Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 12

Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið stiklum á stóru og skoð- um þróun ræktunar allt frá heimagörðum torfbæja upp í umfangsmikla at- vinnugrein sem skapar fjölda manns atvinnu með hugvitsamlegri nýtingu náttúruauðlinda víða í sýslunni,“ segir Guðmunda Ólafsdóttir, þjóð- fræðingur og skjalavörður, en hún er ein þeirra sem unnið hafa að sýn- ingunni Með mold á hnjánum, sem verður opnuð í Húsinu á Eyrar- bakka í dag. Þar verður rakin í stórum dráttum saga og þróun garðyrkju í Ár- nessýslu. „Við höfum verið að grúska í heimildum hér á Héraðsskjala- safni Árnessýslu fyrir þessa sýn- ingu og nýtum líka gamlar ljósmyndir sem við eig- um í fórum okkar. Einnig leituðum við í heimildir utan safnsins, til að tengja allt saman. Fyrsti matjurta- garðurinn í sýslunni sem heimildir ertu til um er frá sautjándu öld, en hann var hjá Vísa-Gísla í Skálholti, þar sem hann varði ellinni. Hann var mikill frumkvöðull í búnaðarfræði á Íslandi og gerði meðal annars til- raunir með kornrækt og var fyrstur manna til að rækta ýmsar matjurtir hér á landi. Hann gerði ýmsar til- raunir í sinni ræktun og flutti að ut- an með sér fræ og plöntur, en hann var í námi í Hollandi og dvaldi einnig á Englandi. Skálholtsbiskupar tóku við hans garði og þar hefur í raun verið samfelld ræktun allar götur síðan.“ Stórt hlutverk kvenfélaga Guðmunda segir að mjög mis- jafnt sé hvað íslenska þjóðin hafi verið að rækta mest hverju sinni í görðum sínum. „Einhverjir einstaklingar og þá aðallega íslenskir karlmenn fóru út til náms og komu til baka með þekk- ingu í farteskinu. Einnig voru yfir- völd í Danmörku stundum að reyna að koma þekkingu á þessu sviði til landans með því að senda frægjafir hingað og sérfræðinga til að leið- beina fólki. Í raun er það ekki fyrr en á þeim tíma sem Napóleons- styrjaldirnar brjótast út á megin- landinu snemma á nítjándu öld, þeg- ar erfitt verður um aðföng utan úr heimi, sem fólk fer af illri nauðsyn að drýgja sinn mat með alls konar grænmeti og að rækta sjálft. Þegar Suðuramtsins húss- og bústjórnar- félag var stofnað 1837, þá er mark- visst farið að ýta undir ræktun og í framhaldi af því komu búnaðar- félögin og tóku við keflinu. Bún- aðarsamband Íslands stóð fyrir því að halda námskeið í garðyrkju um allt land og fólk kom líka til þeirra í gróðrarstöðina í Reykjavík til að sækja námskeið. Kvenfélögin tóku síðan við þessu starfi því grænmet- isrækt varð kvennaverk af því kon- urnar sáu jú um matseldina. Á ár- unum á milli 1920 og 1940 eru kvenfélögin með þetta hlutverk á sínum herðum, a.m.k. hér í Árnes- sýslu,“ segir Guðmunda og bætir við að auðvitað hafi líka þurft að kenna konum að matreiða úr þessu hráefni sem var þeim framandi, þær vissu ekki endilega hvernig þær ættu að bera sig að. „Námskeið voru haldin en þá mættu ákveðnar konur í sveitina á einhvern ákveðinn bæ þangað sem konurnar í sveitinni fjölmenntu til að læra af þeim. Þessar námskeiðs- konur komu í þrígang yfir árið, fyrst að vori til að kenna að búa til mat- jurtagarð, síðan til að setja í hann það sem átti að vaxa yfir sumarið og að lokum komu þær um haustið þeg- ar uppskeran var og kenndu í leið- inni að matreiða úr öllu þessu fjöl- breytta hráefni. Þetta voru því bæði grænmetisræktunar- og matreiðslu- námskeið á vegum kvenfélaganna.