Morgunblaðið - 09.04.2022, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
Skipholti 50d, 105 Reykjavík
Skólabraut 26, 300 Akranesi
530 9000 • www.logheimili.is
Ertu í sölu-hugleiðingum?
Getum bætt við eignum á söluskrá
Fagmennska
og traust
í meira en áratug
Heimir Bergmann
Löggiltur fasteigna- og
skipasali og löggiltur
leigumiðlari.
Sími 630 9000
heimir@logheimili.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg mun, í samstarfi
við Faxaflóahafnir, útvega íslenska
ríkinu um 30 þúsund fermetra lóð
fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila,
Löggarða, milli Kleppssvæðisins og
verslunarmiðstöðvarinnar Holta-
garða. Í staðinn fær borgin lóð,
áþekka að stærð, við Borgarspít-
alann í Fossvogi.
Borgarráð samþykkti á fimmtu-
daginn heimild til að kalla eftir út-
hlutun frá Faxaflóahöfnum, á fyrr-
nefndri lóð. Þá samþykkti
borgarráð að gerður yrði maka-
skiptasamningur við ríkissjóð Ís-
lands, þar sem Reykjavíkurborg
framselur lóðarleiguréttindi að
framangreindri lóð en fær í staðinn
um 30 þúsund fermetra lóð við
Borgarspítalann. Á lóðinni í Foss-
vogi hyggst Reykjavíkurborg þróa
aukna íbúðabyggð og þegar þeirri
vinnu lýkur verður hægt að bjóða til
sölu byggingarrétt á lóðum á svæð-
inu.
Lóðargjald 654 milljónir króna
Lóðargjald, miðað við að nýting-
arhlutfall á lóðinni sé 0,5, er 390
milljónir króna, sem Reykjavíkur-
borg greiðir Faxaflóahöfnum við út-
hlutun. Fyrir umfram-byggingar-
magn greiðist viðbótarlóðargjald
sem nemur gatnagerðargjaldi. Mið-
að við fjárhæð gatnagerðargjalds
nú og að húsnæðið undir almanna-
þjónustuna verði 26 þúsund fer-
metrar myndi viðbótarlóðargjald
nema um 264 milljónum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu á
vef Reykjavíkurborgar. Samanlagt
yrði fjárhæð lóðargjalds þá um 654
milljónir. Umframfjárhæðin kemur
til greiðslu við útgáfu byggingar-
leyfis.
Reykjavíkurborg mun annast
endurskoðun á gildandi deiliskipu-
lagi lóðar björgunarmiðstöðvar-
innar og eftir atvikum aðalskipulagi
borgarinnar, í samvinnu við ríkið.
Við gerð deiliskipulags skal meðal
annars skilgreina byggingarheim-
ildir og umferðartengingar með
hliðsjón af fyrirhugaðri starfsemi.
„Verði þörf á viðbótarlandi eða at-
hafnasvæði til að tryggja forgangs-
akstur eða umferðarflæði mun
Reykjavíkurborg taka jákvætt í
slíkar umleitanir verði sýnt fram á
mikilvægi þess,“ segir í tilkynningu
borgarinnar.
Framkvæmdasýsla ríkisins aug-
lýsti árið 2020 eftir upplýsingum um
30 þúsund fermetra lóð eða húsnæði
í Reykjavík fyrir sameiginlega að-
stöðu löggæslu- og viðbragðsaðila
landsins. Þetta eru: Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu, ríkislög-
reglustjóri, Landhelgisgæslan,
Slysavarnafélagið Landsbjörg, toll-
gæslan (Skatturinn), Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins og Neyðarlínan.
Flestar þessar stofnanir eru nú
að hluta til með aðsetur í björg-
unarmiðstöðinni í Skógarhlíð, en
ekki á einu gólfi. Viðbragðsaðilar
eru í dag með húsnæði víða á höf-
uðborgarsvæðinu, samtals 36.300
fermetra, og 1.273 starfsmenn. Hin
nýja miðstöð fyrir allt Ísland fékk
skammstöfunina HVH, húsnæði við-
bragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu.
Sú krafa var gerð að lögregla
komist á innan við átta mínútum frá
HVH að Alþingisreit, miðbæ og
Stjórnarráði, og ljóst er að þessi lóð
við Klepp uppfyllir þau skilyrði.
Ríki og borg höfðu lóðaskipti
- Björgunarmiðstöð Íslands rís á lóð við Kleppsspítala - Íbúðir verða byggðar við Borgarspítalann
Ljósmyndir/Reykjavíkurborg
Löggarðar Björgunarmiðstöðin rís milli Klepps og Holtagarða. Sundabraut
kemur sunnan Holtagarða en ekki við Klepp eins og segir í aðalskipulagi.
