fræga menn,“ sagði Silja Aðal- steinsdóttir, formaður kórsins, við Morgun- blaðið í haust sem leið og hún var full tilhlökk- unar í gær. „Aðalæfingin gekk alveg prýði- lega,“ sagði hún, en í hljómsveitinni eru Róbert Þórhallsson, Einar Scheving og Vil- berg Viggósson, og lög eftir Bubba verða á dagskrá. Bubbi syngur með Senjórítunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tónlist Ágota Jóo, Bubbi Morthens og Silja Aðalsteinsdóttir. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is Klassískir frakkar Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur áhuga á að láta smíða ný umhverfisvænni skip til veiða við suðurströndina í stað þriggja sem félagið gerir út, en það eru tog- arinn Brynjólfur VE-3 sem smíð- aður var 1987, togarinn Drangavík VE-80, smíðaður 1991, og nóta- og netabáturinn Kap II sem var smíð- aður 1967. Ákvæði laga eru hins vegar sögð hindra framgang áformanna. Þetta sagði Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, á aðalfundi félagsins sem haldinn var á mið- vikudag. Í færslu á vef félagsins um fundinn segir að það sé vilji stjórnar og stjórnenda að „nýju skipin verði hönnuð og smíðuð með mikinn orkusparnað í huga og markmið um orkuskipti í sjávar- útvegi og græn viðhorf í loftslags- málum að leiðarljósi. Miðað er við að skipin geti gengið fyrir „græna eldsneytinu“ metanóli.“ Þessi áform eru þó háð því að ákvæðum laga um fiskveiðar verði breytt þannig að heimilt verði að stunda veiðar á metnólskipum. „Lagaákvæði um svokallaðan afl- vísi eru með öðrum hindrun í vegi orkuskipta í sjávarútvegi og grænnar þróunar, það er að segja lögfestar reikniformúlur um vél- arafl og þvermál skrúfu fyrir tog- skip að hámarki 29 eða 42 metrar að lengd til veiða í landhelginni,“ sagði Guðmundur Arnar á fund- inum. Besta afkoma í sögu félagsins Hafinn er undirbúningur að því að reisa nýtt hús undir botnfisk- vinnslu Vinnslustöðvarinnar. „Inn- an fárra vikna liggja fyrir frum- hugmyndir að hönnun, skipulagi og sjálfum framkvæmdunum. Gömul hús verða rifin og ný byggð í áföngum svo unnt verði að halda fiskvinnslu gangandi allan tím- ann,“ segir í færslunni. Samkvæmt ársreikningi skilaði Vinnslustöðin hagnaði upp á 15,1 milljón evra, eða um 2,1 milljarð króna, og er afkoman árið 2021 sú besta í sögu félagsins og var sam- þykkt að greiða hluthöfum 850 milljónir króna í arð. Ljósmynd/Vigfús Markússon Skip Brynjólfur var smíðaður 1987 og er vilji til að skipta honum út. Vilja ný umhverf- isvænni fiskiskip - Lög sögð hindra orkuskipti Sveitarfélögum er nú í fyrsta skipti gert að greiða fyrir aðkomu Þjóð- skrár Íslands að undirbúningi sveit- arstjórnarkosninga vegna ákvæða í nýju kosningalögunum. Fram kemur í áætlunum Þjóðskrár að heildar- kostnaðurinn af verkefnum Þjóð- skrár vegna kosninganna 14. maí sem falla á sveitarfélögin gæti orðið um tólf milljónir króna. Fram kemur í umfjöllun um þetta á vef Sambands íslenskra sveitarfé- laga að í lögunum sé ekki að finna frekari leiðbeiningar um hvernig kostnaður vegna kosninganna skipt- ist niður eftir sveitarfélögum. Því hafi verið reynt að finna leið til að skipta kostnaði niður á öll sveitar- félög en Þjóðskrá leggur til að fastur grunnkostnaður, 122.331 kr., skiptist jafnt á öll sveitarfélög en jafnframt greiði sveitarfélög hlutdeild í kostn- aði miðað við íbúafjölda. Á fundi stjórnar Sambands sveit- arfélaga var fallist „í ljósi aðstæðna á tillögu Þjóðskrár að kostnaðarskipt- ingu milli sveitarfélaga en [stjórnin] felur framkvæmdastjóra að taka upp viðræður við ríkið sem miða að því að þessi þjónusta verði sveitarfélögum að kostnaðarlausu í framtíðinni“. Fram kemur í greinargerð Þjóð- skrár um málið að umræddur kostn- aður snúi að verkefnum sem Þjóð- skrá fer með við sveitarstjórnar- kosningar, m.a. vakt stofnunarinnar á kjördag, rekstur vefsins „Hvar á ég að kjósa?“, meðmælendakerfi á Ísland.is og umsóknarkerfi fyrir námsmenn á Norðurlöndum. Reykjavíkurborg greiðir hæstu upp- hæðina samkvæmt áætlun Þjóð- skrár eða um 1,4 milljónir, Kópa- vogsbær tæpar 500 þúsund kr. og Hafnarfjörður 405 þúsund kr. omfr@mbl.is Sveitarfélög greiði kostnaðinn - Þjóðskrá með ýmis kosningaverkefni Morgunblaðið/Eggert Kjörklefi Kostnaður sveitarfélaga er áætlaður um 12 milljónir kr. 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.