“ Í nálægð við heita hveri Guðmunda segir að þegar garð- yrkja hafi orðið atvinnugrein hér á landi þá hafi karlar markvisst farið að mennta sig í faginu. „Í kringum 1930 verður þetta atvinnugrein, þegar fyrsta garð- yrkjubýlið í sýslunni rís í Fagra- hvammi í Hveragerði. Í framhaldinu rísa slík býli í uppsveitum Árnes- sýslu þar sem hiti er í jörðu. Garð- yrkjan hefur mikil áhrif á byggða- þróunina, þéttbýli myndast í kringum þessa staði, til dæmis þegar Garðyrkjuskólinn var stofnaður á Reykjum í Ölfusi, þá setjast margir að þar í kring. Þannig byggist Hveragerði upp. Það sama gerist í kringum alla heita hveri í sýslunni, í Reykholti og Laugarási í Biskups- tungum, á Flúðum í Hrunamanna- hreppi og fleiri stöðum. Fyrir þann tíma þótti hiti í jörðu vera til óþurft- ar, því skepnur áttu til að detta ofan í hveri og drepast.“ Guðmunda segir að sér finnist einna merkilegst að hafa komist að því hversu mikil vinna var fólgin í því að koma þessum vörum á markað, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. „Á árunum 1930 til 1940 kom það jafnvel fyrir að fólk þurfti að setja innpakkaða túlípana á bakið og skíða með þá yfir Hellisheiði frá Hveragerði, til að koma þeim í búðir í borginni. Einnig eru til heimildir um sleðaferðir alla leið ofan úr Bisk- upstungum í sömu erindum. Fólk lagði því virkilega mikið á sig,“ segir Guðmunda og bætir við að Hvera- gerði hafi þróast í að verða blóma- bær af því að blómin hafa stuttan líf- tíma eftir að búið er að skera þau og þeim þarf því að koma hratt til neyt- enda. „Vegalengdin frá Hveragerði í bæinn er stutt, svo sá bær hentaði hér áður best til blómaræktunar en grænmetið var frekar ræktað í upp- sveitum sýslunnar, það þolir lengri bið eftir að það er skorið. Samgöng- ur höfðu því áhrif á þessa þróun. Við sjáum í dag gríðarleg samfélagsleg áhrif stórra garðyrkjustöðva í Ár- nessýslu, til dæmis í Reykholti í Biskupstungum þar sem Friðheimar og fleiri garðyrkjustöðvar hafa byggt mikið upp á undanförnum ár- um og skapað fjölda starfa.“ Páskasýningin, Með mold á hnjánum, verður opnuð í Húsinu á Eyrarbakka í dag, laugardag, 9. apr- íl kl. 13. Sýning er unnin upp úr safn- kosti Héraðsskjalasafnsins ásamt öðrum heimildum um garðyrkju í Árnessýslu. Húsið á Eyrarbakka er með opið um og yfir páska milli kl. 13 og 17 frá 9. apríl . Ókeypis er á sýn- inguna við sýningaropnun. Nóg að gera Nemendur að störfum í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi 1949. Fólk lagði virkilega mikið á sig „Fólk setti jafnvel inn- pakkaða túlípana á bak- ið og skíðaði með þá yfir Hellisheiði frá Hvera- gerði, til að koma þeim í búðir í borginni. Einnig eru til heimildir um sleðaferðir alla leið ofan úr Biskupstungum í sömu erindum,“ segir Guðmunda Ólafsdóttir um fyrri tíma garðyrkju. Ljósmyndir/Héraðsskjalasafn Árnesinga Vaskleg Kona að vinna í flagi. Mögulega er þetta Margrét Gissurardóttir frá Byggðarhorni sem prýðir þessa mynd frá ca 1940. Guðmunda Ólafsdóttir Stoltur Jón Eiríksson í Vorsabæ á Skeiðum með blómkálshaus úr eigin ræktun 1944. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Á sýningunni Húllumhæ á bárujárnið í Hjarta Reykjavíkur sýnir Örn Karls- son úrval af tölvuklippum frá árunum 2015-2021. Einnig má sjá kvikar myndatilraunir með hljóði sem Örn gerði árið 2009. Á opnuninni kemur út nýtt bókverk eftir Örn sem hann kallar Manifesto Malbikarans og er gefið út í 50 tölusettum og árituðum eintökum. Opnun verður í dag, laugardag, klukkan 16-18. Sýning í Hjarta Reykjavíkur Húllumhæ á bárujárnið Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Vefverslun:www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf S. 555 3100 · donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Verð kr. 39.420 Hreinna loft - betri heilsa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.