Byggingarlóðir Borgin áformar að reisa íbúðarhús á lóðinni sunnan Borg-
arspítalans, sem hún fékk í lóðaskiptum við ríkið. Byggð er allt í kring.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Yfirlit yfir opinberar móttökur
Reykjavíkurborgar og kostnað við
þær var lagt fram á nýlegum fundi
forsætisnefndar. Urðu þær tilefni til
bókana fulltrúa minni- og meirihluta-
flokka í nefndinni.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins,
Vigdís Hauksdóttir, reið á vaðið og
bókaði: „Það er beinlínis ógeðfellt
hvernig borgarstjóri hagar sér á
kosningaári. Í yfirliti yfir móttökur
þá kemur fram að borgarstjóri er nú
– korter í kosningar – að bjóða til
móttöku 70 ára Reykvíkingum sem
áttu/eiga afmæli 2020, 2021 og 2022.
Kostar hver viðburður 1,6 milljónir
króna og er því heildarkostnaður
tæpar 5 milljónir. Borgarstjóri lítur á
borgarsjóð sem sinn eigin kosninga-
sjóð.“
Fulltrúar Samfylkingarinnar og
Pírata ásamt áheyrnarfulltrúum Við-
reisnar og Vinstri grænna lögðu fram
svohljóðandi gagnbókun:
„Síðastliðna áratugi, eða frá 1970,
hefur embætti borgarstjóra heiðrað
70 ára Reykvíkinga með móttöku í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Móttakan hef-
ur verið árleg en féll niður árin 2020
og 2021 vegna heimsfaraldurs. Þarna
er um að ræða tækifæri til samtals
við hóp sem annars hefði ekki haft
tækifæri til, en það hefði verið ákaf-
lega leiðinlegt ef þeir árgangar sem
urðu 70 ára á þessum árum hefðu far-
ið alveg á mis við þennan viðburð. Al-
menn ánægja hefur verið með mót-
tökuna og er öllum borgarfulltrúum
boðið að taka þátt – við teljum það
gleðilega hefð sem vert er að halda í.“
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins
lagði fram svohljóðandi gagnbókun:
„Eins og segir í fyrri bókun þá er það
meiriháttar óeðlilegt að þessar mót-
tökur hafi ekki verið haldnar að af-
loknum borgarstjórnarkosningum.
Með því að halda þær korter í kosn-
ingar fékk borgarstjóri tækifæri til
að snerta þrjá árganga með boðs-
korti og í framhaldi að halda veislu
fyrir þá.“ Boðin voru haldin 13.-27.
mars.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins,
Kolbrún Baldursdóttir, lagði fram
svohljóðandi bókun: „Fulltrúa
Flokks fólksins finnst styrkur borg-
arinnar, 800.000 kr., á viðburðinn
Women Political Leaders ansi hár og
hefði viljað sjá að minnsta kosti hluta
af þessum pening
varið í annað, t.d. í
þágu barna.
Kostnaður við
Hönnunarmars/
Borgarlínu er
rúmar 500.000.
Hér er um að
ræða hópa sem
eru án efa aflögu-
færir og gætu
greitt hluta af
veitingum sjálfir. Þetta er vont að sjá
þegar hugsað er til þeirra borgarbúa
sem súpa nánast dauðann úr skel.
Fólk sem nær engan veginn endum
saman. Sjálfsagt er að styrkja við-
burði af fjölbreyttu tagi en þetta er
þó alltaf spurning um hóf og skyn-
semi og að ávallt sé reynt að fara sem
best með útsvarsfé borgarbúa.“
Samkvæmt yfirlitinu voru opinber-
ar móttökur sex talsins árið 2020 og
kostnaður borgarinnar var 2,1 millj-
ón. Væntanlega hefur Covid-farald-
urinn haft áhrif á það hve fáar þær
voru. Árið 2021 hafði þeim fjölgað í 12
og kostnaðurinn var 3,7 milljónir.
Gagnrýndi borgarstjóra
fyrir afmælisboð sjötugra
Vigdís
Hauksdóttir
Kolbrún
Baldursdóttir
Dagur B.
Eggertsson
- Meirihlutinn segir þetta hefð sem nái aftur til ársins 1970
Morgunblaðið/ Sigurður Bogi
Lionsklúbburinn Njörður afhenti í
fyrradag Sollusjóðnum 1,2 milljóna
króna styrk til Batahússins. Féð
fékkst vegna sölu á málverki eftir
Tolla, sem er einn af hvatamönnum
Batahússins. Um leið var því fagn-
að að um það bil 900 þúsund krónur
söfnuðust í Batagöngunni, leið-
angri Tolla og Arnars Haukssonar
á topp Aconcagua í janúar.
Sólveig Eiríksdóttir, oft kennd
við Gló, er höfuð Sollusjóðsins og
tók hún við styrkjunum á vinnu-
stofu Tolla.
Batahús er einstaklingsmiðað úr-
ræði við lok afplánunar. Ein-
staklingum er boðin heimilis-
aðstaða til allt að tveggja ára eða
skemur. Unnið er með þeim á jafn-
ingjagrundvelli út frá hugmyndum
um áfallamiðaða nálgun.
Fékk tvær milljónir
- Batahúsið nýtur góðs af stuðningi
Vinnustofa Tolla Styrkur afhentur.